Viðskipti innlent

Hlé gert á starf­semi Niceair og flugi af­lýst

Vésteinn Örn Pétursson skrifar
Niceair var stofnað á síðasta ári.
Niceair var stofnað á síðasta ári. Vísir/Tryggvi

Norðlenska flugfélagið Niceair hefur gert hlé á starfsemi sinni og aflýst öllum flugferðum sínum frá og með morgundeginum. Þetta herma heimildir fréttastofu. 

Í fréttatilkynningu frá félaginu segir að ákvörðun um þetta hafi verið tekin vegna þess að erlendur flugrekstraraðili félagsins, HiFly, hafi misst einu flugvél félagsins vegna vanskila við eigendur hennar. Það geri Niceair ómögulegt að standa við skuldbindingar sínar gagnvart farþegum.

Þrátt fyrir góðan árangur á síðastliðnu ári, góða bókunarstöðu og framtíðarhorfur sé komin upp staða sem valdi því að ómögulegt sé fyrir Niceair að veita þá þjónustu sem til stóð. Því hafi verið gert hlé á starfsemi og stefnt að endurskipulagningu.

Þá er haft eftir Þorvaldi Lúðvík Sigurjónssyni framkvæmdastjóra að um sé að ræða sorglega niðurstöðu. Fjármögnunarlota sem tryggja átti rekstur félagsins fram á veginn hafi verið nýafstaðin.

„Við höfum haldið úti reglulegu áætlunarflugi milli Norðurlands og Kaupmannahafnar og Tenerife síðan í júní á [síðasta] ári með 71 prósent sætanýtingu. Við erum búin að sýna fram á að þessi þjónusta er mjög þörf og heimamarkaðurinn hefur reynst meiri og öflugri en vonir stóðu til. Á þessu tímabili hefur veður sjaldnast haft áhrif, en 2 prósent flugferða okkar voru með einhvers konar frávik. Flug um Akureyrarflugvöll reyndist ekki vera vandamál um hávetur og var lent og tekið á loft í marglitum viðvörunum á tímabilinu. Þetta er sorgleg niðurstaða fyrir alla. Mest hörmum við þau óþægindi sem af þessu hljótast fyrir okkar viðskiptavini,” er haft eftir Þorvaldi.

Vélin kyrrsett fyrir stuttu

Í lok síðasta mánaðar var flugvél sem félagið hafði á leigu kyrrsett við komu til Kaupmannahafnar vegna deilna eiganda vélarinnar við þá sem leigðu vélina áfram til félagsins.

Niceair var stofnað snemma á síðasta ári og fór jómfrúarflug sitt frá Akureyri til Kaupmannahafnar í júní síðastliðnum. Heimahöfn félagsins er á Akureyri en áfangastaðir sem flogið hefur verið til eru Kaupmannahöfn, London, Tenerife og Alicante.

Í tilkynningu félagsins er viðskiptavinum bent á að senda erindi sín á netfangið [email protected], auk þess sem frekari upplýsingar megi nálgast á vefsíðu félagsins.

Fréttin hefur verið uppfærð með upplýsingum úr tilkynningu frá Niceair. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×