Innlent

Gætu saksótt sundlaugargest vegna and­láts í Breið­holts­laug

Jón Þór Stefánsson skrifar
Maðurinn lést í Breiðholtslaug í desember 2022.
Maðurinn lést í Breiðholtslaug í desember 2022. Vísir

Héraðssaksóknari mun taka ákvörðun um hvort sundlaugargestur verði sóttur til saka vegna mögulegar ábyrgðar hans á andláti manns sem lést í Breiðholtslaug í desember 2022.

Hinn látni var karlmaður á áttræðisaldri sem lést í heitum potti, en hann hafði legið meðvitundarlaus í honum í þrjár mínútur áður en einhver kom að honum.

Ákærusvið lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu sendi málið til héraðssaksóknara í síðustu viku, en þar verður tekin ákvörðun um hvort umræddur sundlaugargestur verði ákærður. Rúv greinir frá þessu.

Skoðað verður hvort sundlaugargesturinn hafi brotið af sér með því að koma manninum ekki til bjargar.

Ef hann verður ákærður væri það á grundvelli 221. greinar almennra hegningarlaga, en hún varðar þá saknæmu háttsemi þegar einstaklingur kemur ekki einhverjum í lífsháska til hjálpar þegar það myndi ekki stofna lífi eða heilbrigði einstaklingsins í hættu. Háttsemin getur varðað allt að tveggja ára fangelsi eða sektum ef hinn seki á sér málsbætur.

Samkvæmt frétt Rúv eru mjög mörg mál á borði héraðssaksóknara um þessar mundir og því er ekki von á því að ákvörðun hans liggi fyrir á allra næstu mánuðum.

Þá segir að lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafi skoðað upptökur úr öryggismyndavélum við rannsókn málsins til þess að átta sig á aðdraganda andlátsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×