Fangelsisdómur Þorsteins vegna kynferðisbrota gegn ungum pilti staðfestur Landsréttur staðfest í dag dóm Héraðsdóms Reykjaness gegn Þorsteini Halldórssyni frá 2020 þar sem honum var gerður upp hegningarauki upp á þrjú og hálft ár fyrir kynferðisbrot gegn ungum pilti. Innlent 8. apríl 2022 16:13
Sýknaðir af ákæru um fjársvik og peningaþvætti í tengslum við Zuism Bræðurnir Ágúst Arnar og Einar Ágústssynir voru í dag sýknaðir af ákæru um að hafa stundað fjársvik og peningaþvætti í tengslum við trúfélagið Zuism. Þá var kröfu ákæruvaldsins um upptöku á eignum þeirra hafnað. Innlent 8. apríl 2022 15:04
Fyrrverandi skrifstofustjóri læknaráðs Landspítala ákærður fyrir fjárdrátt Örn Þ. Þorvarðarson fyrrverandi skrifstofustjóri læknaráðs Landspítalans hefur verið ákærður fyrir fjárdrátt. Hann er sakaður um að hafa dregið sér rúma 4,1 milljón króna úr starfs- og gjafasjóði læknráðs frá 2012 til 2016. Innlent 7. apríl 2022 19:51
Réðst á konu sem hafði lagt bíl sínum fyrir aftan hans Karlmaður á höfuðborgarsvæðinu hefur hlotið dóm fyrir að ráðast á konu sem hafði lagt bíl sínum fyrir aftan bíl mannsins, sem fyrir vikið komst ekki leiðar sinnar. Karlinn hafði lagt í stæði konunnar en merkingar sáust ekki því snjór var yfir öllu. Innlent 7. apríl 2022 14:43
Lést áður en stóri sigurinn vannst í Hæstarétti „Þetta var rosalega erfitt fyrir hana. Hún beið lengi,“ segir Þuríður Harpa Sigurðardóttir, formaður Öryrkjabandalags Íslands um konu sem lagði Tryggingastofnun ríkisins fyrir öllum dómstigum í deilu um skerðingu á sérstakri framfærsluuppbót vegna búsetu erlendis. Innlent 7. apríl 2022 12:26
Eigandi Nýju vínbúðarinnar dæmdur fyrir skattsvik Sverrir Einar Eiríksson, eigandi Nýju vínbúðarinnar, hefur verið dæmdur í tíu mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir skattsvik í tengslum við rekstur þriggja einkahlutafélaga. Viðskipti innlent 7. apríl 2022 11:41
Fá milljónir frá ríkinu vegna ofrukkunar á eftirlitsgjaldi á raftæki Landsréttur hefur dæmt íslenska ríkið til að endurgreiða ELKO tæpar nítján milljónir króna, auk vaxta og dráttarvaxta, vegna of hárrar skattainnheimtu vegna sérstaks eftirlitsgjalds á raftæki þar sem ekki hafði verið sýnt fram á eftirlitsvinna hafi verið í samræmi við gjöld. Viðskipti innlent 7. apríl 2022 10:34
Magnús segir þungbært að sjá greiddar bætur til fólks sem kom fjórmenningunum í fangelsi Magnús Leópoldsson, einn þeirra fjögurra sem sat að ósekju rúma hundrað daga í gæsluvarðhaldi í tengslum við rannsókn á Guðmundar- og Geirfinnsmálum, segir það þungbært fyrir sig og félaga sína horfa upp á fólkið sem dró þá saklausa inn í málið nú fá greiddar „himinháar bætur, án þess að fyrir liggi niðurstaða Hæstaréttar um hvort og hvað þá hvaða áhrif sök þeirra eigi að hafa á bótagreiðslur.“ Innlent 7. apríl 2022 07:51
Lífeyrisþegi lagði Tryggingastofnun í Hæstarétti Tryggingastofnun var óheimilt að skerða greiðslur á sérstakri framfærslu uppbót, vegna búsetu erlendis. Þetta er niðurstaða Hæstaréttar sem kvað upp dóm sinn í málinu í dag. Innlent 6. apríl 2022 16:00
Birti vændisauglýsingu í nafni fyrrverandi sambýliskonu og hótaði henni lífláti Héraðsdómur Reykjaness hefur dæmt karlmann í tveggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir stórfelldar ærumeiðingar og hótanir í garð fyrrverandi sambýliskonu sinna. Maðurinn útbjó og birti meðal annars vændisauglýsingar í nafni konunnar, þar sem símanúmer og heimilisfang hennar kom fram, auk þess sem hann hótaði henni lífláti og að hann myndi eyðileggja líf hennar. Innlent 6. apríl 2022 10:34
Jón Páll krafði Víkinga um 26 milljónir en þarf sjálfur að borga Knattspyrnudeild Víkings Ólafsvík hefur verið sýknuð í Héraðsdómi Reykjavíkur af kröfu þjálfarans Jóns Páls Pálmasonar sem krafði félagið um 26 milljónir króna auk dráttarvaxta. Íslenski boltinn 6. apríl 2022 08:00
Óléttri konu gert að bera vitni fyrir framan meintan ofbeldismann sinn Konu, sem komin er minnst sjö mánuði á leið, hefur verið gert að bera vitni fyrir héraðsdómi með meintan brotamann sinn í salnum. Maðurinn er sakaður um stórfelld brot í nánu sambandi gegn þáverandi sambýliskonu sinni, sem hann hefur áður sætt nálgunarbanni fyrir. Innlent 5. apríl 2022 18:45
Kannabisræktandi dæmdur fyrir ofbeldi gegn kærasta Kona á höfuðborgarsvæðinu hefur verið dæmd í þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir kannabisræktun og ofbeldi í nánu sambandi. Konan játaði brot sín fyrir dómi. Innlent 5. apríl 2022 14:50
Mun Hæstiréttur verja lögbundin mannréttindi fatlaðs fólks? Klukkan níu næstkomandi miðvikudagsmorgun fer fram málflutningur í Hæstarétti í dómsmáli sem skiptir mannréttindi fatlaðs fólks á Íslandi gríðarlegu máli. Málið snýst í stuttu máli um það hvort sveitarfélög hafi heimild til að setja kvóta á mannréttindi fatlaðs fólks. Skoðun 5. apríl 2022 11:30
Fær 21 milljón frá Sjóvá eftir bílslys Sjóvá hefur verið dæmt að greiða konu, sem lenti í árekstri árið 2017, 21 milljón króna í bætur. Konan varð fyrir töluverðu líkamstjóni, varanlegur miski hennar metinn 20 stig og varanleg örorka hennar 15 prósent. Innlent 4. apríl 2022 21:01
Fær bætur eftir að hafa runnið til í bleytu með grautarpott Tryggingafélaginu Sjóvá hefur verið dæmt að greiða konu þrjár milljónir króna í bætur eftir að hún slasaðist á vinnustað sínum árið 2016. Konan hafði verið að reiða fram pott af hafragraut þegar hún rann til á eldhúsgólfi vinnustaðarins með þeim afleiðingum að hún olnbogabrotnaði. Innlent 4. apríl 2022 17:22
Landsréttur klofinn í bótamáli vegna blöðruboltaslyss leikskólakennara Landsréttur hefur staðfest dóm héraðsdóms í máli leikskólakennara sem hlaut alvarlega áverka í september 2016 en ágreiningur var milli aðila málsins um hvort slysið hafi átt sér stað í vinnutíma eða frítíma. Tveir af þremur dómurum við Landsrétt töldu að ekki væri um vinnuslys að ræða en einn skilaði sératkvæði þar sem hann taldi að fallast ætti á kröfu konunnar. Innlent 4. apríl 2022 12:20
Mátti ekki afsala verðmætum eignum til félags sonar síns Samningum um afsal þriggja verðmætra eigna frá Karli Wernerssyni til félags sem nú er í eigu sonar hans hefur verið rift af dómstólum. Fyrirtækið þarf að skila einbýlishúsi á Ítalíu sem er hundraða milljóna króna virði og greiða tugmilljóna bætur. Viðskipti innlent 3. apríl 2022 20:23
Sýknaður af ákæru um nauðgun vegna ósamræmis í framburði brotaþola Karlmaður á þrítugsaldri var í gær sýknaður af ákæru um að hafa nauðgað konu sem hann kynntist á skemmtistaðnum B5 árið 2019. Í niðurstöðum héraðsdóms segir að ekki hafi önnur niðurstaða verið tæk en að sýkna manninn vegna þess að framburður hans var talinn trúverðugari en meints brotaþola. Innlent 2. apríl 2022 19:39
Erla hefur farið fram á endurupptöku Erla Bolladóttir, einn sakborninga í Guðmundar- og Geirfinnsmálinu, hefur farið fram á endurupptöku máls síns. Verði fallist á endurupptökubeiðnina verður mál hennar flutt að nýju í Hæstarétti. Þetta staðfestir Ragnar Aðalsteinsson lögmaður Erlu í samtali við fréttastofu. Innlent 2. apríl 2022 13:32
Hornafjörður ekki bótaskyldur vegna meints tjóns upp á hundruð milljóna Landsréttur vísaði hluta krafna Ice Lagoon ehf. á hendur Hornafirði frá dómi í dag og sýknaði bæjarfélagið af öðrum kröfum. Félagið taldi Hornafjörð hafa valdið sér tjóni upp á hundruði milljóna króna með ólögmætum stjórnvaldsákvörðunum. Innlent 1. apríl 2022 21:56
Gæsluvarðhald vegna gruns um brot gegn sautján stúlkum framlengt Landsréttur hefur staðfest úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur þess efnis að karlmaður á sjötugsaldri skuli sæta gæsluvarðhaldi til 25. apríl vegna gruns um að hann hafi brotið kynferðislega gegn sautján stúlkum. Innlent 1. apríl 2022 17:29
Hyggst una dómi í bótamáli barna Sævars Ciesielski Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra hyggst una dómi Héraðsdóms Reykjavíkur í bótamáli tveggja barna Sævars Marinós Ciesielski sem var á meðal sakborninga í Guðmundar- og Geirfinnsmálunum. Innlent 1. apríl 2022 07:24
ÁTVR unir niðurstöðu héraðsdóms sem vísaði máli gegn netverslunum frá dómi ÁTVR hefur ákveðið að áfrýja ekki niðurstöðu héraðsdóms Reykjavíkur um frávísun mála sem höfðuð voru í þeim tilgangi að stöðva sölu áfengis í vefverslunum hér á landi. Viðskipti innlent 31. mars 2022 14:49
Þyngdi dóm vegna árásar á fyrrverandi kærustu Hæstiréttur þyngdi í gær dóm yfir manni sem hafði veist að fyrrverandi kærustu á heimili hennar í maí 2018, ýtt henni þannig að hún féll niður stiga, tekið í hár hennar, skallað hana í höfuðið og tekið hana kverkataki. Innlent 31. mars 2022 07:38
Beiðni Róberts og Árna um endurupptöku á 640 milljóna dómsmáli hafnað Endurupptökudómur hefur hafnað beiðni Árna Harðarsonar og Róberts Wessman um endurupptöku á dómi Hæstaréttar frá febrúar 2018. Þar voru þeir ásamt Magnúsi Jaroslav Magnússyni dæmdir til að greiða Matthíasi H. Johannessen, fyrrverandi viðskiptafélaga þeirra, 640 milljónir króna auk vaxta í skaðabætur fyrir að hafa hlunnfarið hann í viðskiptum með óbeinan eignarhlut í lyfjafyrirtækinu Alvogen. Viðskipti innlent 29. mars 2022 14:29
Reynir kærir Róbert Wessman fyrir yfirhylmingu Reynir Traustason ritstjóri Mannlífs hefur kært forstjóra Alvogen, Róbert Wessman, til lögreglu. Reynir staðfestir þetta í stuttu samtali við fréttastofu. Innlent 28. mars 2022 15:28
Sigmundi sárnaði glósur og háðstónn í umfjöllun um fjárkúgunarmálið Sumarið 2015 barst Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni þá forsætisráðherra landsins bréf þar sem því var hótað að óþægilegar upplýsingar um hann myndu birtast um hann ef hann borgaði ekki átta milljónir króna. Innlent 28. mars 2022 11:54
Fjögurra ára fangelsi fyrir stórfellt fíkniefnasmygl með Norrænu Karlmaður hefur verið dæmdur í fjögurra ára fangelsi fyrir stórfellt fíkniefnasmygl með Norrænu. Maðurinn faldi rúma ellefu lítra af amfetamínbasa í plastflöskum í bensíntanki bifreiðar og var gripinn ásamt samverkamanni við tollskoðun. Innlent 26. mars 2022 16:43
Sýknaður eftir að myndband lögreglu fannst ekki Maður var sýknaður af ákæru fyrir að hafa ekið án ökuréttinda eftir að sönnunargögn lögreglu fóru forgörðum. Myndbandsupptaka lögreglu sem átti að varpa ljósi á málið fannst hvergi við málsmeðferðina og héraðsdómari taldi að vafa, vegna annmarka á rannsókninni, bæri að skýra ákærða í hag. Innlent 26. mars 2022 13:54