Innlent

Skútur rekur á land í röðum

Árni Sæberg skrifar
Ekki er talið öruggt að bjarga þessari skútu fyrr en lægir.
Ekki er talið öruggt að bjarga þessari skútu fyrr en lægir. Valur Andersen

Þrjár skútur hefur rekið í land við Pollinn á Ísafirði það sem af er degi, eftir að hafa slitnað af legufærum í höfninni. Einni skútunni var komið í tog í morgun og bjargað en of slæmt er í sjóinn eins og er til að bjarga hinum tveimur.

Þetta segir Jón Þór Víglundsson, upplýsingafulltrúi Landsbjargar, í samtali við Vísi. Bálhvasst hefur verið á Norðvesturlandi og á Vestfjörðum í dag og björgunarsveitum á svæðinu hafa borist fjölmargar tilkynningar. 

Í morgun var greint frá því að á Ísafirði hafi lítil skúta slitnað frá bryggju og rekið upp í grjótgarðinn við Pollinn.

Jón Þór segir að á milli klukkan 14 og 15 hafi tvær skútur til viðbótar losnað frá bryggju og enn hafi ekki verið hægt að koma þeim í tog vegna illviðris. Björgunarsveitir frá Ísafirði, Bolungarvík, Hnífsdal og Súðavík hafi verið kallaðar út vegna veðursins. Björgunarsveitarmenn hafi meðal annars unnið að því að koma bátum á land úr svokallaðri Sjóferðahöfn suðaustanmegin á tanganum.

VÍSIR/Thor Jóhann

Þá hafi áhöfn Kobba Láka, björgunarbáts úr Bolungarvík, farið suður í Vigur til þess að sækja bát sem leit út fyrir að vera að sökkva við bryggju. Báturinn sé kominn í tog og á leið til Súðavíkur.



Að neðan má sjá myndefni frá Hólmavík sem Elías Svavar Kristinsson tók. Þar má segja að fallegur regnbogi sé ljósið í myrkrinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×