Innlent

Vist­maður og starfs­maður Stuðla fluttir á bráða­mót­töku

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Eldurinn kviknaði í einni álmu Stuðla um klukkan 6:40 í morgun.
Eldurinn kviknaði í einni álmu Stuðla um klukkan 6:40 í morgun. Vísir/vilhelm

Tveir sem fluttir voru á bráðamóttöku eftir bruna á Stuðlum í morgun eru vistmaður og starfsmaður á meðferðarheimilinu. Tæknideild lögreglu rannsakar nú vettvang brunans.  Framkvæmdastjóri Barna- og fjölskyldustofu sem rekur Stuðla verst allra fregna.

Tilkynnt var um eldsvoða á Stuðlum um klukkan 6:40 í morgun. Skúli Jónsson aðstoðaryfirlögregluþjónn segir í samtali við fréttastofu kveðst ekkert geta tjáð sig um mögulegt eldsupptök, rannsókn sé í gangi og vettvangur innsiglaður. 

Vistmaður og starfsmaður voru fluttir á bráðamóttöku en Skúli hefur ekki upplýsingar um líðan þeirra. Eldurinn hafi verið staðbundinn og komið upp í herbergi einnar álmunnar. Skúla skilst að starfsemi geti haldið áfram að hluta í dag. Nokkrir vistmenn, sjö eða átta, hafi verið í álmunni þegar eldurinn kviknaði. Lögregla ræði nú við vitni og skýrari mynd fáist af atburðarásinni þegar líður á daginn. 

Funi Sigurðsson framkvæmdastjóri Barna- og fjölskyldustofu, sem rekur Stuðla, vildi ekkert tjá sig um málið þegar fréttastofa náði tali af honum. Yfirlýsing verði send út síðar í dag. Ólöf Ásta Farestveit forstjóri Barna- og fjölskyldustofu hefur ekki svarað fréttastofu það sem af er morgni. 

Veistu meira um málið? Áttu myndefni af svæðinu? Sendu okkur línu á [email protected].


Tengdar fréttir

Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á Stuðlum

Tveir voru fluttir á slysadeild í kjölfar bruna á meðferðarheimilinu Stuðlum í Grafarvogi. Samkvæmt upplýsingum frá vakthafandi varðstjóra hjá Slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu er búið að slökkva eldinn og verið að byrja reykræstingu.

„Af hverju á ekki að bjarga börnunum?“

Drengur sem hefur verið lagður sextán sinnum inn á Stuðla á einu ári segir betrun þeirra sem fara þangað inn litla sem enga. Faðir hans kallar úrræðið geymslu fyrir börn í vanda þar til þau verða átján ára.

Sendur í leyfi

Úlfur Einarsson forstöðumaður Stuðla hefur verið sendur í ótímabundið leyfi frá störfum sínum á meðferðarheimilinu. Úlfur tjáði sig opinskátt um alvarlega stöðu sem uppi væri á Stuðlum í fréttaskýringarþættinum Kveik í gær. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×