Albumm

Varð fljótt vinsælasti tónlistarmaður landsins

Steinar Fjeldsted skrifar

Ásgeir Trausti heldur upp á tíu ára afmæli plötunnar Dýrð í dauðaþögn með stórtónleikum í Eldborg 27. ágúst.

Ásgeir stígur á svið með stórhljómsveit og strengjum og verður platan flutt í heild sinni í bland við frumflutning á glænýju efni. Tíu ár eru liðin síðan Ásgeir Trausti gaf út sín fyrstu lög á vormánuðum 2012 og varð fljótt vinsælasti tónlistarmaður landsins. Platan hans Dýrð í dauðaþögn kom út sama ár og sló öll íslensk sölumet.

Platan hefur selst í yfir 40.000 eintökum og setið samtals 400 vikur á Tónlistanum sem er yfirlit yfir mest seldu plötur landsins. Þannig hefur þessi frumraun Ásgeirs, sem var tvítugur þegar platan kom út, skipað sér í sess með ekki ómerkari plötum en Gling Gló og barnaplötunum sígildu Kardemommubærinn, Dýrin í Hálsaskógi og Einu sinni var sem ein af 5 mest seldu plötu Íslandssögunnar. Vestfirska nýstirnið Árný Margrét hitar upp.

Sala hefst 22. apríl kl. 10. Forsala hefst 20. apríl kl. 10 Skráning í forsöluna HÉR

Þessi grein birtist fyrst á Albumm.is. Albumm var stofnaður árið 2014 og fjallar um íslenska tónlist og menningu frá öllum hliðum. Hægt er að hafa samband í [email protected].








×