Innlent

Þjóðvegurinn lokaður við Núpsvötn vegna umferðarslyss

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Björgunarsveitarfólk við lokun vegarins rétt austur af Kirkjubæjarklaustri.
Björgunarsveitarfólk við lokun vegarins rétt austur af Kirkjubæjarklaustri. Vísir/ÁkiPéturs

Þjóðveginum hefur verið lokað við Lómagnúp við Núpsvötn vegna umferðarslyss. Þetta kemur fram á vef Vegagerðarinnar.

Þar segir jafnframt að þjóðvegurinn sé lokaður frá Kirkjubæjarklaustri til Skaftafells vegna sandfoks. Brúarsmíð stendur yfir við Hverfisfljót og Núpsvötn í Skaftárhreppi. 

Björgunarsveitin Kyndill á Kirkjubæjarklaustri hafði ekki verið kölluð út vegna slyssins. 

Ríkisútvarpið hefur eftir lögreglu að húsbíll hafi fokið út af veginum. Tveir erlendir ferðamenn hafi verið í bílnum, karl og kona. Þau hafi verið í belti og ekki hlotið meiðsli.

Fréttin hefur verið uppfærð.


Veistu meira um málið? Vísir tekur við öllum ábendingum á [email protected]. Fullum trúnaði er heitið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×