Klemmdi annan ökumann á milli vörubíls og sendibíls eftir rifrildi Ökumaður vörubíls hefur verið dæmdur í fjögurra mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að hafa klemmt ökumann sendibíls á milli bílanna tveggja eftir rifrildi ökumannanna á milli. Héraðsdómur telur að bílstjóra vörubílsins hafi þó stafað ógn af hinum ökumanninum. Innlent 9. desember 2020 15:03
Eigendur Finnsku búðarinnar þurfa að greiða þrotabúinu milljónir Eigendur Finnsku búðarinnar sem rekin var í Kringlunni voru í gær dæmdir í Héraðsdómi Reykjavíkur til að greiða þrotabúi búðarinnar um tíu milljónir króna. Um var að ræða greiðslur frá búðinni til eigendanna, sem þær skýrðu m.a. sem vangoldin laun. Viðskipti innlent 9. desember 2020 11:00
Áfrýjar dómi sem gæti kostað ríkið milljarða Íslensk stjórnvöld hafa ákveðið að áfrýja dómi í máli hjóna sem höfðu betur í dómsmáli gegn Íbúðarlánasjóði. Ríkið segir að þetta sé gert í ljósi þeirra verulegu hagsmuna sem undir séu. Viðskipti innlent 8. desember 2020 14:15
Bílstjórar kröfðust milljóna en þurfa í staðinn að borga 700 þúsund hvor Héraðsdómur Vestfjarða sýknaði í síðustu viku fyrirtæki á Vestfjörðum af kröfum tveggja fyrrverandi starfsmanna um vangoldin laun. Mennirnir kröfðust milljóna frá fyrirtækinu en sátu á endanum uppi með hundruð þúsunda í málskostnað. Innlent 7. desember 2020 23:23
Stjórnendur Zuism ákærðir fyrir fjársvik og peningaþvætti Tveir bræður sem stýra trúfélaginu Zuism hafa verið ákærðir fyrir fjársvik og peningaþvætti. Trúfélagið var á tímabili eitt það fjölmennasta á landinu og hefur þegið tugi milljóna króna úr ríkissjóði í formi sóknargjalda. Innlent 7. desember 2020 11:23
Vill að ríkissaksóknari bregðist við dómi MDE Vilhjálmur H. Vilhjálmsson lögmaður vill að ríkissaksóknari taki til skoðunar dóma sem komu til kasta fjögurra dómara við Landsrétt í kjölfar niðurstöðu Mannréttindadómstóls Evrópu um að þeir hefðu verið ólöglega skipaðir. Hann gagnrýnir aðgerðarleysi stjórnvalda og þá afstöðu að niðurstaðan hafi ekki áhrif á mál sem þegar hafi fallið. Innlent 6. desember 2020 19:01
Svala stendur þétt við bak kærastans Svala Björgvinsdóttir söngkona segir kærasta sinn eina yndislegustu manneskju sem hún þekki. Þetta segir Svala á Instagram-síðu sinni þar sem hún bregst við fréttaflutningi af ákæru á hendur kærastanum Kristjáni Einari Sigurbjörnssyni. Lífið 6. desember 2020 17:34
Ólögmætt uppgreiðslugjald Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt uppgreiðslugjald lánþega á lánum sem tekin voru hjá Íbúðalánasjóði (ÍLS) á árunum 2005-13 ólögleg. ÍLS var óheimilt að krefja lánþega um greiðslu uppgreiðslugjalda þegar þeir greiddu lán sín upp. Skoðun 6. desember 2020 10:01
Fögnuðu óvæntum sigri í máli sem gæti kostað ríkið milljarða Kona sem lagði Íbúðalánasjóð í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær segist ekki hafa átt von á niðurstöðunni, en dómurinn er sagður marka tímamót og gæti kostað ríkissjóð á annan tug milljarða. Dómurinn sé sigur fyrir lántakendur. Viðskipti innlent 5. desember 2020 12:42
Sitja uppi með tífaldan málskostnað eftir að hafa neitað að greiða 80 þúsund króna skuld Eignarhaldsfélagið Summus hefur verið dæmt til að greiða tryggingarfélaginu Verði 80 þúsund króna skuld sem félögin tókust á um fyrir dómi. Summus þarf einnig að greiða Verði 800 þúsund krónur í málskostnað, tífalda þá upphæð sem deilt var um. Viðskipti innlent 5. desember 2020 09:30
Sagði 497 símtöl á 23 dögum tengjast „bílaviðskiptum“ Héraðsdómur Reykjavíkur taldi félagana Matthías Jón Karlsson og Vygantas Visinskis ekki eiga sér neinar málsbætur í stórfelldu fíkniefnamáli, sem þeir voru dæmdir í fjögurra og tæplega sex ára fangelsi fyrir í dag. Matthías og Vygantas hringdust á 497 sinnum á 23 daga tímabili í vor en sá síðarnefndi sagði að símtölin hefðu tengst „bílaviðskiptum.“ Innlent 4. desember 2020 22:09
„Í dag er fallinn tímamótadómur“ Ríkissjóður gæti þurft að greiða lántakendum hjá Íbúðalánasjóði (nú ÍL-sjóðs) á annan tug milljarða eftir að Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi uppgreiðsluþóknun sjóðsins ólögmæta í dag. Lögmaður segir þetta tímamótadóm og mikinn sigur fyrir lántakendur. Viðskipti innlent 4. desember 2020 18:30
Sýknaður af brotum gegn dóttur fyrrverandi sambýliskonu Landsréttur staðfesti sýknu karlmanns sem var ákærður fyrir að misnota dóttur fyrrverandi sambýliskonu sinnar kynferðislega þegar hún var níu til ellefu ára gömul í dag. Innlent 4. desember 2020 16:46
Sakfelldur fyrir manndráp af gáleysi en heldur ökuréttindum fyrir mistök Landsréttur staðfesti í dag dóm yfir karlmanni fyrir manndráp af gáleysi í október 2018. Var hann sakfelldur fyrir að hafa ekið bíl sínum yfir á rangan vegarhelming á Reykjanesbraut í Hafnarfirði með þeim afleiðingum að árekstur varð við bíl sem kom úr gagnstæðri átt. Innlent 4. desember 2020 16:31
Gagnaversþjófur fékk tæplega sex ára dóm í dópmáli Matthías Jón Karlsson, sem hlaut dóm í Bitcoin-málinu svokallaða, hefur verið dæmdur í fimm ára og níu mánaða fangelsi fyrir stórfellda fíkniefnaframleiðslu. Vygantas Viskinskis hlaut fjögurra ára dóm í málinu. Dómur var kveðinn upp í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. Innlent 4. desember 2020 16:07
Studdust við staðsetningarforrit og leituðu án leyfis í herbergi hælisleitenda Tekist verður á um það í dag í Héraðsdómi Reykjavíkur hversu háa fjárhæð tveir hælisleitendur fá í skaðabætur frá ríkinu vegna fjölmennrar leitar lögreglu að síma sem grunur var um að stolið hefði verið af barni í Reykjanesbæ. Innlent 4. desember 2020 09:01
Fagnar því að neytandinn hafi haft sigur Formaður Neytendasamtakanna fagnar dómi Héraðsdóms Reykjavíkur í máli konu, sem neitað var um að fá hægindastól afhentan sem hún greiddi að stærstum hluta fyrir með inneignarnótum og gjafabréfi. Hann segir málið ódæmigert; flest mál sem tengist inneignarnótum og rati inn á borð samtakanna varði gildistíma. Viðskipti innlent 3. desember 2020 21:21
Fær loksins milljón króna hægindastólinn sem hún keypti með inneignarnótum Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi Pennann ehf. í síðustu viku til að afhenda konu milljón króna hægindastól, sem hún greiddi nær alfarið fyrir með inneignarnótum og gjafabréfi. Penninn vildi ekki afhenda konunni stólinn og bar því fyrir sig að konan hefði fengið inneignarnóturnar með „óeðlilegum hætti“ á skiptibókamarkaði, auk þess sem þær mætti ekki nota til húsgagnakaupa. Neytendur 3. desember 2020 18:13
Segja af og frá að lögregla leiti Samherjamanna Í yfirlýsingu frá Samherja segir að ekkert sé hæft í fréttaflutningi um að namibíska lögreglan leiti starfsmanna fyrirtækisins. Innlent 3. desember 2020 16:05
Þinghald verður opið í Bræðraborgarstígsmálinu Þinghald verður opið í máli Marek Moszczynski, karlmanns á sjötugsaldri sem ákærður er fyrir manndráp og íkveikju á Bræðraborgarstíg í sumar. Svo segir í úrskurði Landsréttar sem staðfesti niðurstöðu Héraðsdóms Reykjavíkur þess efnis. Verjandi Mareks hafði farið fram á að þinghaldi yrði lokað þegar hann og geðlæknar gæfu skýrslu. Innlent 3. desember 2020 15:36
Dómsmálaráðuneytið þarf frí frá Sjálfstæðisflokknum Helga Vala Helgadóttir, þingman Samfylkingarinnar, telur afar mikilvægt að dómsmálaráðuneytið fái frí frá Sjálfstæðisflokknum næstu kjörtímabil. Skoðun 3. desember 2020 14:43
Ákærður fyrir að stefna lífi starfsmanna í hættu með húsnæði Eigandi starfsmannaleigunnar 2findjob ehf. hefur verið ákærður fyrir hættubrot og brot gegn lögum um brunavarnir með því að hafa látið starfsmenn leigunnar búa í iðnaðarhúsnæði í Reykjavík án tilskilinna leyfa og fullnægjandi brunavarna. Hann er sakaður um að hafa stofnað lífi og heilsu starfsmannanna í háska í ábataskyni. Innlent 3. desember 2020 10:54
Séra Skírnir stefnir Agnesi og þjóðkirkjunni Fyrrverandi héraðsprestur á Suðurlandi hefur stefnt biskupi Íslands og þjóðkirkjunni og fer fram á tæplega tíu milljónir króna í miska- og skaðabætur. Hann telur þau bera ábyrgð á skaða sem hann hafi hlotið vegna færslu í embætti árið 2015, í kjölfar kvörtunar hans vegna eineltis, og svo brottrekstri úr kirkjunni fyrr á árinu. Innlent 2. desember 2020 16:48
Jón Páll áfrýjar nauðgunardómnum Jón Páll Eyjólfsson, fyrrverandi leikhússtjóri Leikfélags Akureyrar, ætlar að áfrýja skilorðsbundnum fangelsisdómi fyrir nauðgun sem hann hlaut í Héraðsdómi Reykjavíkur á mánudag. Þetta segir Björgvin Jónsson, lögmaður Jóns Páls, í samtali við Ríkisútvarpið. Innlent 1. desember 2020 23:55
Beit lögreglumann eftir að upp úr sauð í pottapartýi Héraðsdómur Reykjaness dæmdi í gær konu í tveggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að bíta lögreglumann í höndina. Lögregla var kölluð til í útskriftarveislu konunnar, sem varð að „pottapartýi“ líkt og lýst er í dómi, hvar upp úr sauð með fyrrgreindum afleiðingum. Innlent 1. desember 2020 21:42
Lýsti í afmæli sínu hvernig afi léti sig strjúka „upp og niður“ Karlmaður hefur verið dæmdur í tveggja og hálfs árs fangelsi fyrir að brjóta gegn stúlkubarni sem leit á hann sem afa sinn. Þá var hann sömuleiðis dæmdur fyrir vörslu og áhorf á myndir sem sýndu börn á kynferðislegan hátt. Hann var dæmdur til að greiða stúlkunni 1,5 milljónir króna í miskabætur. Dómur var kveðinn upp í Héraðsdómi Reykjaness í gær. Innlent 1. desember 2020 15:36
Ríkið dæmt til að greiða Elko 18,7 milljónir Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt íslenska ríkið til að greiða Elko hf, rekstraraðila raftækjaverslana Elko, 18,7 milljónir vegna ólögmætrar gjaldtöku ríkisins í tengslum við innflutning á raftækjum. Viðskipti innlent 1. desember 2020 14:52
Sigríður segir dóm Mannréttindadómstólsins engu breyta Sigríður Andersen segir dóm yfirdeildar Mannréttindadómstólsins ekki koma á óvart. Hún hafi sinnt rannsóknarskyldu sinni og dómur Hæstaréttar um hæfni dómara við Landsrétt gildi. Ríkinu sé ekki gerð skaðabótaskylda með niðursötu yfirdeildarinnar og því þurfi ekki að taka upp mál fyrir Landsrétti. Innlent 1. desember 2020 12:22
Fékk „hálfgert taugaáfall“ nóttina eftir sautján tíma frelsissviptingu og barsmíðar Karlmaður á fertugsaldri, sem ákærður er fyrir að hafa ráðist á leigusala sinn í júní, er einnig ákærður fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás og frelsissviptingu gegn félaga sínum í íbúð í Bríetartúni í Reykjavík í apríl. Félaginn lýsti því fyrir dómi í síðustu viku að maðurinn hefði bundið sig, lamið með kúbeini og haldið honum föngnum í íbúðinni í rúman hálfan sólarhring. Innlent 30. nóvember 2020 21:37
Brotaþolar geti fylgst með máli sínu í stafrænni gátt Unnið er að uppsetningu rafrænnar gáttar þar sem þolendum kynferðisbrota verður gert kleift að fylgjast með framgangi mála sinna þannig að þeir geti fylgst með því hvar mál þeirra er statt í ferlinu. Innlent 30. nóvember 2020 21:13