Innlent

Ó­venju­mikið af snjó­flóðum af manna­völdum

Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar
Kona slasaðist nokkuð alvarlega í snjóflóði af mannavöldum á páskadag.
Kona slasaðist nokkuð alvarlega í snjóflóði af mannavöldum á páskadag. Vísir/Jóhann

Það hefur verið óvenjumikið af snjóflóðum af mannavöldum síðustu daga. Um páskana og fyrir páska snjóaði mikið og blés í hvössum norðaustanáttum með þeim afleiðingum að mikill snjór safnaðist til fjalla. Vindflekar hafa byggst upp í flestum viðhorfum og veikleikar þróast innan snjóþekjunnar.

„Náttúruleg snjóflóðavirkni var mikil á meðan á veðrinu stóð og eftir að því slotaði hafa allnokkur snjóflóð fallið af mannavöldum,“ kemur fram í færslunni.

Þar kemur einnig fram að þessi fjöldi flóða af mannavöldum teljist óvenjulegur og því rétt að leggja áherslu á að fjallafólk, hvort sem það er á skíðum, gangandi eða á vélsleða, gæti hinnar ýtrustu varúðar.

„Jafnframt er ráðlagt að forðast eftir fremsta megni brattar brekkur og huga sérstaklega vel að leiðarvali, forðast gil, brúnir og aðrar landslagsgildrur, lesa snjóflóðaspá og fylgjast með snjóflóðavirkni á svæðinu. Enn er talin mikil hætta á því að fólk setji af stað snjóflóð á Norðurlandi og Austfjörðum og mildi að ekki fór verr í snjóflóðaatvikum síðustu daga.“

Kona slasaðist töluvert

Síðustu vikuna hefur Veðurstofunni borist fregnir af átta snjóflóðum af mannavöldum. Meðal annars á páskadegi þegar skíðahópur lenti í slíku í Dalsmynni. Kona slasaðist töluvert á fæti þar sem flóðið dró hana með sér í gegnum kjarrlendi. Mikill viðbúnaður hafi verið vegna slyssins.

Í gær grófust einnig fjórir í tveimur snjóflóðum í nágrenni Húsavíkur annars vegar og hins vegar í Ólafsfirði. Björgun gekk þó vel í báðum tilfellum og hlaut enginn alvarleg sár.

„Fólk er hvatt til þess að deila upplýsingum um snjóflóð, sérstaklega þegar þau eru af mannavöldum, en þau gefa mikilvægar vísbendingar um stöðugleika snjóþekjunnar og hjálpa okkur á snjóflóðavaktinni við að meta aðstæður og skrifa betri snjóflóðaspár. Hér er hægt að tilkynna snjóflóð til Veðurstofunnar. Einnig er hægt að senda tölvupóst á [email protected].“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×