Innlent

Ægisíðan veru­lega ó­geðs­leg

Jakob Bjarnar skrifar
Pappír og úrgang er að finna í fjörborðinu við Ægisíðu.
Pappír og úrgang er að finna í fjörborðinu við Ægisíðu. Vísir/Vilhelm

Bjarni Brynjólfsson fyrrverandi upplýsingastjóri Reykjavíkurborgar segir ástandið við Ægisíðuna slæmt og fjörukantinn þar verulega ógeðslegan: Endalausar skólpleifar í þarabunkum, leifar af klósettpappír og fleira miður geðslegt.

Bjarni efnir til umræðu í Facebook-hópnum Vesturbænum þar sem hann segir ástandið í fjörunni við vesturbæinn skelfilegt.

Íbúar í Vesturbænum segja ástandið hafa verið svona í nokkurn tíma.Vísir/Vilhelm

„Ekki myndi ég vilja svamla í sjónum við Ægisíðuna þessa dagana. Ef gengið er eftir fjörukantinum frá skólpdælustöð Veitna má sjá endalausar skólpleifar í þarabunkum, leifar af klósettpappír og fleira miður geðslegt.“

Bjarni segir ekkert að sjá á vef Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur um að dælustöð Veitna hafi farið á yfirfall eða óhreinsuðu skólpi hafi verið sleppt þar út. Og ekkert sé heldur að finna á vefsvæði Veitna svona í fljótu bragði.

Gamalt dömubindi í þaranum.Vísir/vilhelm

En „ástandið er eiginlega verra núna en það var hérna um árið þegar óblönduðu skólpi var dælt í sjóinn í margar vikur án viðvörunar. Það er nokkuð ljóst að Veitur eða Reykjavíkurborg verða að ráðast í hreinsun. Þetta er varla viðunandi svona.“

Frá hreinsun í fjörunni árið 2018.Vísir/Vilhelm

Bjarni segist vera búinn að senda ábendingu á Heilbrigðiseftirlitið en hann hefur enn ekki fengið neitt svar. Vísir gerði heiðarlega tilraun til að ná í heilbrigðiseftirlitið en fékk upplýst eftir bið í þjónustuveri Reykjavíkurborgar, að ef blaðamaður vildi ræða við einhvern þar þá þyrfti hann að senda póst á [email protected]

„Það eru mjög margar deildir sem vilja fá allt orðið skriflegt,“ sagði sú sem þar var fyrir svörum.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×