Krefst þriggja ára fangelsisdóms Saksóknari í málinu gegn Jónasi Garðarssyni, vegna strands skemmtibátsins Hörpunnar, fer fram á að Jónas verði dæmdur í þriggja ára óskilorðsbundið fangelsi. Bótakröfur sem settar hafa verið fram í málinu nema hátt í 20 milljónum króna. Innlent 8. maí 2006 17:34
Segist ekki hafa verið við stýri Jónas Garðarsson, formaður Sjómannafélags Reykjavíkur, segist ekki hafa verið við stýrið þegar skemmtibátur hans steytti á skeri á Viðeyjarsundi, sem leiddi til dauða karls og konu. Málflutningur hófst í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. Innlent 5. maí 2006 11:52
Frestað vegna endurupptöku í Bretlandi Mál Jóns Ólafssonar gegn Hannesi Hólmsteini Gissurarsyni var tekið fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. Héraðsdómur frestaði málinu þar sem enn er beðið endurupptöku málsins í Bretlandi. Innlent 21. apríl 2006 12:30
Stal einum bíl og bakkaði á annan Tvítugur Hafnfirðingur var í dag dæmdur til þrjátíu daga skilorðsbundinnar fangelsisvistar fyrir að stela bíl og bakka honum á kyrrstæðan bíl stuttan spöl í burtu. Innlent 7. apríl 2006 16:02
Dæmdir fyrir líkamsárás Þrír ungir karlmenn voru í dag fundnir sekir um líkamsárás. Þeir ruddust í heimildarleysi inn í eldhús Bautans á Akureyri í ágúst í fyrra þar sem tveir þeirra börðu einn starfsmann veitingastaðarins og annar þeirra tók starfsmanninn hálstaki. Innlent 7. apríl 2006 15:56
Vísaði kröfu Símans frá dómi Héraðsdómur Reykjavíkur hafnaði í dag kröfu Símans um staðfestingu lögbanns á því að Helgi Steinar Hermannsson ynni fyrir 365 miðla, sem reka meðal annars NFS. Lögbannið lagði Sýslumaðurinn í Reykjavík á Helga Steinar eftir að hann réði sig til starfa hjá 365 en hann vann áður hjá Skjá einum. Innlent 7. apríl 2006 15:07
Vill vitnavernd í íslensk lög Jón Gerald Sullenberger átti ekki von á því að vera ákærður í Baugsmálinu. Hann segir brotalöm í íslenskum lögum þar sem vanti vitnavernd. Þá vill hann að einn dómari í málinu víki en dómarinn taldi Jón Gerald ótrúverðugt vitni þegar málið var fyrst tekið fyrir í Héraðsdómi. Innlent 5. apríl 2006 18:56
Mál dómara gegn ríkinu þingfest í vikunni Mál Guðjóns St. Marteinssonar héraðsdómara við Héraðsdóm Reykjavíkur gegn íslenska ríkinu verður þingfest síðar í vikunni. Guðjón ákvað að höfða mál þegar úrskurður Kjaradóms um laun stjórnmála- og embættismanna var numinn úr gildi með lögum. Innlent 3. apríl 2006 12:15
Greiði 34 milljónir hvor um sig Tveir menn voru í dag dæmdir fjögurra mánaða skilorðsbundinnar fangelsisvistar og til greiðslu 34 milljóna króna hvor um sig í sekt til ríkissjóðs. Mennirnir voru fundnir sekir um að hafa ekki staðið skil á greiðslu vörsluskatta og opinberra gjalda þegar þeir stýrðu fyrirtækinu Merkingu. Innlent 30. mars 2006 17:25
Dæmdur fyrir fjárdrátt Fyrrum framkvæmdastjóri Fjórðungssambands Vestfirðinga var í dag dæmdur í Hæstarétti til eins árs fangelsisvistar fyrir að hafa dregið að sér samtals sautján milljónir króna úr sjóðum sambandsins. Níu mánuðir af tólf eru skilorðsbundnir. Innlent 30. mars 2006 17:17
Þrjú ár fyrir árás með hafnaboltakylfu Hæstiréttur dæmdi Hákon Örn Atlason í dag til þriggja ára fangelsisvistar fyrir hættulega líkamsárás með hafnaboltakylfu, brot gegn valdstjórninni með því að hóta lögreglufulltrúa og fjölskyldu hans ofbeldi og lífláti og vörslu á 63 grömmum af hassi. Innlent 30. mars 2006 17:00
Dæmdur fyrir nauðgun 22 ára gamall karlmaður var í dag dæmdur til eins árs fangelsisvistar fyrir kynferðisbrot gegn nítján ára stúlku. Dómurinn komst að þeirri niðurstöðu að maðurinn hefði notfært sér ölvun stúlkunnar og svefndrunga til að hafa við hana samræði eða önnur kynferðismök. Innlent 30. mars 2006 16:24
Verða að afhenda skattstjóra upplýsingar Viðskiptabankarnir þrír verða að afhenda skattstjórum sundurliðaðar upplýsingar um öll viðskipti bankanna með hlutabréf og og þá sem viðskiptunum tengdust á árinu 2003. Innlent 30. mars 2006 15:35
Áfrýjað í Baugsmálinu Sigurður Tómas Magnússon, settur saksóknari í Baugsmálinu, hefur ákveðið að áfrýja sýknudómi Héraðsdóms Reykjavíkur frá í síðustu viku. Hann áfrýjar sýknun í sex af átta ákæruliðum. Innlent 22. mars 2006 15:52
Dæmdur fyrir umferðarlagabrot Rúmlega þrítugur Selfyssingur var í dag dæmdur til tveggja mánaða skilorðsbundinnar fangelsisvistar fyrir fjársvik og umferðarlagabrot. Innlent 22. mars 2006 15:20
Áreitti tvær ungar stúlkur Karlmaður var í dag dæmdur til tveggja mánaða skilorðsbundinnar fangelsisvistar fyrir að áreita tvær ungar stúlkur á heimili sínu í Kópavogi. Maðurinn hafði boðið stúlkunum heim til sín. Þar þótti sýnt að hann hefði kysst aðra stúlkuna á handlegg og háls og látið hina stúlkuna kyssa sig. Innlent 22. mars 2006 15:10
Baugsdómur á morgun Dómur verður kveðinn upp í átta ákæruliðum í Baugsmálinu á morgun. Dómsniðurstaðan kann að hafa áhrif á ákvörðun um það hvort ákært verði að nýju í veigamestu ákæruliðunum þrjátíu og tveimur sem vísað var frá dómi. Innlent 14. mars 2006 19:02
Nauðgaði stúlku á stigagangi Tvítugur karlmaður var í dag dæmdur til eins árs fangelsisvistar fyrir að nauðga sextán ára stúlku á stigagangi heimilis hennar. Stúlkan var mjög ölvuð og þótti dómnum sýnt að maðurinn hefði misnotað sér ástand hennar. Innlent 10. mars 2006 17:21
Öryrki eftir störf á sjúkrahúsi Flestir fara á sjúkrahús til að fá bót meina sinna, en í tilfelli Hildar Stefánsdóttur, var það á sjúkrahúsi sem veikindi hennar hófust. Landspítalinn verður að greiða Hildi Stefánsdóttur tæpar sjö milljónir króna í bætur vegna heilsutjóns sem hún varð fyrir vegna meðhöndlunar skaðlegra efna þegar hún vann á spítalanum. Innlent 9. mars 2006 21:53
Hafnaði beiðni 101 fasteignafélags Héraðsdómur Reykjavíkur hafnaði í morgun beiðni 101 Fasteignafélags um að samningur þeirra við Stafna á milli og fleiri félög um kaup á húsnæði við Laugarveg, Frakkastíg og Hverfisgötu yrði þinglýstur. Innlent 3. mars 2006 11:19
Kópavogur í mál við Orkuveituna Mál Kópavogsbæjar gegn Orkuveitu Reykjavíkur var tekið fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur á tíunda tímanum. Málið má rekja til þess að starfsmenn Orkuveitunnar meinuðu verktökum á vegum Kópavogsbæjar um aðgang að borsvæði við Vatnsendakrika. Þá höfðu þegar verið gerðar nokkrar tilraunaboranir eftir neysluvatni. Innlent 3. mars 2006 11:04
Fjórir dæmdir fyrir misþyrmingar Héraðsdómur Norðurlands Eystra hefur dæmt mennina fjóra, sem réðust á 17 ára pilt á Akureyri fyrir ári, misþyrmdu honum og skildu eftir klæðalítinn í húsasundi í frosti. Innlent 3. mars 2006 08:45
Ríkið sýknað af bótakröfu Íslenska ríkið var í dag sýknað af kröfu Óla Bjarna Ólasonar útgerðarmanns sem krafðist skaðabóta úr ríkissjóði vegna lagasetningar þar sem sóknardagakerfið var aflagt og kvóti settur á krókabáta. Innlent 7. febrúar 2006 15:39
Sjö mánaða dómur fyrir fjölda afbrota Tuttugu og fimm ára karlmaður var í morgun dæmdur í sjö mánaða fangelsi í Héraðsdómi Reykjaness fyrir að hafa þrisvar ekið bíl eftir að hafa verið sviptur ökuréttindum, þrisvar verið tekinn með fíkniefni, tvo þjófnaði og tvö fjársvikamál. Innlent 3. febrúar 2006 10:47
Verða að greiða fyrrum starfsmanni laun G.P.G fiskvinnsla verður að greiða fyrrum stjórnanda fiskvinnslunnar Jökuls á Raufarhöfn hálfa þriðju milljón króna sem hann á hjá félaginu í ógreiddum launum. Innlent 31. janúar 2006 13:16
Réttað yfir Sigurði Frey Aðalmeðferð í máli Sigurðar Freys Kristmundssonar hófst í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. Sigurður Freyr er ákærður fyrir að hafa banað Braga Halldórssyni í ágúst síðastliðnum með því að stinga hann með hnífi. Innlent 30. janúar 2006 11:34
Í fangelsi fyrir akstur án réttinda Karlmaður var dæmdur í fjögurra mánaða fangelsi fyrir að keyra bíl ökuréttindalaus á Akureyri. Maðurinn hefur aldrei fengið ökuréttindi og var fyrir sjö árum dæmdur til að fá aldrei ökuréttindi vegna endurtekinna umferðarlagabrota. Innlent 30. janúar 2006 09:20
Stjórnskipulegur vandi blasir við Stjórnskipulegur vandi blasir við ef einhver dómari höfðar mál á hendur ríkinu vegna afnáms úrskurðar kjaradóms um laun dómara segir Jón Steinar Gunnlaugsson hæstaréttardómari. Innlent 30. janúar 2006 07:00
Dæmdar 30 milljónir í björgunarlaun Útgerðin Íslenskur skelfiskur verður að greiða Langanesi þrjátíu milljónir króna í björgunarlaun. Áður hafði Héraðsdómur Reykjavíkur úrskurðað að ekki þyrfti að greiða þau björgunarlaun sem deilt var um. Innlent 26. janúar 2006 17:47
Þuklaði á tíu ára stúlku Hæstiréttur dæmdi karlmann í dag í fjögurra mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn tíu ára gamalli stúlku. Maðurinn þuklaði á brjóstum hennar og kynfærum þar sem þau dvöldu á heimili bróður mannsins. Innlent 26. janúar 2006 17:33