Malala hvetur ríki heims til að taka við Afgönum Ríki heims þurfa að opna landamæri sín fyrir afgönskum flóttamönnum eftir að land þeirra féll í hendur talibana, að sögn Malölu Yousafzai sem komst naumlega lífs af þegar talibanar skutu hana í höfuðið fyrir tæpum áratug. Erlent 17. ágúst 2021 10:18
Skora á stjórnvöld að taka á móti hinsegin flóttafólki frá Afganistan Samtökin 78 hafa skorað á stjórnvöld að taka á móti afgönsku flóttafólki nú þegar Talibanar hafi á síðustu dögum rænt völdum í Afganistan. Innlent 17. ágúst 2021 07:33
„Ég stend fyrir 82 milljónir flóttamanna og allar konur í Afghanistan“ Afganska hjólreiðakonan Masomah Ali Zada er á meðal 25 manns sem keppir fyrir lið flóttafólks á Ólympíuleikunum í Tókýó. Það er ekki aðeins mikilvægt fyrir hana persónulega, heldur einnig fyrir þúsundir kvenna um heim allan sem mega ekki einu sinni ferðast um á reiðhjóli. Sport 28. júlí 2021 23:31
Solaris kvarta til Umboðsmanns vegna Útlendingastofnunar og lögreglu Stjórn Solaris - hjálparsamtaka fyrir hælisleitendur og flóttafólk á Íslandi hefur sent tilkynningu til nefndar um eftirlit með lögreglu um „ámælisverða starfshætti lögreglu, starfsaðferð og framkomu í starfi“ vegna aðgerðar á vegum Útlendingastofnunar og lögregluyfirvalda í húsakynnum stofnunarinnar í Hafnarfirði þriðjudaginn 6. júlí. Innlent 9. júlí 2021 21:31
Skelfilegt ástand í málefnum flóttafólks Aldrei hafa fleiri verið á flótta í heiminum en nú. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna. Sviðstjóri hjá Rauða krossinum segir stöðuna skelfilega. Erlent 18. júní 2021 12:01
Flóttafólki heldur áfram að fjölga þrátt fyrir heimsfaraldur Uum 82,4 milljónir manna voru á flótta í heiminum á síðasta ári. Heimsmarkmiðin 18. júní 2021 10:15
Aldrei hafa fleiri verið á flótta í heiminum Fjöldi þeirra sem þurftu að flýja heimili sín á síðasta ári jókst um rúmar ellefu milljónir manna sem er enn meiri aukning en var árið 2019. Erlent 18. júní 2021 08:39
Öryggisráðið styður annað fimm ára tímabil Antonio Guterres António Guterres var meðal annars forsætisráðherra Portúgals, formaður Alþjóðasambands jafnaðarmanna og forstjóri Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna (UNHCR) Heimsmarkmiðin 11. júní 2021 09:58
Lík 15 mánaða gamals drengs fannst við strendur Noregs Líkamsleifar fimmtán mánaða gamals drengs, sem hvarf á Ermarsundi í fyrra, hafa fundist við strendur Noregs. Þetta kemur fram í tilkynningu frá norsku lögreglunni. Erlent 7. júní 2021 11:37
Danir samþykkja að geta útvistað hælisleitendakerfinu til þriðja ríkis Meirihluti danska þingsins samþykkti í morgun umdeilt frumvarp ríkisstjórnarinnar sem heimilar dönskum yfirvöldum að útvista hælisleitendakerfi landsins til þriðja ríkis. Yfirlýst markmið danskra stjórnvalda er að engir sæki um hæli í landinu. Erlent 3. júní 2021 09:54
Hafa sent þúsundir aftur til Marokkó Rúmlega 6.500 af þeim um átta þúsund farand- og flóttamönnum sem hafa gert sér leið til Ceuta, yfirráðasvæðis Spánar í Norður-Afríku, í þessari viku hafa verið sendir aftur til Marokkó. Þetta tilkynnti Fernando Grande-Marlaska, innanríkisráðherra Spánar í morgun. Erlent 21. maí 2021 10:15
Þrír flóttamenn á sviðinu í Rotterdam Flóttafólk er meðal keppenda í Eurovision. Heimsmarkmiðin 19. maí 2021 13:19
Hermenn sendir til að hefta flæði fólks yfir landamærin í Ceuta Yfirvöld á Spáni hafa sent hermenn til Ceuta, yfirráðasvæði Spánar í Norður-Afríku eftir að metfjöldi flótta- og farandfólks kom þangað. Ráðamenn í Ceuta segja minnst sex þúsund manns hafa komið á svæðið frá Marokkó í dag. Erlent 18. maí 2021 21:01
Yfir þúsund flóttamenn til Ítalíu í dag Meira en eitt þúsund flóttamenn náðu landi á ítölsku eyjunni Lampedusa í dag. Erlent 9. maí 2021 22:57
Hækkar hámark flóttamanna eftir gagnrýni Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, hefur ákveðið að hækka hámark á fjölda flóttamanna sem Bandaríkin munu taka við á árinu. Það er í kjölfar þess að ríkisstjórn hans tilkynnti að hámarkið yrði það sama og það var í forsetatíð Donalds Trump, forvera hans. Erlent 3. maí 2021 23:56
Þrír fórust þegar smyglbát hvolfdi við strendur San Diego Þrír fórust og tugir slösuðust þegar bátur hvolfdi og strandaði við strendur San Diego í Bandaríkjunum í morgun. Talið er að báturinn hafi verið notaður til að smygla farþegum til Bandaríkjanna. Erlent 3. maí 2021 10:43
Danir byrja að sparka sýrlenskum flóttamönnum úr landi Ríkisstjórn sósíaldemókrata í Danmörku er byrjuð að svipta suma sýrlenska flóttamenn sem fengu hæli vegna borgarastríðsins í heimalandinu landsvistarleyfi með þeim rökum að öruggt sé fyrir þá að snúa heim. Sérfræðingar vísa því mati danskra stjórnvalda á bug. Erlent 24. apríl 2021 15:01
Um sautján börn á flótta hverfa daglega í Evrópu Að minnsta kosti 180 þúsund börn á flótta hafa horfið eftir að hafa komið til Evrópulanda á borð við Grikkland, Ítalíu og Þýskaland. Alls var 18.292 flóttabarna, sem voru ekki í fylgd með fullorðnum, saknað árin 2018 til 2020. Erlent 21. apríl 2021 09:00
Ný stuttmynd frá Flóttamannastofnun um gildi íþrótta fyrir flóttafólk Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna frumsýnir nýja stuttmynd um sögu ungrar flóttakonu sem keppir á Ólympíuleikum. Heimsmarkmiðin 6. apríl 2021 10:52
Sakaðir um að myrða almenna borgara sem flýja átökin Flóttamenn í Kólumbíu, sem flúið hafa stríðsátök í Venesúela, hafa sakað stríðandi fylkingar um að hafa misnotað og myrt almenna borgara. Um fjögur þúsund flóttamenn hafa farið yfir landamærin undanfarna viku en á sunnudaginn var hófust átök í La Victoria, stuttu frá landamærunum við Kólumbíu. Erlent 27. mars 2021 21:49
Sýrland: Stríðsátök í heilan áratug Milljónir sýrlenskra barna hafi þurft að flýja heimili sín og að efnahagur og innviðir landsins eru í molum eftir stríðsátök undanfarinna ára. Heimsmarkmiðin 10. mars 2021 14:00
39 látnir eftir að bátar sukku undan ströndum Túnis Að minnsta kosti 39 eru látnir eftir að tveir bátar hlaðnir farandfólki sukku undan ströndum Túnis í gær. Fólkið var að freista þess að komast yfir Miðjarðarhafið til ítölsku eyjunnar Lampedusa, að sögn varnarmálaráðuneytis Túnis. Erlent 10. mars 2021 07:47
Flóttafólk snýr heim: Íslendingum þakkaður stuðningur Utanríkisráðuneytið veitti Hjálparstarfi kirkjunnar tuttugu milljóna króna stuðning fyrir tveimur árum til mannúðaraðstoðar við íbúa Suður-Súdan. Heimsmarkmiðin 4. febrúar 2021 10:59
Vill að borgin taki á móti fórnarlömbum mansals líkt og rithöfundum Borgarfulltrúi Sósíalistaflokksins telur að Reykjavíkurborg ætti að beita sér fyrir móttöku fórnarlamba mansals í leit að vernd hér á landi. Sérstök umræða um mansal fer fram í borgarstjórn í dag. Innlent 19. janúar 2021 12:17
Íslandi þakkaður stuðningur við Flóttamannastofnun Í október tilkynnti utanríkisráðuneytið um 80 milljóna króna framlag til Flóttamannastofnunar vegna ástandsins í Níger, Malí og Búrkina Fasó. Hvergi í heiminum flosnar fólk upp í jafn miklum mæli og í þessum heimshluta í Vestur-Afríku Heimsmarkmiðin 3. desember 2020 13:45
Réttartannlæknar saka Rósu Björk um alvarlegar rangfærslur Fjórir réttartannlæknar, sem hafa séð um aldursgreiningar flóttamanna hér á landi frá upphafi, hafa gert harðorðar athugasemdir við frumvarp Rósu Bjarkar Brynjólfsdóttur til breytinga á lögum um útlendinga. Telja þeir frumvarpið auðvelda fullorðnum að smeygja sér í raðir barna til að njóta réttarverndar sem ætluð er börnum. Innlent 26. nóvember 2020 22:28
Segir myndefni af lokun tjaldbúða í París vera sláandi og heitir rannsókn Innanríkisráðherra Frakklands segir myndefni af lögregluþjónum loka tjaldbúðum í París í gær vera sláandi og heitir því að málið verði rannsakað. Búðirnar voru reistar af aðgerðasinnum og stjórnmálamönnum í mótmælaskyni við því að sambærilegum búðum annarsstaðar í borginni var lokað í síðustu viku. Erlent 24. nóvember 2020 13:57
Flýja Afríku og stefna til Kanarí Rúmlega 1600 flóttamenn hafa komið til Kanaríeyja um helgina, eða verið bjargað úti fyrir ströndum eyjaklasans. Erlent 9. nóvember 2020 06:43
Börn meðal þeirra sem létust þegar bátur sökk á Ermarsundi Fjórir flóttamenn, þar af tvö börn, átta og fimm ára, eru látnir eftir að bátur sem átti að fyltja þá til Bretlands sökk. Erlent 27. október 2020 20:22