Voru á landinu fyrir auglýsingaherferð fatalínunnar Erlendu ferðamennirnir þrír sem létust í flugslysi á Þingvallavatni á fimmtudag voru staddur hér á landi til að taka þátt í auglýsingaherferð fyrir belgíska fatalínu. Þeir voru hér í hópi átta áhrifavalda og tveggja starfsmanna fyrirtækisins. Innlent 7. febrúar 2022 17:30
Voru allir á sama aldursbili og tengdir fatalínu Erlendu ferðamennirnir þrír sem létust í flugslysi á Þingvallavatni á fimmtudaginn voru á bilinu 22 til 32 ára gamlir. Þeir fundust allir á botni vatnsins í gær en ekki verður hægt að sækja þá fyrr en veður leyfir í seinni hluta vikunnar. Innlent 7. febrúar 2022 12:10
Keahótel ætla í sókn á Sigló Keahótel hafa tekið við rekstri Sigló Hótels og allri tengdri starfsemi þess á Siglufirði. Hótelið er þar með orðið að níunda hótelinu í keðju fyrirtækisins. Framkvæmdastjóri hennar segir bjarta tíma vera fram undan í ferðaþjónustu á Íslandi. Viðskipti innlent 4. febrúar 2022 22:33
550 milljón kr. innspýting í ferðaþjónustu Samfélagið er farið að sjá til lands í faraldrinum sem hefur herjað á heiminn undanfarin tvö ár. Bjartsýni eykst með degi hverjum og Ísland er ásamt fleiri löndum farið að stíga veigamikil skref í átt að afléttingum sóttvarnaráðstafana. Skoðun 4. febrúar 2022 14:01
Jack Whitehall skoðar Hallgrímskirkju Leikarinn og grínistinn Jack Whitehall er staddur á Íslandi ásamt kærustu sinni, fyrirsætunni Roxy Hornes. Hann virðist njóta þess að prófa sig áfram með leiðir til að nota buff og skoða náttúruna. Lífið 4. febrúar 2022 13:30
Sigló Hótel orðið hluti af Keahótelum Keahótel ehf. hafa tekið við rekstri Sigló Hótels á Siglufirði og tengdrar starfsemi til næstu sautján ára. Keahótel mun leigja hótelið sjálft, veitingastaðina Sunnu, Rauðku og Hannes Boy, ásamt Sigló gistiheimili. Viðskipti innlent 4. febrúar 2022 11:40
Barst einungis tilkynning um hópuppsögn hjá The Reykjavík Edition Vinnumálastofnun barst ein tilkynning um hópuppsögn í janúar þar sem 27 starfsmönnum var sagt upp störfum í gististaða- og veitingahúsarekstri. Viðskipti innlent 2. febrúar 2022 14:49
Dansinn við íslensku krónuna Þegar íslensk vara eða þjónusta er seld erlendis, þar sem framleiðslukostnaður er að mestu eða öllu leyti í íslenskum krónum, þá skapast oft á tíðum vandamál í rekstri útflutningsfyrirtækja. Það er gömul saga og ný að gengissveiflur í bland við háan innlendan kostnað, einkum launakostnað, hafa skert samkeppnishæfni og sjálfbæran rekstur útflutningsgreina. Skoðun 1. febrúar 2022 15:01
Hyggja á hótelrekstur í Herkastalanum og mathöll í Kaffi Reykjavík Íslenskt-víetnamskt fjölskyldufyrirtæki hefur keypt Herkastalann svokallaða við Kirkjustræti 2 og hyggst reka þar hótel og veitingastað. Húsið verður endurnýjað „í samræmi við nútímakröfur“ en haldið í upprunalegt útlit og skipulag. Innlent 31. janúar 2022 12:57
Sjö sinnum fleiri gistinætur í desember Gistinóttum á öllum tegundum skráðra gististaða fjölgaði um 55% í fyrra og voru 5,1 milljón samanborið við 3.3 milljónir árið 2020. Íslenskar gistinætur voru um 40% gistinátta eða um 2,0 milljónir en voru 1,5 milljónir á fyrra ári. Um 60% gistinátta voru erlendar eða um 3,1 milljón samanborið við 1,8 milljónir árið áður. Viðskipti innlent 31. janúar 2022 10:54
Óttast að ferðaþjónustunni blæði út Stjórnendur í ferðaþjónustu segja hætt við að ferðaþjónustunni blæði út ef ekki verði gripið til ráðstafana. Vetrarmánuðirnir hafi verið erfiðir og hætta sé fyrir hendi að ferðaþjónustan verði of löskuð til að taka á móti ferðamönnum í sumar. Viðskipti innlent 30. janúar 2022 00:01
Hræðast að ferðaþjónustan verði of löskuð til að taka á móti ferðamönnum Hætta er fyrir hendi að þegar ferðamenn fari aftur að streyma til landsins í vor verði ferðaþjónustan of löskuð til að taka á móti þeim. Stór hluti ferðaþjónustufyrirtækja hafi ekki nægjar tekjur til að halda starfsfólki. Viðskipti innlent 29. janúar 2022 13:34
Spá því að ferðaþjónustan nái vopnum sínum á ný og krónan styrkist um 9 prósent Hagvöxtur á þessu ári mun mælast 4,7 prósent sem má einkum þakka þróttmiklum vexti útflutnings, sér í lagi ferðaþjónustu og sjávarútvegs, og gæti skilað sér í því að gengi krónunnar styrkist um 8 til 9 prósent. Gangi það eftir yrði það hraðasti vöxtur í hagkerfinu frá árinu 2018. Innherji 26. janúar 2022 06:01
Útlit fyrir myndarlegan hagvöxt, hjaðnandi verðbólgu og hærri stýrivexti Útlit er fyrir myndarlegan hagvöxt út árið 2024 og hægt hjaðnandi verðbólgu á þessu ári að mati Greiningar Íslandsbanka sem spáir 4,7% hagvexti árið 2022. Gert er ráð fyrir að stýrivextir verði komnir í 3,25% í lok þessa árs og 4,0% í byrjun 2024. Þeir eru nú 2,0% og hækkuðu um 1,25 prósentustig á seinasta ári. Viðskipti innlent 26. janúar 2022 05:00
Kaflar að Fjaðrárglúfri og Hvítserk fá bundið slitlag Vegagerðin hefur óskað eftir tilboðum í endurbyggingu tveggja kílómetra vegarkafla og lagningu bundins slitlags milli Hunkubakka og Fjaðrárgljúfurs í Skaftárhreppi. Áður var búið að klæða eins kílómetra kafla frá þjóðvegi eitt að Hunkubökkum. Þegar verkinu lýkur munu vegafarendur á hringveginum því geta komist á malbiki alla leið að þessum vinsæla ferðamannastað, sem er um tíu kílómetra vestan Kirkjubæjarklausturs. Innlent 24. janúar 2022 17:47
Lisa Snowdon fagnar hálfri öld á Íslandi Lisa Snowdon er nýjasti Íslandsvinurinn og er um þessar mundir að fagna fimmtíu ára afmælinu sínu hér á landi ásamt unnusta sínum George Smart. Parið hafði það huggulegt í Sky Lagoon og var hún dugleg að sýna frá afmælisferðinni á samfélagsmiðli sínum. Lífið 24. janúar 2022 17:30
Óttast skipsbrot rétt undan landi Lítil fyrirtæki í ferðaþjónustu sjá fram á skipsbrot rétt undan landi komi stjórnvöld ekki til móts við þau. Talskona fimm hundruð fyrirtækja samstöðuhóps furðar sig á því að styrkir vegna tekjufalls veitingastaða í samkomutakmörkunum nái ekki einnig til þeirra þar sem afbókanir hafi streymt inn. Innlent 24. janúar 2022 12:35
Travel Connect nýr risi á íslenskum markaði Móðurfélag Nordic Visitor, Iceland Travel og Terra Nova hefur hlotið nafnið Travel Connect. Við sameininguna verður til eitt stærsta ferðaþjónustufyrirtæki landsins. Viðskipti innlent 24. janúar 2022 10:45
Íbúum fjölgar og fjölgar í Bláskógabyggð Íbúum fjölgar ört í Bláskógabyggð eins og á Laugarvatni og í Reykholti. Þá hefur sjaldan eða aldrei verið eins mikill uppgangur í garðyrkjunni eins og nú í sveitarfélaginu. Innlent 23. janúar 2022 16:30
Rútuferðir Airport Direct ekki almenningssamgöngur og ættu að rukka vask Rútuferðir Airport Direct milli Keflavíkurflugvallar og Reykjavíkur teljast ekki til almenningssamganga að mati Skattsins. Rútufyrirtækið hefur undanfarin ár ekki innheimt virðisaukaskatt af farmiðasölunni ólíkt keppinautunum. Viðskipti innlent 20. janúar 2022 14:57
Samfélagssáttmáli, er það raunhæft? Í 23 mánuði höfum við verið í ástandi þar sem allt hefur gengið út á það að lifa af, sjá fyrir næsta horn, bíða eftir næsta fréttatíma, heyra tölur, fjölda, stöðuna, hvað næst? Bíða aðeins, vona það besta, reyna að plana, endurplana, endurplana endurplanið. Gefast upp, byrja aftur, reyna betur. Skoðun 19. janúar 2022 12:31
Mikil bjartsýni fyrir ferðasumrinu 2022 Mikill hugur er í þeim sem stunda ferðaþjónustu í Mýrdalshreppi fyrir sumrinu enda verið að skipuleggja sumarið á fullum krafti með fjölbreyttri dagskrá. Oddviti sveitarfélagsins spáir góðu sumri í ferðaþjónustu. Innlent 16. janúar 2022 15:30
Þau sem urðu verst úti Nú standa vonir til þess að heimsfaraldri kórónuveiru fari fljótlega að ljúka. Miðað við orð þeirra sem best til þekkja, gæti verið um nokkrar vikur eða mánuði að ræða, þar til mesta hættan er liðin hjá. Skoðun 15. janúar 2022 16:03
Þórdís Anna komin í stjórn Arctic Adventures Þórdís Anna Oddsdóttir hefur tekið sæti í stjórn Arctic Adventures en hún kemur í stað Grétu Maríu Grétarsdóttur sem var nýlega ráðin forstjóri ferðaþjónustufyrirtækisins. Klinkið 14. janúar 2022 20:01
Áfellisdómur yfir framkomu Isavia við ferðaþjónustuna Nýleg skýrsla Samkeppniseftirlitsins um starfshætti Isavia á Keflavíkurflugvelli er vægast sagt þungur áfellisdómur. Isavia brýtur aftur og aftur gegn samkeppnislögum og hagar sér eins og handrukkari gagnvart þeim fjölmörgum fyrirtækjum sem eru með starfsemi á Keflavíkurflugvelli og í Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Skoðun 13. janúar 2022 08:01
Nýársmálstofa ferðaþjónustunnar 2022: Ferðaþjónusta nýrra tíma Nýársmálstofa ferðaþjónustunnar 2022 fer fram í dag, þriðjudaginn 11. janúar kl. 9.00, í beinu streymi hér á Vísi. Á Nýársmálstofunni verður horft inn í nýtt ár og helstu tækifærum og áskorunum framundan verður velt upp. Innlent 11. janúar 2022 08:31
Ferðaþjónustuaðilar frekar bjartsýnir Þeir sem reka ferðaþjónustufyrirtæki hér á landi virðast frekar bjartsýnir fyrir árið sem nú er nýhafið ef marka má nýja könnun. Þar segist forsvarsfólk ferðaþjónustufyrirtækja telja að samkeppnisstaða Íslands sem áfangastaðar muni styrkjast, eða standa í stað á milli ára. Innlent 11. janúar 2022 07:50
Leita til Hæstaréttar og starfa áfram í greiðsluskjóli Allrahanda GL, sem rekur ferðaþjónustufyrirtækið Gray Line, hyggst leggja fram beiðni um kæruleyfi til Hæstaréttar eftir að Landsréttur staðfesti úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur um að hafna staðfestingu nauðasamnings félagsins. Á meðan á því ferli stendur frestast rétttaráhrif úrskurðar Landsréttar og heldur Allrahanda GL því áfram rekstri í greiðsluskjóli. Viðskipti innlent 7. janúar 2022 08:44
Staðfestir úrskurð héraðsdóms um að hafna nauðasamningi Gray Line Landsréttur staðfesti fyrr í dag úrskurð héraðsdóms Reykjavíkur frá því í nóvember síðastliðnum um að hafna staðfestingu nauðasamnings Allrahanda GL sem rekur ferðaþjónustufyrirtækið Gray Line en það hefur verið í greiðsluskjóli frá því í júní árið 2020. Innherji 6. janúar 2022 18:21
Hátt hlutfall fjölgunar starfa í ferðaþjónustu byggt á ráðningarstyrkjum Mikil fjölgun starfa hefur orðið í íslenskri ferðaþjónustu undanfarna mánuði en mjög hátt hlutfall er byggt á ráðningarstyrkjum. Innherji 4. janúar 2022 20:01