Húsnæði Stuðla ráði ekki við málaflokkinn og úrbætur gengið hægt Magnús Jochum Pálsson skrifar 20. október 2024 22:08 Ólöf Farestveit, forstjóri Barna- og foreldrastofu, og Ásmundur Einar Daðason barnamálaráðherra ræddu málefni Stuðla þar sem piltur lést í vikunni. Forstjóri Barna- og fjölskyldustofu segir húsnæði Stuðla ekki rýma þá hópa sem þar dvelji. Barnamálaráðherra segir myglu tvívegis hafa komið í veg fyrir úrbætur á meðferðaheimilum en það horfi til betri vegar. Hann segir að fjárfesta þurfi miklu meira í börnum.
Ekkert fæst gefið upp um eldsupptök í bruna á meðferðarheimilinu Stuðlum, þar sem sautján ára piltur lést í gær. Til stendur að fara yfir upptökur úr öryggismyndavélum en enginn hefur þó verið handtekinn. Rannsókn málsins er á viðkvæmu stigi en eldurinn kom upp í neyðarvistunarálmu þar sem pilturinn hafði dvalið um skamma stund. Starfsmaður sem fluttur var á bráðamóttöku með reykeitrun er ekki í lífshættu. Börn á Stuðlum sem flytja þurfti úr húsi eftir brunann fengu strax inn á Vogi þar sem náðist að koma upp aðstöðu fyrir þau. Ásmundur Einar Daðason barnamálaráðherra og Ólöf Farestveit, forstjóri Barna- og fjölskyldustofu ræddu við Sindra Sindrason fréttaþul í kvöldfréttum Stöðvar 2. Húsnæði Stuðla ráði ekki við málaflokkana Starfsmenn hafa reglulega sagt að það sé of mikið álag, málin séu of þung og það sé í raun ekki verið að gera nóg í þessum málum. Hvað segir þú við því, Ólöf? „Vissulega eru málin mjög þung og það eru ólík mál sem eru að berast til okkar. Þá erum við sérstaklega að tala um neyðarvistun þar sem við erum að fást við börn með hegðunarvanda, svo erum við börn með vímuefnavanda og svo erum við að takast á við það að þurfa að vista börn sem eru í gæsluvarðhaldi, að afplána dóma eða jafnvel í síbrotagæslu. Þetta gerir að verkum að við erum með mjög fjölþættan vanda og húsnæðið rýmar ekki og er ekki gert fyrir þessa málaflokka,“ sagði Ólöf Farestveit. Vandinn hafi vaxið jafnt og þétt Húsnæði Stuðla áhyggjuefni og hentar ekki þessari starfsemi. Það er búið að tala um þetta í nokkuð langan tíma, hvers vegna er ekki eitthvað gert, Ásmundur? „Það sem lýtur að börnum í gæsluvarðhaldi er nýlega komið til okkar. Við höfum líka verið einstaklega óheppin varðandi húsnæði þegar kemur að meðferðarheimilum síðasta hálfa árið. Það þurfti að loka meðferðarheimili á Suðurlandi vegna myglu, við ætluðum að leigja annað húsnæði í samstarfi við Barna- og fjölskyldustofu til þess að sinna því og það var frágengið. Þegar það var farið í framkvæmdir þar var það með sama hætti, mygla og raki. Þar er Barna- og fjölskyldustofa búin að vera með mannskap sem hefur ekki getað sinnt hlutverki sínu. Það lítur þannig út að við séum að festa húsnæði þar og hægt sé að stíga þar inn. Síðan er húsnæði í framkvæmdum í Skálatúni í Mosfellsbæ þar sem ætlunin er að rísi þjónustuþorp fyrir börn sem mun opna á næstu vikum. Hlutirnir eru að hreyfast en ég er algjörlega sammála að við þurfum að hreyfa okkur hraðar af því vandinn vex hraðar og hann hefur verið að gera það jafnt og þétt síðustu misseri en við verðum að ná að koma þessum úrræðum í gagnið og síðan vinna að endurbótum á Stuðlum,“ sagði Ásmundur Einar. Ábyrgðarleysi að sprengja stjórnina á þessum tímapunkti Talandi einmitt um þetta, að vandinn sé að vaxa. Foreldrar barna með geðraskanir, foreldrar langveikra barna og fatlaðra barna hafa oft talað um að það sé oft nægur peningur fyrir alls konar hliðarverkefni en aldrei þessa hópa. Hvað segið þið við því? „Ég skal taka þennan bolta vegna þess að þetta er af pólitískum meiði,“ sagði Ásmundur og hélt svo áfram: „Við erum auðvitað búin að vera að vinna í því, það er milljarða fjárfesting í nýjum lögum um farsæld barna þar sem við erum að stíga fyrr inn. Við þurfum að fjárfesta miklu meira í börnum en við höfum gert. Við þurfum að gera það líka þegar kemur að þyngri endanum. Ég hef átt gríðarlega gott samstarf við fjármálaráðuneytið, sérstaklega síðustu mánuði. Það sem lýtur að ofbeldi barna og úrræðum í málefnum barna var í undirbúningi, fjármagn og aðgerðir, þegar þessi ríkisstjórn sprakk. Þess vegna fannst mér mikið ábyrgðarleysi að sprengja ríkisstjórn á þessum tímapunkti vegna þess að það er svo margt í pípunum.“ Ólíkir þættir hafi áhrif á versnandi líðan barna í viðkvæmri stöðu Ólöf, þú ert búin að vera í þessum geira í þrjátíu ár. Finnst þér vandamálin vera að stækka? „Það sem maður sér í samfélaginu er að sjálfræðisaldur var hækkaður frá sextán upp í átján ár sem skiptir miklu máli. En það eru líka svo margir ólíkir þættir sem koma inn í hvers vegna börnum í þessari mjög viðkvæmu stöðu líður kannski verr. Það eru mjög margir þættir sem við erum svo sannarlega að skoða. Ég er full bjartsýni að farsældarlöggjöfin, sem Ásmundur kom inn á, mun skila okkur miklu betri málum hérna seinna meir.“
Ofbeldi barna Börn og uppeldi Meðferðarheimili Reykjavík Málefni Stuðla Tengdar fréttir Enginn handtekinn í tengslum við brunann á Stuðlum Sautján ára piltur sem sem lést í bruna á meðferðarheimilinu Stuðlum í gær var ekki búinn að vera lengi inni á stofnuninni, samkvæmt upplýsingum frá lögreglu. Enginn hefur verið handtekinn í tengslum við málið. Starfsmaður sem fluttur var með reykeitrun á bráðamóttöku er ekki í lífshættu. 20. október 2024 10:57 „Af hverju á ekki að bjarga börnunum?“ Drengur sem hefur verið lagður sextán sinnum inn á Stuðla á einu ári segir betrun þeirra sem fara þangað inn litla sem enga. Faðir hans kallar úrræðið geymslu fyrir börn í vanda þar til þau verða átján ára. 17. október 2024 19:57 Mest lesið Skyndileg krafa upp á milljónir króna eins og lélegt grín Innlent Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Hér eru „þessar elskur“ Innlent Brenna líkin á nóttunni Innlent Svona var fundur ráðherra og ríkislögreglustjóra um landamærin Innlent Óvissustig á Hellisheiði, í Þrengslum og á Mosfellsheiði Innlent Allar landamærastöðvar efldar og þeim mögulega fækkað Innlent Starfsmenn Arion himinlifandi með daggæsluna Innlent Fólk velji frekar Sósíalista því VG hafi stungið kjósendur í bakið Innlent Leita óprúttins aðila sem kveikti í kjörkössum Erlent Fleiri fréttir Hér eru „þessar elskur“ Hærra kolefnisgjald og minna til nýja Landspítalans vegna frestunar kílómetragjalds Fjárlögin áfram rædd í dag og styttist í þinglok Bein útsending: Frambjóðendur tala við nemendur Allar landamærastöðvar efldar og þeim mögulega fækkað Færa til fjármuni til þess að bæta aðstöðu á bráðamóttöku Brenna líkin á nóttunni Starfsmenn Arion himinlifandi með daggæsluna Svona var fundur ráðherra og ríkislögreglustjóra um landamærin Óvissustig á Hellisheiði, í Þrengslum og á Mosfellsheiði Skyndileg krafa upp á milljónir króna eins og lélegt grín Rannsaka hópárás á tvo einstaklinga Fólk velji frekar Sósíalista því VG hafi stungið kjósendur í bakið Fjárlaganefnd gefur grænt ljós á útboð á Vestfjörðum Sýkna í málinu sem setti svip sinn á forsetakosningarnar Sextán flugferðum aflýst Konan er fundin Þórður Snær afboðaði komu sína Hitamet féll Keppast við að tjá sig um skrif Þórðar: Kristrún taki stóra áhættu með að halda honum á lista Viðbrögð Sósíalista og VG við nýrri könnun og daggæsla hjá Arion Málaferlin auki gildi verksins og hann sé hvergi af baki dottinn Bein útsending: Utanríkisstefna á umbrotatímum Refsing milduð í stóra skútumálinu Sósíalistar færu ekki í stjórn sem ætlaði að selja Íslandsbanka Hugmyndir Ingu séu aðför að kjörum alls vinnandi fólks Hjúkrunarfræðingar hafa skrifað undir samning Arion opnar dagvistun til að auðvelda starfsfólki að brúa bilið Einkavæðing í heilbrigðiskerfinu: Skýr mörk á milli hægri og vinstri Lýsa eftir konu með heilabilun Sjá meira
Enginn handtekinn í tengslum við brunann á Stuðlum Sautján ára piltur sem sem lést í bruna á meðferðarheimilinu Stuðlum í gær var ekki búinn að vera lengi inni á stofnuninni, samkvæmt upplýsingum frá lögreglu. Enginn hefur verið handtekinn í tengslum við málið. Starfsmaður sem fluttur var með reykeitrun á bráðamóttöku er ekki í lífshættu. 20. október 2024 10:57
„Af hverju á ekki að bjarga börnunum?“ Drengur sem hefur verið lagður sextán sinnum inn á Stuðla á einu ári segir betrun þeirra sem fara þangað inn litla sem enga. Faðir hans kallar úrræðið geymslu fyrir börn í vanda þar til þau verða átján ára. 17. október 2024 19:57