Albumm

Elskum plötubúðir á morgun - laugardag 13. ágúst

Steinar Fjeldsted skrifar

Laugardaginn 13. ágúst verður sannkölluð tónlistarveisla í plötu verslunum í miðborg Reykjavíkur.

Í samstarfi við Tónlistarborgina Reykjavík taka 12 Tónar, Smekkleysa, Lucky Records og Reykjavík Record Shop höndum saman og bjóða upp á tónleikadagskrá í verslununum frá kl 13 til 17. Verkefnið er stutt af Sumarborginni Reykjavík. Hver viðburðurinn rekur annan þannig að fólk getur gengið á milli verslana og notið allra tónlistaratriðanna, svolítið eins og að vera á lítilli tónlistarhátíð.

Dagskráin er eftirfarandi:

Kl 13: Hróðmar Sigurðsson og Ingibjörg Elsa Turchi í Reykjavík Record Shop

Kl 14: Börn í Smekkleysu

Kl 15: Mr. Silla í 12 Tónum

Kl 16: Skrattar í Lucky Records

Aðgangur ókeypis!

Þessi grein birtist fyrst á Albumm.is. Albumm var stofnaður árið 2014 og fjallar um íslenska tónlist og menningu frá öllum hliðum. Hægt er að hafa samband með því að senda póst á [email protected].








×