Innlent

Svalir við það að fjúka af húsi í ó­veðrinu

Jón Þór Stefánsson og Bjarki Sigurðsson skrifa
Mynd úr Mývatnssveit
Mynd úr Mývatnssveit Daði Lange

„Veðrið setti strik í ferðir fólks í gærkvöldi og nótt,“ segir Jón Þór Víglundsson upplýsingafulltrúi Landsbjargar í samtali við fréttastofu um verkefni slysavarnafélagsins síðastliðinn sólarhring en vont veður hefur verið víða um landið. Að sögn Jóns Þórs var veðrið verst á norð- austur horninu.

Hann segir að um sé að ræða óvenjuleg verkefni fyrir júnímánuð og vísar til orða veðurfræðinga sem segja sérstakt hvað þetta veður muni vara lengi.

Myndband frá Skútustöðum í morgun.

„Þetta byrjaði í gærkvöldi með því að ferðamenn sem voru á Kísilvegi milli Mývatns og Húsavíkur lentu í vandræðum í snjó. Þar fór björgunarsveitin á Mývatni í að aðstoða fólk á tveimur bílum sem höfðu fest sig,“ segir Jón Þór.

„Seinna um kvöldið fór bíll útaf vegna veðurs við Vaðlaheiðagöng. Það brotnuðu í honum nokkrar rúður og ljóst að það yrði ekki haldið áfram á því ökutæki. Það var fært inn í göngin bara til að komast í göngin.“

Frá Ólafsfirði í morgun.Aðsend

Þá segir hann að seinna um kvöldið hafi skip losnað frá bryggju í Norðfirði. „Það var svo fært fyrir eigin vélarafli milli leiguplássa í höfninni í meira skjól.“ 

Jón Þór segir að í frystihúsinu í Neskaupstað hafi vinhviður mælst allt að 49 metrar á sekúndu.

Ert þú með myndir af óveðrinu? Þú getur sent okkur póst með myndum á [email protected]

Einnig minnist Jón Þór á að hleri hafi losnað af bæ í Breiðdal, og í Reyðarfirði hafi svalir verið við það að fjúka af húsi. Þá voru björgunarsveitir kallaðar út á sjöunda tímanum í morgun vegna göngumanns við Selandafjall sem treysti sér ekki að halda áfram göngu vegna snjóa.

„Það er allavega ljóst að veðurfræðingar voru ekki að fara með neinar fleipur þegar þeir vöruðu við þessu veðri.“

Mynd úr MývatnssveitDaði lange
Mynd úr MývatnssveitDaði Lange



Fleiri fréttir

Sjá meira


×