Innlent

Kona í haldi lögreglu vegna andláts karlmanns

Helena Rós Sturludóttir skrifar
Konan var handtekin á vettvangi en maðurinn fannst látinn í íbúð fjölbýlishúss í austurborginni um helgina. 
Konan var handtekin á vettvangi en maðurinn fannst látinn í íbúð fjölbýlishúss í austurborginni um helgina.  Vísir/Vilhelm

Kona um fertugt var í gær úrskurðuð í gæsluvarðhald í Héraðsdómi Reykjavíkur til 27. september á grundvelli rannsóknarhagsmuna að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.

Konan var handtekin á vettvangi þar sem maður á sextugsaldri fannst meðvitundarlaus í íbúð fjölbýlishúss í austurborginni á laugardag, að því er fram kemur í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. 

Lögreglu barst tilkynning um málið á laugardagskvöld og þegar hún kom á staðinn hóf hún þegar í stað endurlífgunartilraunir á manninum. Hann var í framhaldinu fluttur á Landspítalann en var úrskurðaður látinn við komuna. 

Í tilkynningu lögreglu kemur fram að ekki verði veittar frekari upplýsingar um rannsókn málsins að svo stöddu. 

Ævar Pálmi Pálmason, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá miðlægri rannsóknardeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, segir konuna í haldi vegna rannsóknarhagsmuna og nú sé beðið eftir niðurstöðum rannsókna líkt og krufningu til að fá betri mynd á málið. Bæði séu Íslendingar. 

Veistu meira um málið? Vísir tekur við öllum ábendingum á netfangið [email protected] eða í tölvupósti á einstaka blaðamenn. Fullum trúnaði er heitið.

Fréttin hefur verið uppfærð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×