Innlent

Vís­bendingar um heima­til­búnar sprengjur á Sel­fossi

Vésteinn Örn Pétursson skrifar
Lögreglustöðin á Selfossi.
Lögreglustöðin á Selfossi. Vísir/Vilhelm

Lögreglan á Suðurlandi segir að undanfarna daga hafi embættinu borist tilkynningar um sprengingar á Selfossi. Leifar af sprengibúnaði beri þess merki að um heimatilbúnar sprengjur sé að ræða.

Þetta kemur fram í tilkynningu lögreglunnar en þar segir að meðal annars sé notast við ætandi efni við gerð sprengjanna. Efnum sé blandað saman í lokuð ílát, til að mynda plastflöskur, og við efnahvörf myndist mikið magn af gasi sem valdi sprengingu.

„Þessi efni og gasið sem myndast eru hættuleg fyrir þann sem útbýr sprengjuna og þá sem eru í nágrenni við búnaðinn þegar sprengingin verður. Þá eru þekkt dæmi um að kraftur af samskonar sprengjum getur og hefur laskað hendur einstaklinga ef þær springa í höndum þeirra. Þá þarf heldur ekki að fjölyrða um skaðsemi þess að ætandi efni lendi á húð og jafnvel í andlit og augu viðkomandi.“

Lögreglan biðlar því til foreldra á svæðinu að kanna hvort börn þeirra séu að höndla með slík efni og ræða við þau um mögulega skaðsemi heimatilbúinna sprengja. Eins óskar lögreglan eftir upplýsingum sem almenningur kann að búa yfir í tengslum við sprengingarnar eða háværa hvelli sem heyrst hafa á Selfossi síðastliðna daga.

„Hægt er að hafa samband við Lögregluna á Suðurlandi í síma 444-2000 á dagvinnutíma eða með því að senda tölvupóst á netfangið [email protected]. Ef fólk telur sig finna órofnar plastflöskur sem bera þess merki um að í þeim sé torkennileg efni skal ekki hreyfa við þeim og hafa beint samband við 1-1-2 og tilkynna um slíkt til lögreglu.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×