Innlent

Tveir í gæslu­varð­haldi vegna um­fangs­mikils mansalsmáls

Jón Þór Stefánsson skrifar
Lögreglustjórinn á Suðurnesjum fer með rannsókn málsins.
Lögreglustjórinn á Suðurnesjum fer með rannsókn málsins. Vísir/Vilhelm

Tveir karlmenn hafa verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald til 27. desember vegna gruns um umfangsmikla brotastarfsemi sem varðar mansal. 

Þetta kemur fram í tveimur úrskurðum Héraðsdóms Reykjaness, sem hafa verið staðfestir í Landsrétti, um gæsluvarðhald mannanna sem eru erlendir ríkisborgarar.

Í báðum úrskurðunum segir að um sé að ræða umfangsmikla brotastarfsemi sem hafi verið nær óslitin síðan þeir komu til landsins. Þá segir að brotin sem þeir eru nú grunaðir um varði allt að tólf ára fangelsi.

Gat lítið sagt um eiginkonu sína

Annar þeirra hefur hlotið tvo refsidóma hér á landi vegna fjölmargra mála. Annars vegar er um að ræða tólf mánaða fangelsisdóm, og hins vegar tveggja mánaða dóm, en báðir dómarnir voru óskilorðsbundnir. Þá segir í gæsluvarðhaldsúrskurðinum að fjölmörg fleiri mál á hendur manninum séu ólokin í refsvörslukerfinu.

Fram kemur að hann hafi sótt um alþjóðlega vernd á Íslandi árið 2021 en verið synjað og brottvísað ári síðar með tíu ára endurkomubanni. Þrátt fyrir það hafi hann komið hingað til lands að nýju í upphafi þessa árs og lagt fram aðra umsókn sama efnis sem nú sætir meðferð Útlendingastofnunar.

Við fyrirtöku málsins kvaðst maðurinn vera giftur íslenskri konu, en hann gat hvorki gefið upp kennitölu hennar né veitt frekari upplýsingar um konuna eða tengsl hennar við landið.

Hinn maðurinn er grunaður um þjófnað í fjölmörgum málum og hefur tvívegis verið fundinn sekur um slíka háttsemi.

Líklegir til að koma sér undan

Í úrskurðunum segir að sækjandi málsins, lögreglustjórinn á Suðurnesjum, hafi talið verulega hættu á að mennirnir myndu reyna að koma sér úr landi, eða komast á annan hátt undan málsókn myndu þeir fá að ganga lausir. 

Dómurinn féllst á það og sagði einnig líklegt að mennirnir myndu halda brotum sínum áfram yrðu þeir frjálsir ferða sinna.

Alda Hrönn Jóhannsdóttir, sem sækir málið fyrir hönd lögreglustjórans á Suðurnesjum, sagðist ekki geta tjáð sig um málið að svo stöddu.

Veistu meira um málið? Vísir tekur við öllum ábendingum á netfangið [email protected] eða í tölvupósti á einstaka blaðamenn. Fullum trúnaði er heitið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×