Lífið

Íslensk dagskrá í Tívolí þann 17. júní

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Stór hluti Íslendinga hefur skellt sér í Tívolí í Kaupmannahöfn og átt góða stund.
Stór hluti Íslendinga hefur skellt sér í Tívolí í Kaupmannahöfn og átt góða stund. Unsplash.com/Felix Hoffmann

Þjóðhátíðardagur Íslendinga, 17. júní verður í ár hluti af hátíðardagskrá Tívolís í Kaupmannahöfn sem gengur undir nafninu Tivoli Celebrates. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Íslandsstofu.

Þjóðhátíðardaginn ber upp á föstudag, og á föstudögum er alltaf mikið um að vera í Tívolí og von á fjölda gesta. Í tilefni dagsins verður vegleg kynning á Íslandi, íslenskri menningu og hefðum, og garðurinn skreyttur í íslensku fánalitunum.

Dagskrá í Tívolí á 17. júní:

  • Íslendingakórarnir Dóttir og Hafnarbræður halda sameiginlega tónleika
  • Textílhönnuðurinn og -listakonan Ýr Jóhannsdóttir (Ýrúrarí) verður með vinnustofu
  • Uppistand með Villa Neto
  • Boðið upp á Íslandsköku sem hönnuð er af íslenskum kökugerðarmeistara kaffihússins Cakenhagen
  • Heimsókn Gunnars Karls Gíslasonar, matreiðslumeistara og eiganda Dill
  • Íslenskur tónlistarmaður á Plænen útisviðinu kl. 19 (TBD)
  • Tina Dikow á Plænen útisviðinu kl. 22

Auk skipulagðrar dagskrár býður Tívolí íslenskum fyrirtækjum að kynna sig og starfsemi sína á markaðstorgi í garðinum þennan dag frá klukkan 11-19.

Verð á kynningarbás fyrir minni fyrirtæki er frá DKK 1.500 (án VSK) og fyrir stærri fyrirtæki frá DKK 5.000 (án VSK).

Allar nánari upplýsingar um bása og kynningartækifæri í Tívolí á 17. júní veitir Cristina Torlini hjá Tívolí, [email protected]






Fleiri fréttir

Sjá meira


×