Samstarf

Heilsu­gæsla í Upp­sveitum Suður­lands - óskað er eftir leigu­hús­næði

Framkvæmdasýslan - Ríkiseignir f.h. ríkissjóðs

Framkvæmdasýslan - Ríkiseignir f.h. ríkissjóðs óska eftir að taka á leigu húsnæði fyrir starfsemi heilsugæslu í Uppsveitum Suðurlands.

Miðað er við að húsnæðið verði tekið á langtímaleigu til 15 ára, fullbúið til notkunar, án lauss búnaðar. Gerð er krafa um staðsetningu innan starfssvæðis Heilbrigðisstofnunar Suðurlands í Uppsveitum Suðurlands þannig að hún sé heppilega staðsett m.v. aðrar starfsstöðvar heilsugæslna á Suðurlandi. Það skal vera gott aðgengi þ.m.t. fyrir hreyfihamlaða, hjólandi, gangandi, sjúkrabifreiðar og næg bílastæði.

Heilsugæsla í Uppsveitum Suðurlands veitir samfellda og alhliða heilsugæsluþjónustu sem grundvallast á sérþekkingu á sviði heimilislækninga, hjúkrunar, heilsuverndar og byggir á víðtæku þverfaglegu samstarfi. Því skiptir staðsetning húsnæðisins, þ.e. nálægð við þéttbýli og helstu stofnbrautir, miklu máli við staðarval.

Húsrýmisþörf er áætluð um 330 - 380 fermetrar fyrir heilsugæslu.

Húsrýmisþörf fyrir íbúð er 40 fermetra.

Nánar um aðrar kröfur sem húsnæðið verður að uppfylla verða aðgengilegar á www.utbodsvefur.is þriðjudaginn 9. janúar 2024.

Við mat á hagkvæmni tilboða verður m.a. tekið tillit til leiguverðs, stærðar húsnæðis og skipulags þess út frá fyrirhugaðri nýtingu, öryggis, afhendingartíma, staðsetningu og aðkomu.

Fyrirspurnir varðandi verkefnið Heilsugæsla í Uppsveitum Suðurlands, skulu sendar á netfangið [email protected].

Fyrirspurnarfrestur rennur út 15. janúar 2024 en svarfrestur er til og með 19. janúar, 2024.

Leigutilboð skal senda á [email protected], eigi síðar en kl. 13:00 miðvikudaginn 31. janúar 2024.

Merkja skal tilboðin; nr. 6090220 – Heilsugæsla í Uppsveitum Suðurlands – Leiguhúsnæði.

Leiga á grundvelli þessarar auglýsingar er undanskilin lögum um opinber innkaup nr. 120/2016, sbr. a. lið 1. mgr. 11. g.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×