Innlent

Húsleit og handtaka á Ísafirði

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Snævi þakinn Ísafjörður þar sem lögreglumenn á vegum héraðssaksóknara réðust í húsleit í dag.
Snævi þakinn Ísafjörður þar sem lögreglumenn á vegum héraðssaksóknara réðust í húsleit í dag. Vísir/Egill

Embætti héraðssaksóknara réðst í morgun í umfangsmiklar aðgerðir á Ísafirði í tengslum við rannsókn á máli tengt Innheimtustofnun sveitarfélaga. Að minnsta kosti einn hefur verið handtekinn og farið í húsleit í bænum.

Ríkisútvarpið greindi fyrst frá en samkvæmt heimildum Vísis eru um tíu starfsmenn á vegum héraðssaksóknara, bæði lögreglumenn og sérfræðingar, að störfum í bænum. Aðgerðir eru yfirstandandi.

Ólafur Þór Hauksson héraðssaksóknari segir málið á viðkvæmu stigi. Hann staðfestir að embættið sé í aðgerðum fyrir vestan en að öðru leyti geti hann ekki tjáð sig um málið.

Samkvæmt heimildum fréttastofu var Bragi Axelsson, fyrrverandi forstöðumaður útibús Innheimtustofnunar á Ísafirði, handtekinn í dag. Honum var á dögunum sagt upp störfum ásamt forstjóranum Jóni Ingvari Pálssyni. Báðir höfðu verið sendir í leyfi í desember.

Kæra í kjölfar úttektar Ríkisendurskoðunar

Aldís Hilmarsdóttir, sem tók við stjórnarformennsku hjá Innheimtustofnun í desember en var áður yfirmaður hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, staðfesti við fréttastofu í morgun að þeim Braga og Jóni Ingvari hefði verið sagt upp störfum.

„Við höfum verið með málið til skoðunar frá því að þeir voru sendir í leyfi og stjórnin tók þá ákvörðun fyrir helgi að vísa þeim úr starfi,“ sagði Aldís. 

Ríkisendurskoðun hóf úttekt á verkefnum stofnunarinnar í september. Það var gert að ósk samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins. Það var gert vegna fyrirhugaðrar tilfærslu verkefna Innheimtustofnunar til ríkisins.

Úttektinni var ætlað að greina annars vegar núverandi skipulag, rekstur og kostnað við verkefni Innheimtustofnunar og hins vegar með hvaða hætti verkefnum stofnunarinnar yrði best komið fyrir hjá ríkinu. Ríkisendurskoðun upplýsti ráðuneytið í byrjun desember meðal annars um að svör Innheimtustofnunar sveitarfélaga við úttektarspurningum væru óviðunandi.

Forstöðumaður á Ísafirði fékk sjálfur verkefni

Vefmiðillinn Bæjarins besta á Ísafirði hafði heimildir fyrir því í desember að í úttekt Ríkisendurskoðunar hafi komið upp að stjórnendurnir hefðu ráðstafað innheimtuverkefnum meðal annars til fyrirtækis í eigu Braga, forstöðumanns útibúsins á Ísafirði. Málið væri litið alvarlegum augum og yrði rannsakað til fulls.

Ný stjórn Innheimtustofnunar ákvað á fyrsta fundi sínum í desember að senda þá Jón Ingvar og Braga í leyfi frá störfum. Þeim var sem fyrr segir sagt upp fyrir helgi.

Ómar Valdimarsson, fyrrverandi forstjóri Samkaupa, var ráðinn forstjóri í stað Jóns Ingvars.

Veistu meira um málið? Vísir tekur við öllum ábendingum á [email protected]. Fullum trúnaði er heitið.


Tengdar fréttir

Fyrst sendir í leyfi og nú sagt upp störfum

Jóni Ingvari Pálssyni, forstjóra Innheimtustofnunar sveitarfélaga, og Braga Axelssyni, forstöðumanni stofnunarinnar á Ísafirði, hefur verið sagt upp störfum. Uppsagnirnar koma í kjölfar þess að þeir voru sendir í leyfi en Ríkisendurskoðun hóf úttekt á verkefnum Innheimtustofnunar síðastliðið haust.

For­stjóri Inn­heimtu­stofnunar í leyfi og stjórninni skipt út

Jón Ingvar Pálsson, forstjóri Innheimtustofnunar, og Bragi Axelsson, forstöðumaður stofnunarinnar á Ísafirði, hafa verið sendir í leyfi frá störfum. Þá hefur ný stjórn verið skipuð eftir að fráfarandi stjórn óskaði eftir því að stíga til hliðar. Breytingarnar eru gerðar í kjölfar þess að Ríkisendurskoðun hóf úttekt á verkefnum Innheimtustofnunar í september.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×