Eitt sinn verður allt fyrst Ég get þetta alveg, hef bara aldrei gert þetta!“ Sex ára dóttir mín slengdi þessari staðhæfingu fram þar sem við horfðum á unga fimleikastúlku gera lipurlegar æfingar á slá í sjónvarpinu en sjálf á dóttirin að baki eitt barnanámskeið í fimleikum. Ég glotti út í annað að þessari digurbarkalegu yfirlýsingu hennar þar sem stúlkan í sjónvarpinu sýndi talsverð tilþrif og fram kom að hún hafði æft þessa íþrótt í nokkur ár. Sjálfri stökk henni þó ekki bros, það er að segja dóttur minni. Hún horfði bara áhugasöm á tilþrifin og stakk upp í sig pítsusneið með skinku og ananas. Bakþankar 22. ágúst 2012 06:00
Óskað eftir framsýni Talið er að hægt sé að tímasetja næstum upp á dag hvenær Íslendingar gáfu norsk-íslenska síldarstofninum slíkt högg að síldin lét ekki sjá sig hér næstu áratugina – og forðast sum svæði enn. Það mun hafa verið 23. ágúst 1967 þegar met var slegið á miðunum og flotinn, búinn kraftblökkum og asdic-fiskileitartækjum, veiddi 16 þúsund tonn af síld. Skömmu síðar hvarf síldin og með henni störfin, athafnasemin, fólkið og peningarnir. Bakþankar 21. ágúst 2012 06:00
Draumar sem rætast? Eitt hundrað og sjötíu augu horfðu dreymandi. Spurningar hljómuðu: Hvernig viltu að líf þitt verði? Hvað langar þig til að framtíðin færi þér? Hvernig nám viltu stunda? Þú mátt velja þér fimm atriði sem þú óskar að rætist í lífi þínu. Bakþankar 20. ágúst 2012 09:30
Lífs míns langa plastskeið Grillveisla í garðinum síðsumars með góðum vinum. Kjötið rifið úr umbúðunum, grænmetið þrifið upp úr pokunum og öllu skellt á. Borðað af diskum, drukkið úr glösum, matur skorinn í bita og stunginn með gaffli. Hrært í glösum með röri og kaffibollanum með teskeið. Og stóri munurinn á þessari veislu og veislunni sem sama fólk hélt fyrir tuttugu árum: það þarf ekkert að vaska upp! Plast er stórkostleg uppfinning. Bakþankar 19. ágúst 2012 12:00
Ástarsaga úr garðinum Sambandsslit eru yfirleitt erfið og reyna á þá sem í hlut eiga. Sérstaklega eru þau erfið ef sambandið hefur staðið lengi og aðilar hafa gengið saman í gegnum þykkt og þunnt. Ég veit hvað ég er að tala um því nýlega lauk sambandi sem ég átti í í þrettán ár. Bakþankar 17. ágúst 2012 06:00
Bábiljur í boðhætti Gerðu magaæfingar: Tékk. Drekktu spínatsafa: Tékk. Hættu að tuða: Tékk. Settu reiðina til hliðar: Tékk. Ekki gefast upp á ástinni: Tékk. Notaðu kinnalit: Tékk. Hugtakið ráð hefur gengisfallið meira á undanförnum árum en íslenska krónan. Fjölmiðlar keppast við að leggja okkur lífsreglurnar og fóðra okkur á uppskriftum að langri og farsælli ævi: "Tíu ráð til að höndla hamingjuna" – "Níu fegurðarráð" – "Keyrðu upp orkuna" – "Vertu heilbrigð og falleg án aukaefna" – "Hreinsaðu líkamann með safa". Bakþankar 16. ágúst 2012 11:30
Ekkert "en“ Viðbrögðin við þátttöku Jóns Gnarr í baráttugöngu hinsegin fólks um helgina voru fyrirsjáanleg. Þótt margir – og kannski flestir – hafi fagnað henni þá voru líka hinir sem máttu ekki til þess vita að Jón eyddi dýrmætum tíma sínum í að berjast fyrir mannréttindum þegar hann ætti með réttu að vera að sinna mikilsverðum hagsmunamálum borgarbúa. Eins og hann hefði annars varið laugardagseftirmiðdeginum í að tryggja börnum ódýrar skólamáltíðir. Þetta sjónarmið flaut upp á yfirborðið í athugasemdakerfum vefmiðlanna, eins og í fyrra og hittiðfyrra og eins og þau munu líklega gera enn einu sinni að ári. Bakþankar 15. ágúst 2012 11:00
Rigningin á undan regnboganum Við stóðum í Lækjargötunni og biðum eftir gleðigöngunni þegar tvær franskar ferðakonur komu upp að okkur og spurðu: "What are you waiting for?" Ég sagði þeim nákvæmlega hverju við værum að bíða eftir, og þær ákváðu að standa við hlið okkar. Brátt hljómaði gleðisöngurinn og regnbogafánarnir lituðu götuna fyrir framan okkur. Bakþankar 14. ágúst 2012 09:00
Hvað veit maður? Hvers konar hugmyndir hefði mannvera um heiminn ef hún þekkti hann eingöngu af sjónvarpi? Til að gera okkur þennan hugarburð bærilegri skulum við ímynda okkur að til væri Marsbúi með greindarvísitölu meðal Íslendings sem aldrei hefði komið út fyrir plánetuna rauðu en sæi hins vegar sama sjónvarpsefni og meðal Íslendingur. Hvaða hugmyndir hefði þessi Marsbúi um jörðina? Bakþankar 13. ágúst 2012 06:00
Ólympíugull í Ríó 2016! Eftir grátlegt tap handboltalandsliðsins á miðvikudag og góða, en þó ekki frábæra, frammistöðu Ásdísar Hjálmsdóttur í spjótkasti er orðið ljóst að Ísland vinnur ekki til verðlauna á þessum Ólympíuleikum. Nema auðvitað að Kári Steinn bæti sig verulega í maraþonhlaupinu sem er ólíklegt. (Við höfum samt fulla trú á þér Kári!). Þessi uppskera er ólíðandi enda fátt betur til þess fallið að vekja athygli á yfirburðum þjóðar og menningar en medalíur. En hvernig getum við eiginlega fjölgað íslenskum verðlaunum og jafnvel loks unnið fyrsta gullið? Bakþankar 10. ágúst 2012 06:00
Ráð við gjaldeyrisgræðgi Það er sama hvort ég labba um Laugaveginn eða vappa um Skagafjörðinn, ég er farinn að reka upp fagnaðaróp þegar ég heyri einhvern orða hugsun sína á okkar ylhýra. Ekki svo að mér þyki erlendir ferðamenn leiðinlegir en það er bara svo ágætt að rekast á Íslendinga, sérstaklega þegar maður er búinn að hafa fyrir því að koma sér til Íslands. Bakþankar 9. ágúst 2012 00:01
Friðarloginn Ég er af þeirri kynslóð sem man ógnina af kjarnorkuvopnum. Reglulega hlustaði maður á fregnir af því að samanlagður sprengikraftur vopnabúrs Bandaríkjanna og Sovétríkjanna dygði nú til að eyða jörðinni margoft. Og eftir því sem árin liðu var hægt að eyða jörðinni oftar, eins og einu sinni væri ekki nóg. Það er ekki nema von að dimm nýbylgjutónlist og volæðislegir textar hafi heillað ungmenni þessa tíma. Það hefur áhrif á lífsgleðina að heyra reglulega að möguleikinn á að tortíma jörðinni sé í höndum bjána eins og leiðtoga Bandaríkjanna og Sovétríkjanna. Bakþankar 8. ágúst 2012 06:00
Smá nauðgað, annars fínt Það er orðið árviss viðburður að fá fréttir af nauðgunum um Verslunarmannahelgi. Sem betur fer virðist ákveðin vitundarvakning hafa orðið í þessum efnum og jafnvel örgustu tréhausar hafa samþykkt víðtækari aðgerðir til að sporna við þeim hryllilega glæp sem nauðgun er. Á stundum hefur manni nefnilega fundist að skipuleggjendur hátíða telji það gefa þeim slæmt orðspor ef það spyrst út að til allra ráðstafana sé gripið til að hamla gegn nauðgunum. Það er auðvitað mikill misskilningur, orðspor hátíða batnar aðeins við það að allra bragða sé beitt til að koma í veg fyrir að sálsjúkir karlpungar nauðgi. Bakþankar 7. ágúst 2012 06:00
Vonir og væntingar Það var á Bindindismótinu í Galtalæk 1986 sem Greifarnir léku lagið Útihátíð í fyrsta sinn um verslunarmannahelgi og meitluðu í tón um eilífð stemninguna þessa fyrstu helgi í ágúst, sem er jafnframt síðasta helgi í sumarleyfi hjá mörgum og stærsta ferða-, útihátíða- og áfengisneysluhelgi ársins hjá öllum, að minnsta kosti að meðaltali. Ég man þetta af því þetta var mín fyrsta og síðasta útihátíð. Síðan hef ég reynt að eyða verslunarmannahelgum, sem og flestum öðrum dögum ársins, í tæri við kranavatn, heitt og kalt, útveggi og kaffivélar og ekki innan um of margt fólk. En það er bara ég og ég fagna þeim sem streymdu út úr bæjum og borgum í gær á hátíðasvæði eða sumarbústaði og vona að þeir skemmti sér vel. Bakþankar 4. ágúst 2012 06:00
Boltinn rúllar Þegar ég var gutti mætti ég stundum á fótboltaæfingar á malarvelli KA. Þjálfarinn reykti á æfingum og var stundum fullur. Ég átti ekki upp á pallborðið hjá honum; fékk fá tækifæri eins og það heitir, og þótt aðrir þjálfarar kæmu seinna, óreykjandi og edrú, komst ég heldur ekki í liðið. Fljótlega hætti ég að æfa en hafði áfram áhuga á fótbolta. Bakþankar 3. ágúst 2012 06:00
Homo sapiens og heimabankinn Þetta hófst allt fyrir nokkrum milljónum ára þegar forfaðir okkar mannanna stakk hina apana af og klöngraðist niður úr trénu sínu. Heilar stækkuðu og það réttist úr bökum. Verkfæri litu dagsins ljós og eldar voru tendraðir. Bóndinn leysti veiðimanninn af hólmi og fyrirrennarar okkar latte-lepjandi borgarpakksins hófu að rotta sig saman. Píramídar risu og Ford fann upp færibandið. Newton fékk þyngdaraflið í höfuðið en maðurinn hóf sig engu að síður á loft á þöndum stálvængjum. Henry Edward Roberts bjó til borðtölvuna, Tim Berners-Lee fann upp veraldarvefinn, Steve Jobs fékk mikilmennskubrjálæði og bamm: Allt varð þetta til þess að dag einn sat undirrituð á fjöldaframleidda Klippan Ikea-sófanum sínum með internetið í kjöltunni og kaffibolla jafnháþróaðan og homo sapiens í hendinni. Bakþankar 2. ágúst 2012 06:00
Gleðitregðan Alla tíð – að minnsta kosti frá því að ég komst til vits og ára – hef ég lagt mig fram um að finnast verslunarmannahelgin leiðinleg. Svo umhugað hefur mér verið um að láta hefðir og venjur samfélagsins ekki skilyrða mig til skemmtunar að ég hef álitið þessa mestu ferðahelgi ársins þeim mun betur heppnaða því viðburðasnauðara sem líf mitt var á meðan. Spurningunni "Hvað gerðirðu um versló?“ hef ég til þessa viljað geta svarað hneykslaður og með þjósti: "Ekki neitt.“ Eins og spurningin hafi verið fáránleg og ég sé fyllilega tilfreðs með að hafa hvorki farið út úr húsi né yrt á nokkurn mann svo dögum skipti. Bakþankar 1. ágúst 2012 06:00
Iss piss piss "Væri ég rukkuð fyrir að fara á salernið þá myndi ég glöð pissa á gólfið í staðinn.“ Þetta eru viðbrögð konu nokkurrar við því að eigandi vegasjoppu íhugar að láta þá sem ekkert versla borga fyrir að nota klósettið. Viðbrögðin má sjá á dv.is, undir frétt þar sem fjallað er um að eigandi Baulu í Borgarnesi sé búinn að fá nóg af "hlandrútum“ sem stoppi með tugi farþega sem fari bara á klósettið en kaupi ekkert. Bakþankar 31. júlí 2012 06:00
Best í heimi Stundum, seint á kvöldin, þá staldra ég við og hugsa um stærsta einstaka þáttinn í sögu okkar sem íþróttaþjóðar: Höfðatöluna. Ef Íslendingar væru fjölmenn þjóð þyrftum við síendurtekinn árangur til að blása upp þjóðarstoltið en í staðinn beitum við tölfræðiæfingum sem gefa okkur tímabundna, en unaðslega, vellíðan. Auðvitað eigum við að gera meira úr höfðatölunni. Samkvæmt henni hefur árangur Íslendinga á Ólympíuleikum verið óslitin sigurganga. Bakþankar 28. júlí 2012 06:00
Lauflétt um lífshamingjuna Hvað veitir þér lífshamingju? Ef svarið þitt er að fylgjast með sápuóperum og bresku konungsfjölskyldunni, þá eigum við ekki skap saman. Þér er þó vorkunn því það er merkilega erfitt að svara þessari spurningu án umhugsunar. Ég átti í það minnsta erfitt með það þegar hún var borin undir mig fyrir skömmu. Merkilega erfitt segi ég því hamingja er alveg við toppinn á lista okkar flestra yfir það sem við sækjumst eftir í lífinu. Bakþankar 27. júlí 2012 06:00
Hið landlæga stefnuleysi Við Íslendingar erum skorpuþjóð. Já, þetta er klisja og jafn fúl og aðrar slíkar, en það þarf ekki að þýða að hún sé ekki sönn. Þessi fullyrðing gerir líka ráð fyrir því að hægt sé að fullyrða um þjóðareðli, sem er hæpið og byggir aftur á því að hægt sé að fullyrða um að þjóð sé til, sem er einnig hæpið. En hér erum við komin út í póstmódernísk fræði sem gætu leitt okkur í karp um hugtök, sem er hið besta mál en skilar kannski ekki endilega miklu. Það getur verið kostur að geta einhent sér í verkin, að láta ekki fyrirframgefið skipulag niðurnjörva allt og geta brugðist við breyttum aðstæðum hratt. Það er hins vegar galli hve víða alla stefnu skortir í íslensku samfélagi. Bakþankar 25. júlí 2012 06:00
Mannúð á hrakhólum Stundum virðist sem Íslendingum hafi tekist að flækja hluti sem mest þeir mega þegar kemur að blessaðri stjórnsýslunni, bæði hvað pólitíkina og embættin sjálf varðar. Hvernig stendur til dæmis á því að við höfum komið okkur upp kerfi þar sem hælisleitendur bíða árum saman á milli vonar og ótta eftir afgreiðslu umsókna sinna? Trauðla er það skilvirkt, hvað þá mannúðlegt, að kippa fólki út úr mannlegu samfélagi og geyma í limbói í nokkur ár á meðan umsóknir velkjast í kerfinu. Bakþankar 24. júlí 2012 10:15
Börn á fjöll? Geta börn gengið Laugaveginn, leiðina úr Landmannalaugum í Þórsmörk? Ég og kona mín kynntumst á fjöllum og erum í ?essinu? okkar á hálendinu. Við viljum því gjarnan leyfa sex ára drengjum okkar að njóta fjalllendis Íslands. Er Laugavegurinn barnvænn? Gætum við borið drengina til byggða, ef þeir gæfust upp? Myndi slagviðri hugsanlega bólusetja þá fyrir lífstíð gagnvart fjallaferðum? Við tókum öll ákvörðun að gera tilraun og lögðum af stað inn í dýrðarríki friðlandsins að fjallabaki. Bakþankar 23. júlí 2012 06:00
Ský á mig Snjór úti, snjór inni, snjór í hjarta, snjór í sinni. Snjó meiri snjó!“ söng þriggja ára dóttir mín og gerði snjóengil á stofugólfið sem skýringu á því af hverju hún vildi ekki fara út. Þetta var á fimmtánda degi í sumarfríi þar sem einu sinni hafði komið dropi úr lofti en sólin annars bulið á glaðbeittum hægfara hringförum allan tímann með tilheyrandi bílahita og rykmekki á fáfarnari leiðum. Breyttir tííímaar, hugsaði ég og mundaði sólarvörnina. Bakþankar 21. júlí 2012 06:00
Í stjörnuþokunni Hvenær mun hér á Íslandi rísa stjörnusambandsstöð?“ spurði trúbadorinn Insól í frægu lagi um árið. Og nú er einmitt lag því á Íslandi er sægur af stjörnum – Hollywoodstjörnum það er að segja, í slíkri þyrpingu að stappar nærri íbúafjölda á Þingeyri. Bakþankar 20. júlí 2012 06:00
Hótel í Vatnsmýrina Flestir voru uppteknir við hátíðahöld vegna kínverska nýársins. Enginn tók eftir því þegar útsendarar kínversks verktakafyrirtækis laumuðust í leyfisleysi inn í einn merkilegasta forna húsagarð Pekingborgar í upphafi árs og rifu hljóðlega niður gamlar byggingarnar sem umluktu hann. Peking var eitt sinn fræg fyrir húsagarða sína. Undanfarin ár hafa þeir hins vegar flestir vikið fyrir blokkum og háhýsum. Margir gráta nú þennan óafturkræfa skaða. Bakþankar 19. júlí 2012 06:00
Að endimörkum hipstersins Ég las í DV um daginn að íslenski hipsterinn væri í andarslitrunum. Einmitt það, hugsaði ég og glotti, vitandi betur eftir heimsókn mína til Berlínar, bækistöðvar alls þess sem er hipp og kúl. Þar fann ég nefnilega sjálf endimörk hipstersins – og þau hafa enn ekki náð til Íslands. Bakþankar 18. júlí 2012 06:00
Kæra dóttir Sagan sem ég ætla alltaf að segja dóttur minni þegar hún verður eldri, fékk skyndilega enn betri endi. Ég var vart orðin ólétt af henni þegar ég fékk fregnir af því að eigandi strippstaðarins Strawberries við Lækjargötu hefði stefnt mér fyrir meiðyrði. Hann stefndi mér, og bara mér, vegna ummæla sem ég hafði orðrétt eftir viðmælanda mínum. Ummælin sem ég var dæmd fyrir voru (samkvæmt Héraðsdómi Reykjavíkur): "Hann [stefnandi] er búinn að bera orðróm út um allan bæ um að það komi enginn með stæla inn á Strawberries því hann sé þar með litháísku mafíuna og að ég hafi bara verið tekinn og laminn þarna inni.“ Þá var ég líka dæmd fyrir að skrifa millifyrirsögnina "Orðrómur um mafíuna“. Bakþankar 17. júlí 2012 07:00
Geðdeild Akureyrar aðeins með 10 pláss á legudeild fyrir sjúklinga með alvarlegan geðrænan vanda Gísli Hvanndal Jakobsson Skoðun