Innlent

Tón­leikum frestað með eins dags fyrir­vara en verða haldnir 353 dögum síðar

Magnús Jochum Pálsson skrifar
Lewis Capaldi mun ekki spila á Íslandi á þessu ári eins og til stóð en áhugasamir geta séð hann á næsta ári.
Lewis Capaldi mun ekki spila á Íslandi á þessu ári eins og til stóð en áhugasamir geta séð hann á næsta ári. Getty/Joseph Okpako

Tónleikar Lewis Capaldi sem áttu að fara fram í gær en var frestað með eins dags fyrirvara í fyrradag hafa fengið nýja dagsetningu. Samkvæmt tilkynningu skipuleggjenda munu þeir fara fram 11. ágúst 2023, eða 353 dögum eftir að þeir áttu fyrst að fara fram.

Viðburðarfyrirtækið Reykjavík Live, sem stendur að baki tónleikunum, birti færslu á Facebook-síðu sinni í morgun þar sem þau greindu frá nýju dagsetningunni. 

Þar segir að þau hafi unnið að því síðustu tvo daga „með Lewis og hans fólki ásamt Laugardalshöllinni að finna nýja lausa dagsetningu“ fyrir tónleikana sem verði föstudaginn 11. ágúst 2023.

Ætla að reyna að bæta fólki tjón

Einnig kemur fram í færslunni að allir keyptir miðar muni gilda á nýju dagsetninguna og að þeir sem sjái sér ekki fært að mæta geti sótt um endurgreiðslu. 

Þá segir að miðahafar ættu að hafa fengið tölvupóst með upplýsingum um hvernig megi óska eftir endurgreiðslu. Hafi miðakaupendur ekki fengið póst sé hægt að hafa samband við skipuleggjendur á Facebook eða [email protected] til að fá aðstoð.

Eftir að tónleikunum var frestað í fyrradag greindu margir óánægðir miðakaupendur frá því að þeir hefðu tapað tugum þúsunda vegna frestunarinnar og stutts fyrirvara hennar. Meðal þeirra var Reyðfirðingur sem segist hafa tapað hundrað þúsund krónum.

Í viðtali við Vísi í gær sagði Jón Bjarni Steinsson, einn skipuleggjenda, að Reykjavík Live væri búið að taka saman nöfn fólks sem hefði borið fjárhagslegt tjón vegna frestunarinnar og að þau myndu reyna að bæta fólki tjónið.


Tengdar fréttir

Hundrað þúsund krónur í vaskinn eftir frestunina

Viktor Klimazewski flaug til Reykjavíkur frá Egilsstöðum í gærmorgun til þess að fara á tónleika með Lewis Capaldi sem áttu að fara fram í kvöld. Tónleikunum var frestað nokkrum tímum síðar og eru Viktor og kærasta hans hundrað þúsund krónum fátækari þar til annað kemur í ljós.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×