Innlent

Tveimur vísað úr Þórs­mörk eftir líkams­á­rás

Jón Þór Stefánsson skrifar
Atvikið átti sér stað í Þórsmörk. Myndin er úr safni.
Atvikið átti sér stað í Þórsmörk. Myndin er úr safni. Vilhelm

Líkamsárás var framin í Þórsmörk að morgni föstudags. Tveimur mönnum var vísað af svæðinu af lögreglu vegna málsins, en ekki þótti ástæða til að aðhafast frekar.

Þetta staðfestir varðstjóri hjá lögreglunni á Suðurlandi. 

Sérsveitin var ekki kölluð út vegna málsins, en svo virðist sem sögusagnir um slíkt hafi sprottið fram.

Helgin sem nú er að klárast er vinsæl ferðahelgi í Þórsmörk, en Laugavegshlaupinu lauk í gær.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×