Innlent

Fjölmargir Tene-farar sársvekktir og í óvissu

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Séð yfir strönd á Tenerife þar sem margur Íslendingurinn hugðist sóla sig yfir hátíðarnar.
Séð yfir strönd á Tenerife þar sem margur Íslendingurinn hugðist sóla sig yfir hátíðarnar. Getty Images

Nokkur hundruð Íslendingar reiknuðu með að vera þessa stundina í háloftunum á leið í sól og sumaryl á Tenerife. Óvíst er hvenær hægt verður að fljúga. Á vef Keflavíkurflugvallar má sjá að mjög misjafnt er hvernig flugfélögin sjá daginn fyrir sér hvað varðar óvissu með flug.

  • Flugi Icelandair til Tenerife klukkan 08:40 í morgun hefur verið aflýst.
  • Flug Neos til Las Palmas klukkan 09 í morgun er enn á áætlun, klukkan 11.
  • Flug Play til Tenerife sem var áætlað klukkan 09 í morgun er nú sett á 14:30.
  • Icelandair hefur aflýst báðum flugferðum sínum sem fyrirhugaðar voru klukkan 09 í morgun.

Einhverjir Tene-farar bíða því eftir nánari upplýsingum og vonast eflaust til að komast utan. Ferðalangar með Icelandair vita að ekkert verður af brottför hjá þeim í dag.

Í tilkynningu frá Isavia, sem send var út í gærkvöldi, sagði að röskun gæti orðið á flugi til og frá vellinum til morgundagsins. Voru farþegar hvattir til að fylgjast með upplýsingum um flugtíma á vef Isavia eða hjá viðkomandi flugfélögum.

Svona var staðan á vef Keflavíkurflugvelli á ellefta tímanum í dag.

Viðmælandi Vísis sem var á leiðinni í sólina með fjölskyldunni í morgun kynnti sér upplýsingarnar á vefnum í morgun. Flugið var á áætlun svo hann dreif sig út á Reykjanesbraut.

Reyndar komst hann bara áleiðis að álverinu enda var svo til ófært um Reykjanesbrautina. Vegagerðin greip til þess ráðs að láta plóg aka á undan hóp bíla fram og til baka frá höfuðborgarsvæðinu til Reykjanesbrautar.

Um fimmtíu bílar voru fluttir í einu og komst viðmælandi Vísis til flugvallarins í tæka tíð til að ná fluginu í sólina. Nema þá var búið að aflýsa flugferðinni sem var með Icelandair.

Því var ekkert annað en að fara aftur út í bíl og aka sem leið lá, á eftir ruðningstæki Vegagerðarinnar, aftur til borgarinnar. Þangað komst hann svo aftur á ellefta tímnanum.

Ekki voru allir svo heppnir. Um tíuleytið var allri umferð lokað á Reykjanesbraut. Rauði krossinn hefur opnað fjöldahjálparstöð í íþróttahúsinu við Sunnubraut í Reykjanesbæ. Þangað geta allir leitað sem hafa ekki í nein hús að venda eða hafa orðið veðurtepptir.

Uppfært klukkan 12:00

Play hefur nú einnig aflýst flugferð sinni til Tenerife. Neos áætlar enn brottför klukkan 14 samkvæmt vef Isavia.


Ætlaðirðu til Tenerife í morgun og veist ekki í hvorn fótinn þú átt að stíga? Sendu okkur þína sögu á [email protected] eða símanúmer svo við getum heyrt í þér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×