Innlent

„Eins og við séum gleymd, bara ein­hver skóli úti á landi“

Vésteinn Örn Pétursson skrifar
Dýrleif Nanna er formaður nemendafélags FSU.
Dýrleif Nanna er formaður nemendafélags FSU. Vísir

Fulltrúi nemenda í Fjölbrautarskóla Suðurlands segir þá ósátta við útfærslu Kennarasambandsins á verkfalli sinna félagsmanna. Skólinn hefur verið eini framhaldsskólinn í verkfalli hingað til. Nemendur sjá ekki fyrir sér að komast í skólann fyrir áramót. 

Kennarar við Fjölbrautarskóla Suðurlands, eða FSU, hafa verið í verkfalli frá 29. október síðastliðnum, en því lýkur að óbreyttu 20. desember. 

Lítill gangur virðist vera í viðræðum Kennarasambandsins við ríki og sveitarfélög, og formlegur fundur samninganefnda ekki verið haldinn í tvær vikur.

Ósanngjarnt og fáránlegt

Formaður nemendafélags FSU segir óvissu um framhaldið leggjast illa í nemendur skólans.

„Við vitum einhvern veginn ekkert hvað er að frétta, eða hvort það sé eitthvað að frétta. Sömuleiðis með framhaldið, hvernig næstu önn verður háttað og svo framvegis,“ segir Dýrleif Nanna Guðmundsdóttir, formaður nemendafélags FSU. 

Hún segir nemendur ósátta með útfærslu á verkfallinu.

„Okkur finnst þessi aðgerð, og hvernig fyrirkomulagi verkfallsins er háttað, að velja bara einn skóla umfram aðra vera frekar ósanngjörn og í raun bara frekar fáránleg.“

Allir að pæla í MR

Á morgun hefst verkfall kennara í Menntaskólanum í Reykjavík, en Dýrleif segir nemendur hafa upplifað sig hundsaða fram að þessu.

„En núna þegar MR er að fara í verkfall þá allt í einu byrja fjölmiðlar og aðrir að pæla meira í þessu. Annars upplifum við okkur svolítið eins og við séum gleymd, bara einhver skóli úti á landi.“

Nemendur vilji komast í skólann sem fyrst.

„Það er erfitt að halda rútínu fyrir marga. Ég veit um suma sem gátu litið á þá björtu hlið þegar verkfallið var að byrja að þeir gætu bara farið að vinna. Svo er alls ekkert öllum sem gefst kostur á því að fá vinnu. Sumum fannst þetta algjör lúxus í eina viku, en svo þegar fólk gerir sér grein fyrir því að það líti ekki út fyrir að við séum að fara að mæta aftur fyrir jól, þá er þetta orðið svolítið þreytt,“ segir Dýrleif Nanna Guðmundsdóttir.


Tengdar fréttir

„Einkennilegt að vera með örhóp í verkfalli“

Jón Pétur Zimsen, aðstoðarskólastjóri Réttarholtsskóla og frambjóðandi á lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavíkurkjördæmi suður, segir einkennilegt að kennarar velji að vera með "örhóp" í verkfalli nema að markmiðið sé að draga deiluna á langinn.

Telur útfærslu kennara á verkföllum ekki líklega til árangurs

Kennarar í Menntaskólanum í Reykjavík leggja niður störf á mánudaginn, en samninganefndir Kennarasambands Íslands annars vegar og ríkis og sveitarfélaga hins vegar hafa ekki fundað síðan í upphafi mánaðar. Vinnumarkaðssérfræðingur efast um útfærslu kennara á verkföllum.

„Ég er ekkert búin að læra“

Nemendur sem komast ekki í skólann vegna verkfalls kennara segja rútínuleysið hafa áhrif á svefn þeirra, mataræði og námsframvindu. Kjaradeila Kennarasambands Íslands og ríkis og sveitarfélaga er enn í hnút.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×