Samstarf

Fram­kvæmda­sýslan: Ríkis­eignir f.h. ríkis­sjóðs óska eftir hús­næði til leigu fyrir pípu­lagninga­deild Borgar­holts­skóla

Framkvæmdasýslan - Ríkiseignir f.h. ríkissjóðs
Gerð er krafa um staðsetningu húsnæðis innan Grafarvogs.
Gerð er krafa um staðsetningu húsnæðis innan Grafarvogs. Vilhelm

Gerð er krafa um staðsetningu húsnæðis innan Grafarvogs og að það verði helst í göngufæri við aðalbyggingu skólans.

Miðað er við að húsnæðið verði tekið á leigu í 5 ár með möguleika á framlengingu í 2–3 ár í viðbót. 

Húsnæðið skal afhendast fullbúið og tilbúið til notkunar í síðasta lagi 15. ágúst 2023.

Heildarstærð húsnæðis, brúttó, er áætluð 500 – 520 fermetrar. Nánar um stærðir rýma og aðrar kröfur sem húsnæðið verður að uppfylla verða aðgengilegar á www.utbodsvefur.is þriðjudaginn 30. maí 2023.

Gott aðgengi skal vera fyrir hreyfihamlaða, hjólandi og gangandi.

Við mat á hagkvæmni tilboða verður m.a. tekið tillit til leiguverðs, stærðar húsnæðis og skipulags þess út frá fyrirhugaðri nýtingu, öryggis, afhendingartíma, staðsetningu og aðkomu.

Fyrirspurnir varðandi verkefnið Pípulagningadeild í Borgarholtsskóla, skulu sendar á netfangið [email protected].

Fyrirspurnarfrestur rennur út 1. júní 2023 en svarfrestur er til og með 2. júní 2023.

Leigutilboð skal senda á [email protected], eigi síðar en kl. 13:00 föstudaginn 9. júní 2023.

Merkja skal tilboðin; nr. 230525 – Pípulagningadeild í Borgarholtsskóla – Leiguhúsnæði

Leiga á grundvelli þessarar auglýsingar er undanskilin lögum um opinber innkaup nr. 120/2016, sbr. a. lið 1. mgr. 11. gr






Fleiri fréttir

Sjá meira


×