Innlent

Gömul og ó­skráð skot­vopn komi oft „frá afa“

Tómas Arnar Þorláksson skrifar
DSC05424_1
Vísir/Arnar

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur heimsótt á þriðja hundrað manns það sem af er ári í reglubundnu eftirliti með skotvopnaeigendum. Lögreglan ítrekar að eigendur geti átt von á heimsókn frá lögreglu án fyrirvara til að kanna vörslur skotvopna og skotfæra. 

Þetta kemur fram í tilkynningu frá embætti Ríkislögreglustjóra. Þar er tekið fram að heilt yfir séu skotvopnaeigendur að standa sig vel þegar það kemur vörslum skotvopna en þó er eitthvað um að menn hafi í vörslum sínum óskráð skotvopn eða þau eru skráð á einhvern annan.

Óháð því hvort vopn komi „úr sveitinni“

„Sömuleiðis eru nokkur brögð að því að í fórum manna finnist gömul skotvopn sem í flestum tilfellum reynast hafa komið „frá afa“ en eru ekki skráð á þann sem varslar þau. Afar mikilvægt er að skotvopnaleyfishafar séu meðvitaðir um að óheimilt er að varsla skotvopn án tilskilinna leyfa, óháð því hvort þau koma „úr sveitinni“ eða annars staðar frá,“ segir í tilkynningunni.  

Biðlað er til þeirra sem kunna að hafa þannig vopn í fórum sínum að hafa samband við lögreglu á netfangið [email protected] en þá er í flestum tilfellum hægt að fá vopnin skráð á sig. Einnig er hægt að skila vopnum til lögreglu og láta farga þeim.

Margir ekki meðvitaðir um breytingar á lögum

Einnig bendir lögreglan á að þó að heimilt sé að lána skotvopn öðrum aðila með skotvopnaleyfi skal slíkt lán ávallt vera skriflegt. Sá sem er með skotvopnið í láni þarf að geta framvísað slíku leyfi ef þess er óskað. Ef lánið er til lengri tíma en 4 vikna skal tilkynna lögreglu um lánið í gegnum island.is. 

„Hefur það sýnt sig að margir virðast ekki meðvitaðir um nýlegar breytingar á vopnalögum sem tóku gildi fyrr á þessu ári. Þar vegur þyngst ákvæði um að öll skotvopn skulu geymd í viðurkenndum skotvopnaskápum, en fyrir breytinguna var þetta ekki krafa fyrr en við fjórða skotvopn. Þá er það jafnframt skylda að skotvopn skulu geymd á lögheimilum manna, nema sérstök undanþága lögreglu komi til.“

Það er enn fremur ítrekað fyrir skotvopnaleyfishafa að tryggja að skotvopnaleyfi sé í gildi enda geri vopnalög engan greinarmun á útrunnu leyfi og leyfisleysi. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×