Innlent

Al­var­leg líkams­á­rás í mið­borginni

Vésteinn Örn Pétursson skrifar
Mikill viðbúnaður lögreglu var vegna málsins.
Mikill viðbúnaður lögreglu var vegna málsins. Vísir/Vilhelm

Mikill viðbúnaður lögreglu og slökkviliðs var í miðbæ Reykjavíkur á tólfta tímanum í kvöld. Samkvæmt heimildum fréttastofu var það vegna alvarlegrar líkamsárásar. 

Hvorki lögregla né slökkvilið gátu staðfest við fréttastofu hvers eðlis útkallið var, en heyra mátti mikið sírenuvæl í miðbænum og sjónarvottar sáu bæði lögreglu- og sjúkrabíla á mikilli hraðferð í miðborginni þegar klukkan var farin að ganga miðnætti.

Líkt og áður segir herma heimildir fréttastofu að um alvarlega líkamsárás hafi verið að ræða.

Veistu meira um málið? Fréttastofa tekur við ábendingum á netfangið [email protected]. Fullum trúnaði er heitið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×