Segir móðgun við heilbrigða skynsemi að draga orð sín til baka Í morgun var aðalmeðferð í meiðyrðamáli blaðamanna Heimildarinnar, áður Kjarnans, þeirra Þórðar Snæs Júlíussonar og Arnars Þórs Ingólfssonar á hendur Páli Vilhjálmssyni. Innlent 27. febrúar 2023 15:31
„Ég er orðinn ýmsu vanur en þetta sló mig verulega“ Þórður Snær Júlíusson ritstjóri Heimildarinnar, áður Kjarnans, sagðist fyrir dómi í morgun aldrei hafa hitt Pál Steingrímsson skipsstjóra, aldrei stolið af honum síma, né hefði hann átt beinan eða óbeinan þátt í að byrla honum né nokkrum manni. Þá sagði hann skýrslu réttarmeinafræðings sýna fram á að Páli hefði í raun aldrei verið byrlað. Verjandi Páls Vilhjálmssonar sagði málið ekki flókið og að það snérist um tjáningarfrelsi. Innlent 27. febrúar 2023 14:36
Óþægilegt að sitja undir ásökunum um þjófnað og byrlun Arnar Þór Ingólfsson, blaðamaður á Heimildinni, áður Kjarnanum, segist hafa verið mjög hissa þegar Páll Vilhjálmsson bloggari og kennari sakaði hann og kollega hans um að hafa byrlað skipstjóra Samherja og stolið af honum síma til að geta skrifað fréttir. Páll mætti ekki í dómsal í morgun. Innlent 27. febrúar 2023 11:16
„Það þarf að bregðast hratt við“ Forseti ASÍ segir stefnu sambandsins gegn Samtökum atvinnulífsins vegna boðaðs verkbanns varða verkalýðshreyfinguna í heild en þau höfða málið fyrir hönd Eflingar. Hann býst við niðurstöðu fyrir fimmtudag, þegar verkbannið á að hefjast. Málið verður þingfest síðdegis á morgun og mun dómurinn skera úr um hvort boðunin hafi verið með lögmætum hætti. Framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins er ósammála ASÍ og segir að þau muni taka til varna. Innlent 26. febrúar 2023 12:22
Réðst á samfanga og skallaði fangavörð á Hólmsheiði Gabríel Douane neitaði að svara flestum spurningum saksóknara og dómara varðandi tvær líkamsárásir sem hann er ákærður fyrir innan veggja fangelsisins á Hólmsheiði. Annars vegar er um að ræða alvarlega líkamsárás gagnvart samfanga sínum og hins vegar árás á fangavörð. Eftir að myndbandsupptökur af atvikunum voru spilaðar í dómsal tjáði hann sig lítillega. Innlent 26. febrúar 2023 07:01
„Ég upplifi það svo sterkt hvað ég var niðurlægð“ Kona sem lagði fram kæru á hendur annarri konu fyrir kynferðisbrot segist hafa fengið áfall þegar gerandinn var sýknuð í Héraðsdómi Reykjaness í byrjun þessa mánaðar. Þrátt fyrir að játning hafi legið fyrir í málinu ákvað héraðsdómur að sýkna konuna á þeim grundvelli að athæfi hennar gat ekki talist „lostugt.“ Innlent 25. febrúar 2023 09:01
„Ég held að það sendi boltann til löggjafans“ Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segir túlkun Landsréttar á vinnulöggjöf í tengslum við miðlunartillögu ríkissáttasemjara nýja af nálinni. Hún segir brýnt að endurskoða löggjöf og eyða óvissu. Innlent 24. febrúar 2023 21:36
Móðir í fangelsi eftir forsjárdeilu Móðir tveggja barna hefur verið dæmd í átta mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að hafa farið með börn sín úr landi, haldið þeim þar í tvö ár, og þar með svipt föður forsjá barnanna. Innlent 24. febrúar 2023 20:16
Umdeildur dómur fyrir árás við Club 203 þyngdur verulega Daniel Zambrana Aquilar, 24 ára karlmaður, var í Landsrétti í dag dæmdur í fimm og hálfs árs fangelsi fyrir tilraun til manndráps. Daniel hafði áður verið dæmdur í tveggja og hálfs árs fangelsi í héraði fyrir alvarlega stunguárás. Daniel var dæmdur til að greiða fórnarlambinu 1,5 milljón króna í miskabætur. Innlent 24. febrúar 2023 14:30
Kærir hópfund Lindarhvolsmanna til Lögmannafélagsins Sigurður Valtýsson, forsvarsmaður Frigusar, hefur sent inn kvörtun vegna framferðis Steinars Þórs Guðgeirssonar verjanda Lindarhvols og ríkisins til Lögmannafélags Íslands (LMFÍ). Innlent 24. febrúar 2023 11:48
„Hvað hefur ákæruvaldið að fela sem má ekki líta dagsins ljós?“ Vilhjálmur H. Vilhjálmsson, verjandi hjúkrunarfræðings sem er ákærður fyrir að hafa svipt sjúkling lífi í ágúst 2021 með því að hafa þröngvað ofan í hann innihaldi úr tveimur flöskum af næringardrykk, hefur óskað eftir að fá afhent bréf sem lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu sendi til héraðssaksóknara vegna málsins síðasta vor. Innlent 24. febrúar 2023 10:54
Læstur sími gerir lögreglunni erfitt fyrir Karlmaður sem stöðvaður var í Leifsstöð með tæpar fjórtán þúsund evrur meðferðis hefur verið úrskurðaður í áframhaldandi gæsluvarðhald. Lögregla fékk heimild til að haldleggja síma mannsins sem neitar að gefa lögreglunni lykilorðið. Innlent 23. febrúar 2023 18:59
Móður hótað og vitni óttaslegin í spennuþrungnu andrúmslofti Andrúmsloftið var þrungið spennu í aðalsal Héraðsdóms Reykjavíkur á mánudag þegar sakborningar í Borgarholtsskólamálinu skýrðu frá sínum þætti í máli sem vakti mikinn óhug í ársbyrjun 2021. Hótanir hafa gengið á víxl í aðdraganda málsins og bar á því að vitni vildu ekki koma fyrir dóminn vegna þess. Þá liggja einnig fyrir gögn um hótanir á milli foreldra ákærðu. Innlent 23. febrúar 2023 10:30
Sló son sinn ítrekað með belti Héraðsdómur Reykjaness dæmdi karlmann í síðustu viku í fimm mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir brot í nánu sambandi með því að beita son sinn ítrekuðum og endurteknum líkamlegum refsingum. Maðurinn sló son sinn með belti, ýmist á bak, rass, maga, eða iljar hans. Innlent 23. febrúar 2023 08:44
Staðfestu þriggja ára dóm fyrir að nauðga fyrrverandi kærustu Hæstiréttur hefur staðfest niðurstöðu Landsréttar í máli manns sem dæmdur var í þriggja ára fangelsi fyrir að hafa nauðgað fyrrverandi kærustu sinni. Héraðsdómur hafði sýknað manninn vegna sönnunarskorts. Innlent 23. febrúar 2023 06:16
Sigur Atla á Mannlífi sé ekki ástæða til að skála í freyðivíni Mannlífi hefur verið gert að greiða bæði Atla Viðari Þorsteinssyni plötusnúði og Morgunblaðinu miskabætur vegna fréttar sem unnin var upp úr minningargrein Atla Viðars um bróður sinn. Ritstjóri Mannlífs segir dóminn beina árás á tjáningarfrelsi fjölmiðla í landinu og lögmaður hans segir dóminn vekja upp spurningar um vinnubrögð fjölmiðla framvegis. Innlent 22. febrúar 2023 21:46
Boðið flug og uppihald fyrir að smygla tveimur kílóum af kókaíni Héraðsdómur Reykjaness hefur dæmt karlmann á fertugsaldri í tveggja ára fangelsi fyrir smygl á rúmum tveimur kílóum af kókaíni til landsins. Innlent 22. febrúar 2023 10:58
Greiða Mogganum og Atla fyrir endurbirtingar á minningargreinum Reyni Traustasyni og útgáfufélaginu Sólartúni ehf. hefur verið gert að greiða Morgunblaðinu fimmtíu þúsund krónur fyrir endurbirtingar á minningargreinum blaðsins. Þá þurfa Reynir og Sólartún að greiða bróður manns sem Mannlíf birti minningargrein um upp úr Morgunblaðinu þrjú hundruð þúsund krónur. Innlent 22. febrúar 2023 09:30
Skilorðsbundið fangelsi fyrir brot gegn blygðunarsemi Héraðsdómur Norðurlands eystra dæmdi fyrr í þessum mánuði tvítugan karlmann í níu mánaða fangelsi, skilorðsbundið til tveggja ára, fyrir brot gegn blygðunarsemi stelpu sumarið 2021. Maðurinn var sakfelldur fyrir að hafa fengið sáðlát yfir andlit konunnar gegn hennar vilja. Maðurinn var nítján ára þegar atvikið átti sér stað en stúlkan nýorðin sextán ára. Innlent 22. febrúar 2023 08:31
Svara fyrir vopnaða árás í Borgarholtsskóla sem olli miklum óhug Aðalmeðferð í máli fimm karlmanna sem ákærðir eru fyrir vopnuð slagsmál í Borgarholtsskóla þann 13. janúar 2021 hófst á mánudag og lýkur með málflutningi verjanda á morgun. Vitnaleiðslum lýkur í dag, en sakborningarnir eru allir ákærðir fyrir brot gegn vopnalögum. Innlent 22. febrúar 2023 08:00
Réðst á mann vegna „uppsafnaðs viðbjóðs og reiði“ Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt karlmann í 60 daga fangelsi fyrir líkamsárás. Innlent 21. febrúar 2023 13:13
Stefna Ólafar Helgu þingfest síðdegis Lögmaður Ólafar Helgu Adolfsdóttur, ritara Eflingar, segist vonast til þess að félagsdómur hlýði á málflutning um stefnu hennar vegna miðlunartillögu ríkissáttasemjara fyrir helgi. Stefna hennar um að Eflinarfólk fái að greiða atkvæði um tillöguna verður þingfest í dag. Innlent 21. febrúar 2023 10:25
Segir fjármálaráðuneytið hafa átt við umbeðnar upplýsingar Sigurður Valtýsson, fyrirsvarsmaður Frigusar sem stendur í málaferlum við Lindarhvol og ríkið, hefur reynt að toga upplýsingar úr fjármálaráðuneytinu sem streitist á móti sem mest það má. Innlent 21. febrúar 2023 10:00
Notaði debetkort húsfélagsins í eigin þágu Karlmaður á fertugsaldri var á dögunum dæmdur til mánaðar fangelsisvistar fyrir fjárdrátt úr húsfélagi á Akureyri. Fresta skal fullnustu refsingarinnar og hún falla niður að linum tveimur árum. Innlent 21. febrúar 2023 09:16
Sneri við sakfellingu stjúpmóður fyrir mansal Landsréttur sneri á föstudag löngum fangelsisdómi héraðsdóms yfir konu fyrir mansal með því að hafa neytt þrjú stjúpbörn sín til nauðungarvinnu. Málið var það fyrsta í rúman áratug þar sem sakfellt var fyrir mansal. Innlent 20. febrúar 2023 22:12
Höfðar mál til að Eflingarfólk fái að kjósa um tillöguna Ólöf Helga Adolfsdóttir, ritari stjórnar Eflingar, hefur stefnt ASÍ, Samtökum atvinnulífsins og íslenska ríkinu fyrir félagsdómi til þess að fá að kjósa um miðlunartillögu ríkissáttasemjara. Hún gerir kröfu um að atkvæðagreiðslan fari fram ekki síðar en á fimmtudag. Innlent 20. febrúar 2023 10:36
Þarf að greiða um hálfan milljarð í skatt eftir rannsókn sem hófst með Panama-skjölunum Sigurður Gísli Björnsson, fyrrverandi eigandi og stjórnandi Sæmarks, þarf að greiða tæpan hálfan milljarð í tekjuskatt og útsvar, vegna áranna 2010-2016, í máli sem nefnt hefur verið sem eitt af umfangsmestu skattalagabrotum sem upp hafi komið hér á landi. Yfirskattanefnd telur ljóst að Sigurður Gísli hafi vantalið tekjur frá tveimur panamískum-félögum í hans eigu upp á rúmlega einn milljarð króna á umræddum árum. Mál hans er til rannsóknar hjá héraðssaksóknara. Viðskipti innlent 19. febrúar 2023 12:00
Skaðabætur vegna veikinda sem mengun í Járnblendinu orsakaði Jónas Árnason hlaut nýverið bætur vegna veikinda, óafturkræfra lungnaskemmda, sem talið er að megi rekja beint til mengunar og óbærilegra vinnuaðstæðna í Járnblendinu á Grundartanga. Innlent 18. febrúar 2023 07:01
Fangelsisdómur fyrir brot gegn vistmanni sambýlis staðfestur Landsréttur staðfesti í dag sex mánaða langan fangelsisdóm yfir manni sem tók myndskeið af fötluðum vistmanni sambýlis handleika ber kynfæri sín. Maðurinn, sem starfaði á sambýlinu, var sömuleiðis dæmdur fyrir hótun gagnvart samstarfsmanni sem hann sendi myndskeiðið. Innlent 17. febrúar 2023 20:12
Hvalaskoðunarfyrirtæki sýknað af kröfu hafnarsjóðs Norðurþings Landsréttur sneri við dómi Héraðsdóms Norðurlands eystra og sýknaði hvalaskoðunarfyrirtækið Gentle giants af kröfu hafnarsjóðs Norðurþings vegna vangoldinna farþegagjalda. Deilur um gjöldin ná allt aftur til ársins 2008. Innlent 17. febrúar 2023 14:15