Viðskipti innlent

52 misstu vinnuna í tveimur hóp­upp­sögnum í ágúst

Atli Ísleifsson skrifar
Unnur Sverrisdóttir er forstjóri Vinnumálastofnunar.
Unnur Sverrisdóttir er forstjóri Vinnumálastofnunar. Vísir/Arnar

Tvær tilkynningar um hópuppsagnir bárust Vinnumálastofnun í nýliðnum ágústmánuði þar sem 52 starfsmönnum var sagt upp störfum.

Frá þessu segir í tilkynningu á vef Vinnumálastofnunar. Þar kemur fram að 27 starfsmönnum hafi verið sagt upp störfum í iðnaði. Er þar vísað til hópuppsagnar hátæknifyrirtækisins Skagans 3X á Ísafirði en ákveðið hefur verið að leggja niður starfstöð fyrirtækisins í bænum.

Á vef Vinnumálastofnunar segir ennfremur að 25 hafi verið sagt upp hjá fyrirtæki sem starfar í upplýsingatækni.

Veistu meira um málið? Vísir tekur við öllum ábendingum á 

[email protected]. Fullum trúnaði er heitið.

Hópuppsagnirnar koma flestar til framkvæmda í nóvember og desember 2023.

Tvær tilkynningar um hópuppsagnir bárust Vinnumálastofnun í júlí þar sem samtals 53 starfsmönnum var sagt upp störfum.

Með hópuppsögn er átt við uppsagnir atvinnurekanda á fastráðnum starfsmönnum þar sem fjöldi starfsmanna sem sagt er upp á þrjátíu daga tímabili er að minnsta kosti 10 starfsmenn í fyrirtækjum sem venjulega hafa 21-99 í vinnu, minnst 10% starfsmanna í fyrirtækjum með 100-299 í vinnu eða minnst 30 starfsmenn þar sem venjulega eru 300 eða fleiri.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×