Viðskipti innlent

Hvíta húsið og Ennemm segja upp fólki

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Elín Helga Sveinbjörnsdóttir hefur verið framkvæmdastjóri Hvíta hússins frá árinu 2017.
Elín Helga Sveinbjörnsdóttir hefur verið framkvæmdastjóri Hvíta hússins frá árinu 2017. Hvíta húsið

Markaðs- og auglýsingastofurnar Hvíta húsið og Ennemm gripu til uppsagna fyrir mánaðamótin. Alls missa þrettán vinnuna. Framkvæmdastjórar segjast finna fyrir samdrætti og leitt að sjá á eftir góðu fólki.

Elín Helga Sveinbjörnsdóttir, framkvæmdastjóri Hvíta hússins, staðfesti fjölda uppsagna en vildi ekki upplýsa um fjölda sem missa vinnuna. Samkvæmt heimildum fréttastofu var alls níu sagt upp en 43 starfsmenn eru skráðir á heimasíðu stofunnar.

„Það er auðvitað samdráttur,“ segir Elín Helga.

„Það er ofboðslega sárt að sjá á eftir góðu fólki og mikil sorg sem hvílir yfir okkur núna,“ bætir hún við. Hún er ekki viss hvort rétt sé að nota orðið krepputíð en finna megi í það minnsta kreppulykt í loftinu. Þá dragi fyrirtæki oft saman í markaðsmálum.

„Það er oft talað um að samdráttur í markaðsmálum á svona tímum eins og við sjáum núna sé ekki endilega alltaf rétta leiðin,“ segir Elín Helga. Ljóst sé að fyrirtækin haldi að sér höndum.

Jón Sæmundsson er framkvæmdastjóri Ennemm.ENNEMM

Jón Sæmundsson framkvæmdastjóri hjá Ennemm kannast við stöðu mála. Fjórum var sagt upp á stofunni fyrir mánaðamót en þar starfa fjörutíu manns. Hann segir búið að kreppa að en vonandi verði áhrifin skammvinn. Honum þyki leitt að þurfa að grípa til slíkra aðgerða.


Veistu meira um málið? Eru uppsagnir í þínu nánasta umhverfi? Sendu okkur ábendingu á [email protected]






Fleiri fréttir

Sjá meira


×