Innlent

Al­var­legt slys er ís­veggur hrundi í Breiða­merkur­jökli

Tómas Arnar Þorláksson og Rafn Ágúst Ragnarsson skrifa
Björgunarmenn við störf á slysstað.
Björgunarmenn við störf á slysstað. Vísir/Ragnar Axelsson

Einn er látinn og annar alvarlega slasaður eftir að ísveggur í Breiðamerkurjökli hrundi. Tilkynning barst viðbragðsaðilum klukkan 15 og hefur umfangsmikil leit að tveimur ferðamönnum til viðbótar, sem urðu undir ísfargi, staðið yfir.

Tilkynnt var um það um klukkan þrjú síðdegis í dag að ísveggur hafi hrunið þar sem 25 manna hópur var í íshellaskoðunarferð ásamt leiðsögumanni. Fjórir ferðamenn urðu undir farginu og tveir eru þar enn. Umfangsmikil björgunaraðgerð hefur staðið yfir síðan og var allt tiltækt lið kallað út sem og þrjár þyrlur á vegum Landhelgisgæslunnar og danska sjóhersins.

Í fyrstu bárust fregnir af því að íshellir hefði hrunið en síðar kom fram að um hefði verið að ræða ísvegg á milli hellismunna.

Unnið hefur verið að því að flytja búnað og mannskap upp á jökulinn en það hefur reynst erfitt sökum þess hve torfært landslagið er. Ísgröftur og -brot hafa því að mestu farið fram með handafli hingað til, það er að segja ís- og keðjusögum. Á annað hundrað björgunarmanna hafa komið að viðbragðinu.

Í nótt verður tjaldbúðum komið upp á slysstað til að veita björgunarfólki skjól þegar þau eru ekki að vinna en komið hefur fram að vinnan fari fram í törnum þar sem teymi skiptast á að grafa. Ljósabúnaði hefur verið komið upp á vettvangi til að auðvelda björgunarstarfið.

Sveinn Kristján Rúnarsson, yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á Suðurlandi, segir að leit verði haldið áfram fram að miðnætti og að þá verði staðan metin og ákvörðun tekin um framhaldið.

Nýjustu fregnir má finna í vaktinni hér að neðan. Ef hún birtist ekki er ráð að endurhala síðunni.

Veistu meira um málið? Fréttastofa tekur við ábendingum á netfangið [email protected]. Fullum trúnaði er heitið.




Fleiri fréttir

Sjá meira
×