Norræn kvikmyndaveisla Í tengslum við kvikmyndaverðlaunin stendur Norræni kvikmynda- og sjónvarpssjóðurinn (Nordisk Film og TV Fond) fyrir sýningum á tilnefndum myndum í samstarfi við kvikmyndahús á Norðurlöndunum. Af því tilefni mun Bíó Paradís sýna allar fimm tilnefndu myndirnar og bjóða upp á Norræna kvikmyndaveislu dagana 15. til 20. október. Bíó og sjónvarp 13. október 2019 06:00
Baltasar fékk hugmyndina að Kötlu við fréttaáhorf í Bandaríkjunum Kaup Netflix á Kötlu er stærsta fjárfesting sem orðið hefur í íslenskri kvikmyndagerð. Um gífurlega innspýtingu er að ræða í iðnaðinn því tökulið og leikarar verða meira og minna Íslendingar. Um jarðbundinn vísindaskáldskap er að ræða þar sem söguhetjurnar þurfa að kljást við dularfulla hluti sem leysast úr læðingi við Kötlugos. Bíó og sjónvarp 12. október 2019 19:45
Ný stikla úr Bergmáli frumsýnd Vísir frumsýnir í dag nýjustu stikluna úr kvikmynd Rúnars Rúnarssonar, Bergmál. Bíó og sjónvarp 11. október 2019 13:30
Verkalýðsforingi sneri baki við mögulegum frama í Hollywood Aðalsteinn Baldursson, formaður Framsýnar, hafnaði boði um að leika í Eurovision-kvikmynd Will Ferrell. Þar hefði hann leikið með Ferrell sjálfum og Pierce Brosnan. Bíó og sjónvarp 10. október 2019 17:56
Miklar vonir bundnar við Íra Scorseses The Irishman, nýjasta mynd Martins Scorsese, var frumsýnd á New York Film Festival á dögunum. Myndin fór vægast sagt vel í áhorfendur og gagnrýnendur keppast við að ausa hana lofi. Bíó og sjónvarp 10. október 2019 09:00
Pierce Brosnan mættur til landsins Breski leikarinn Pierce Brosnan er staddur hér á landi en til hans sást á Konsúlat hótelinu í miðbæ Reykjavíkur í morgun. Bíó og sjónvarp 9. október 2019 13:30
Netflix pantaði langþráða Kötlu Baltasars Vísindaskáldsöguþáttaröð leikstjórans Baltasars Kormáks, sem framleidd verður af Netflix, mun bera heitið Katla. Framleiðsla seríunnar, sem verður átta þættir, hefst á næsta ári. Bíó og sjónvarp 9. október 2019 08:47
Íslensku stjörnurnar á fullu að gefa eiginhandaáritanir á rauða dreglinum Íslenska kvikmyndin Agnes Joy eftir leikstjórann Silju Hauksdóttur var heimsfrumsýnd á alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni BUSAN í Suður Kóreu í gær. Bíó og sjónvarp 8. október 2019 16:00
Leikstjóri Jókersins útskýrir tvö stór atriði Leikstjórinn Todd Phillips útskýrir opnunaratriðið í nýjustu mynd sinni Joker á YouTube-rás Vanity Fair en kvikmyndin var frumsýnd um helgina. Bíó og sjónvarp 8. október 2019 13:30
Joker eins og hægelduð steik Kvikmynd Todd Fields um Jókerinn er nú komin í kvikmyndahús og var tekin fyrir í nýjasta þætti Stjörnubíós. Bíó og sjónvarp 7. október 2019 20:00
Björn Ingi og Kolfinna Von á meðal þúsunda á Jókernum Rúmlega fjórtán þúsund manns komu sáu Joker á Íslandi um helgina, með forsýningum á fimmtudagskvöld. Bíó og sjónvarp 7. október 2019 17:30
Grátbroslegar helgar Fyrstu tveir þættir Pabbahelga voru forsýndir fyrir fullum sal í Bíó Paradís í vikunni en sýningar á þeim hefjast á RÚV á sunnudaginn. Bíó og sjónvarp 4. október 2019 09:00
Lykilatriði í Jókernum breyttist algjörlega vegna tónlistar Hildar Tónskáldið Hildur Guðnadóttir segir að leikstjóri Joker-myndarinnar hafi beðið hana um að þykja um vænt um Arthur Fleck, manninn sem verður að hinum brenglaða Jóker, þegar hún samdi tónlistina fyrir myndina. Bíó og sjónvarp 3. október 2019 14:15
Gera nýja kvikmynd um Línu langsokk Barnabarn hinnar sænsku Astrid Lindgren vinnur að nýrri kvikmynd. Bíó og sjónvarp 2. október 2019 18:30
Trúðarnir Casper og Frank í tökum við Bláa Lónið Þeir Casper Christensen og Frank Hvam eru staddir hér á landi í tökum. Til þeirra sást fyrir utan Bláa Lónið og munu þeir vera að taka upp efni fyrir nýja Klovn-kvikmynd. Bíó og sjónvarp 1. október 2019 12:45
Sagði kominn tíma á rauðhærðan Bond Breski leikarinn Damian Lewis sem þekktastur er fyrir hlutverk sitt í bandarísku spennuþáttunum Homeland virðist hafa ýjað að því í útvarpsviðtali að hann væri til í að taka við hlutverki njósnara hennar hátignar, James Bond. Bíó og sjónvarp 30. september 2019 21:46
Fjórða þáttaröð Stranger Things í bígerð Aðdáendur bandarísku vísindaskáldskaparþáttanna Stranger Things, sem Netflix framleiðir, geta tekið gleði sína á ný því í dag var birt færsla á samfélagsmiðlasíðum þáttanna þar sem staðfest var að fjórða þáttaröðin um krakkana frá Hawkins, Indiana væri í bígerð. Bíó og sjónvarp 30. september 2019 21:07
Síðasta haustið í heitasta hreppnum Áður en illdeilur um Hvalárvirkjun gerðu Árneshrepp að þeim heitasta á landinu virkjaði Yrsa Roca hinn þunga nið tímans í heimildarmyndinni Síðasta haustið sem hún frumsýnir á RIFF. Bíó og sjónvarp 30. september 2019 08:00
Rosalegt sýnishorn úr gay vampíru sprautufíklamynd Steinda Í ljós kemur að hér er sannanlega er kvikmynd á leiðinni og meðal þeirra sem koma við sögu eru leikararnir Ingvar E. Sigurðsson, Herra Hnetusmjör, Aron Már Ólafsson, Ólafía Hrönn Jónsdóttir og fjölmargir aðrir. Bíó og sjónvarp 27. september 2019 14:30
Aukaleikararnir rifja upp Friends tímann Gamanþættirnir Friends njóta enn gríðarlegra vinsælda og horfa milljónir manna á þættina daglega. Friends voru framleiddir á árunum 1994-2004 og þekkja margir þættina vel. Bíó og sjónvarp 27. september 2019 13:30
Netflix pantar íslenska vísindaskáldsöguþáttaröð af Baltasar Kormáki sem þakkar nýja kvikmyndaþorpinu Bandaríska streymisveitan Netflix hefur pantað vísindaskáldsöguþáttaröð af Baltasar Kormáki og framleiðslufyrirtæki hans. Um íslenska framleiðslu verður að ræða með íslenskum leikurum. Baltasar telur að þetta sé líklega stærsti einstaki samningur sem gerður hefur verið við íslenska kvikmyndagerðarmenn. Bíó og sjónvarp 26. september 2019 20:11
Ný stikla úr dýrustu og lengstu mynd Martin Scorsese Nýjustu myndar bandaríska leikstjórans Martin Scorsese, The Irishman, er beðið með mikilli eftirvæntingu en hún skartar engum smávegis leikurum í aðalhlutverkum, þeim Al Pacino, Robert De Niro, Joe Pesci og Harvey Keitel. Bíó og sjónvarp 26. september 2019 14:30
Óvæntir fagnaðarfundir í blóðbaði Reykjavik Whale Watching Massacre eftir Júlíus Kemp var sýnd sem einhvers konar forleikur að Alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Reykjavík, RIFF, á föstudagskvöld. Bíó og sjónvarp 25. september 2019 21:00
Alls ekki ætlunin að draga upp mynd af Jókernum sem hetju Warner Bros. hefur svarað ákalli aðstandenda fórnarlamba skotárásarinnar í kvikmyndahúsi í Aurora í Colorado árið 2012 þar sem þeir lýsa yfir áhyggjum vegna sýningar myndarinnar. Bíó og sjónvarp 25. september 2019 14:54
Stjörnurnar úr fyrstu myndinni snúa aftur í Jurassic World 3 Sam Neill, Laura Dern og Jeff Goldblum verða öll í Jurassic World 3 en þau eiga það sameiginlegt að hafa farið með hlutverk í fyrsti Jurassic Park myndinni sem sló í gegn árið 1993. Bíó og sjónvarp 25. september 2019 14:30
Hvítur, hvítur dagur framlag Íslands til Óskarsverðlauna Kvikmyndin Hvítur, hvítur dagur verður framlag Íslands til Óskarsverðlauna 2020. Hlaut hún afgerandi sigur í rafrænni atkvæðagreiðslu um framlag Íslands, en það eru meðlimir í ÍKSA, Íslensku kvikmynda og sjónvarpsakademíunni sem hafa kosningarétt. Bíó og sjónvarp 25. september 2019 10:05
Glæný stikla úr Frozen 2 Disney gaf í gær út fyrsta brotið úr næstu Frozen mynd en sú fyrri sló rækilega í gegn árið 2013 og vann myndin tvenn Óskarsverðlaun. Bíó og sjónvarp 24. september 2019 16:00
Jesse Pinkman losar sig við lík í nýrri stiklu úr Breaking Bad myndinni Þann 11. október kemur út kvikmyndin El Camino sem er framhald af Breaking Bad þáttunum vinsælu. Bíó og sjónvarp 24. september 2019 15:45
Game of Thrones halaði inn flest verðlaun á Emmy-hátíðinni Sjónvarpsþættirnir Game of Thrones, Tsjernóbyl og Fleabag voru á meðal sigurvegara á Emmy-hátíðinni sem fram fór í Los Angeles í nótt. Lífið 23. september 2019 07:19
Skósveinn Svarthöfða eftir heilablæðingu Star Wars heillaði Jóhann Waage í æsku. Eftir að dyr dauðans skullu nærri hælum hans ákvað hann að ganga í fullum skrúða til liðs við 501. nördaherinn. Kona og börn fylgdu svo í kjölfarið. Lífið 20. september 2019 07:30