Svona verður dagskráin við setningu Alþingis á þriðjudag Atli Ísleifsson skrifar 8. september 2022 15:05 Graduale Nobili syngur við þingsetninguna. Graduale Nobili Alþingi verður sett þriðjudaginn 13. september og hefst þingsetningarathöfnin klukkan 13:30 með guðsþjónustu í Dómkirkjunni, venju samkvæmt.
Í tilkynningu frá skrifstofu Alþingis segir að forseti Íslands, biskup Íslands, forseti Alþingis, ráðherrar og alþingismenn muni ganga fylktu liði til kirkjunnar úr Alþingishúsinu. „Séra Hildur Eir Bolladóttir, prestur í Akureyrarkirkju, predikar og séra Elínborg Sturludóttir, prestur í Dómkirkjunni, þjónar fyrir altari. Dómorganistinn Kári Þormar leikur á orgel og Kammerkór Dómkirkjunnar syngur við athöfnina. Að guðsþjónustu lokinni ganga forseti Íslands, biskup Íslands, forseti Alþingis, ráðherrar, alþingismenn og aðrir gestir til þinghússins. Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, setur Alþingi, 153. löggjafarþing. Graduale Nobili syngur við þingsetningarathöfnina, undir stjórn Sunnu Karenar Einarsdóttur. Þingsetningarfundi verður síðan frestað til kl. 15:30. Þegar þingsetningarfundi verður fram haldið verður m.a. hlutað um sæti þingmanna og fjárlagafrumvarpi fyrir árið 2023 útbýtt,“ segir í tilkynningunni. Stefnuræða Katrínar Jakobsdóttur forsætisráðherra og umræður um hana verða svo miðvikudagskvöldið 14. september klukkan 19:35 og Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra mun svo mæla fyrir frumvarpi til fjárlaga fyrir árið 2023 fimmtudaginn 15. september.
Alþingi Kórar Mest lesið Skyndileg krafa upp á milljónir króna eins og lélegt grín Innlent Hér eru „þessar elskur“ Innlent Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Brenna líkin á nóttunni Innlent Svona var fundur ráðherra og ríkislögreglustjóra um landamærin Innlent Allar landamærastöðvar efldar og þeim mögulega fækkað Innlent Óvissustig á Hellisheiði, í Þrengslum og á Mosfellsheiði Innlent Húsfélag sektaði íbúa um 10 þúsund vegna of lélegra sameignarþrifa Innlent Starfsmenn Arion himinlifandi með daggæsluna Innlent Sprengdu upp leynilega kjarnorkuvopnarannsóknarstöð í Íran Erlent Fleiri fréttir Skorar á fólk að dvelja heilan dag á kaffistofu Samhjálpar Húsfélag sektaði íbúa um 10 þúsund vegna of lélegra sameignarþrifa Hér eru „þessar elskur“ Hærra kolefnisgjald og minna til nýja Landspítalans vegna frestunar kílómetragjalds Fjárlögin áfram rædd í dag og styttist í þinglok Bein útsending: Frambjóðendur tala við nemendur Allar landamærastöðvar efldar og þeim mögulega fækkað Færa til fjármuni til þess að bæta aðstöðu á bráðamóttöku Brenna líkin á nóttunni Starfsmenn Arion himinlifandi með daggæsluna Svona var fundur ráðherra og ríkislögreglustjóra um landamærin Óvissustig á Hellisheiði, í Þrengslum og á Mosfellsheiði Skyndileg krafa upp á milljónir króna eins og lélegt grín Rannsaka hópárás á tvo einstaklinga Fólk velji frekar Sósíalista því VG hafi stungið kjósendur í bakið Fjárlaganefnd gefur grænt ljós á útboð á Vestfjörðum Sýkna í málinu sem setti svip sinn á forsetakosningarnar Sextán flugferðum aflýst Konan er fundin Þórður Snær afboðaði komu sína Hitamet féll Keppast við að tjá sig um skrif Þórðar: Kristrún taki stóra áhættu með að halda honum á lista Viðbrögð Sósíalista og VG við nýrri könnun og daggæsla hjá Arion Málaferlin auki gildi verksins og hann sé hvergi af baki dottinn Bein útsending: Utanríkisstefna á umbrotatímum Refsing milduð í stóra skútumálinu Sósíalistar færu ekki í stjórn sem ætlaði að selja Íslandsbanka Hugmyndir Ingu séu aðför að kjörum alls vinnandi fólks Hjúkrunarfræðingar hafa skrifað undir samning Arion opnar dagvistun til að auðvelda starfsfólki að brúa bilið Sjá meira