Okkar Astrid Lindgren kveður Jakob Bjarnar skrifar 23. mars 2022 15:45 Guðrún Helgadóttir snerti nánast hvert heimili landsins með bókum sínum sem voru uppfullar af glettni og frásagnargleði. Þjóðin syrgir nú einn sinn allra vinsælasta og merkasta höfund. Reykjavíkurborg Eftir að andlátsfregn birtist, að Guðrún Helgadóttir rithöfundur og fyrrverandi alþingismaður væri látin, hafa fjölmargir lýst yfir aðdáun sinni á þessum áhrifamikla rithöfundi, og kvatt hana með miklu þakklæti. Þjóðin syrgir nú einn sinn allra vinsælasta höfund.
Vísir greindi frá andláti Guðrúnar fyrr í dag og ljóst má vera á kveðjum og eftirmælum sem finna má á samfélagsmiðlum að áhrif Guðrúnar verða seint ofmetin. Hér verða nefnd fáein dæmi sem ættu að lýsa vel því hversu mikil áhrif Guðrún hefur haft, ekki síst með barnabókum sínum. Dagur B. Eggertsson borgarstjóri er einn þeirra sem birtir pistil helgaðan Guðrúnu. Hann nefnir að hún hafi verið borgarlistarmaður og þjóðargersemi sem ól okkur öll upp í gegnum bækur sínar. „Rithöfundur, borgarfulltrúi og þingkona. Sannur brautryðjandi og þannig mætti raunar áfram telja.“ Ómældur sjarmi, réttsýni og mælska „Hún brá ljósi á lífið, líf barna og venjulegra fjölskyldna, ekki síst borgarlífið og Reykjavik með glettni, húmor og einstakri frásagnargáfu. Guðrún setti börn í hásæti bóka sinna og frásagna og var löngu á undan sinni samtíð í heimi íslenskra barnabóka. Hún var bara svo ótrúlega skörp, snjöll og hnyttin,“ segir borgarstjórinn meðal annars. Dagur segir jafnframt það einstakan heiður fyrir Reykjavíkurborg þegar Guðrún féllst á að stofnuð væru barnabókaverðlaun í hennar nafni. Þá var hún gerð að borgarlistarmanni Reykjavíkur 2017, ekki seinna vænna. „Líklega tafði pólítiskur ferill hennar fyrir því - en Guðrún átti hvað stærstan þátt að fella meirihluta Sjálfstæðisflokksins, þegar það gerðist í fyrsta skipti árið 1978. Það var afrek. Þar naut hún gáfna sinna, réttsýni, mælsku og ómælds sjarma sem talaði beint inn í hjarta fólks og lét aldrei eiga neitt inni hjá sér - að óþörfu.“ Stóð Astrid Lindgren síst að baki Illugi Jökulsson rithöfundur og samfélagsrýnir segir að ekki þurfi að orðlengja mikilvægi Guðrúnar fyrir íslenskar bókmenntir og íslensk börn á öllum aldri. „Hún var okkar Astrid Lindgren og stóð hinni sænsku stallsystur sinni síst að baki. Ég naut þeirra forréttinda einu sinni að fá að möndla með eitt helsta stórvirki hennar — Hafnarfjarðarbálkinn Sitji guðs englar — og gera upp úr honum fyrst útvarpsleikgerð og síðan sviðsgerð sem sýnd var í Þjóðleikhúsinu. Ég vona að mér hafi tekist að sýna þessu frábæra verki sóma, Guðrún sagðist vera ánægð og meira hrós þurfti ég ekki,“ segir Illugi sem vottar aðstandendum samúð. Ingibjörg Þórisdóttir leikkona með meiru kveður vinkonu sína og nágranna með þakklæti: „Takk fyrir spjallið í gegnum tíðina, takk fyrir rabarbarann í garðinum og takk fyrir sögurnar þínar og visku elsku nágranni. Blessuð sé minning Guðrúnar Helgadóttur.“ Og Ragna Gestsdóttir blaðamaður segir einfaldlega: „Stjarna æsku minnar og áhrifavaldur margra kynslóða.“ Áhrif hennar verða aldrei ofmetin María Kristjánsdóttir leikstjóri segir: „Gunna Helga farin. Húmoristinn og mannvinurinn. Bjargvættur minn í MR sem ég þakkaði sennilega aldrei fyrir hjálpina.“ Gunnar Smári Egilsson blaðamaður segir Guðrúnu Helgadóttur stórmenni í íslenskum bókmenntum. „Áhrif hennar verða aldrei ofmetin. Hún kom með sagnamennsku, sjónarhorn, samfélags- og mannskilning inn í barnabækur sínar sem hafði mótandi áhrif á kynslóð rithöfunda, ef ekki tvær,“ segir Gunnar Smári og tiltekur að Guðrún hafi verið uppáhaldshöfundur móður sinnar, enda Hafnfirðingur eins og hún. „Þegar mamma bjó í Mörkinni fór hún einu sinni í heimsókn til nöfnu sinnar á hjúkrunarheimilinu og þær töluðu lengi um Hafnarfjörð og fólkið sem var umgjörð æsku þeirra. Og mamma var alltaf á leiðinni í aðra heimsókn, en svo kom cóvid, veikindi og vesen. Það er mikið talað um að cóvid hafi rænt unga fólkið æskunni en cóvid rændi líka gamla fólkið ellinni, gerði hana óþarflega einmana og þunga,“ segir Gunnar Smári sem líkt og aðrir sendir samúðarkveðjur til fjölskyldu Guðrúnar og vina. Guðrún Helgadóttir hafði ómæld áhrif ekki síst með verkum sínum sem einkenndust af glettni og frásagnargleði. Forlagið Og þakkir til hennar sjálfrar fyrir að hafa auðgað líf og okkar og menningu, til stundanna þegar ég las bækurnar hennar fyrir bræðrasyni mína fyrst og síðar fyrir börnin mín. Það voru allt miklar gæðastundir. Skemmtileg, klár, hlý og gefandi Og talandi um Hafnarfjörð, þar sem ræturnar liggja; Rósa Guðbjartsdóttir bæjarstjóri þar ritar pistil sem hún birtir á sinni Facebook-síðu, blessuð sé minning stórbrotinnar konu. „Sú sorgarfregn berst að Guðrún Helgadóttir einn elskaðasti rithöfundur okkar og fyrrverandi alþingismaður sé látin. Það er mikill heiður að hafa fengið að kynnast henni persónulega í gegnum störf okkar hjá Velferðarsjóði íslenskra barna til fjölda ára. Þvílíkur karakter; skemmtileg, klár, hlý og gefandi sem lífgaði svo sannarlega upp á fundina og hittingana með frásögnum sínum, reynslusögum og hnyttnum tilsvörum.“ Rósa segist enn eiga allar bækur eftir Guðrúnu, þær sem hún las upp til agna í æsku. „Minnist ég þess líka að hafa staðið spennt fyrir framan prentvélarnar þegar pabbi var að prenta einhverjar bóka hennar og ég fékk að lesa síðu og síðu sem runnu út úr vélunum. Bókunum hennar get ég eins og þúsundir Íslendinga þakkað svo margt. Það var ánægjuleg stund þegar við hjá Hafnarfjarðarbæ heiðruðum hana fyrir þremur árum þegar Bóka- og bíóhátíð barnanna var sett það árið og hátíðin tileinkuð verkum hennar.“ Rósa segir tilveruna litlausari án Guðrúnar en fjársjóðurinn sem hún skilji eftir sig sé stórkostlegur og hann muni lifa um aldur og ævi. Elsku Guðrún Helgadóttir, takk Rannveig Tenchi borgarfulltrúi Pírata er einnig ein fjölmargra sem kveður Guðrúnu með miklu þakklæti: „Þar sökk hjartað pínu, þótt á sama tíma ég sé umfram allt þakklát fyrir framlag Guðrúnar til æsku margra okkar,“ skrifar Rannveig og birtir hjartatákn. „Aldrei hitti ég þessa merku konu, en hún hafði afar dýrmæt og mikilvæg áhrif á líðan mína sem barn, en lestraráhugi minn var allur henni að þakka. Fyrir barn sem varð að eiga griðarstað í öðrum heimi en á heimili sínu var heimur bókanna sá staður.“ Rannveig segir þetta hafa verið mikla hvatningu fyrir sex ára gömlu sig sem vildi læra að lesa og það strax. „Ég kom heim í 5. bekk með „Sitji guðs englar“ úr skólanum og settist í sófann í Gautlandi, en mamma var í símanum þegar ég kom heim, eitt af kjaftasímtölunum hennar. Ég kláraði bókina áður en mamma lauk símtalinu, ég andaði henni að mér. Elsku Guðrún Helgadóttir, takk.“ Snerti hvert einasta heimili landsins Lilja Dögg Alfreðsdóttir menningarmálaráðherra setur einnig niður orð á sinni Facebook-síðu þar sem hún segir að nú sé einn af ástkærustu rithöfundum þjóðarinnar fallin frá. „Framlag Guðrúnar til barnabókmennta var lofsvert og segja má að Guðrún hafi með verkum sínum snert hvert einasta heimili landsins. Þannig munu til dæmis uppátækjasömu tvíburarnir Jón Oddur og Jón Bjarni, með sínu hreina og tæra barnslega sakleysi, eiga sér stað í hugum og hjörtum landsmanna um aldur og ævi,“ segir Lilja. Ráðherra nefnir jafnframt að framlag Guðrúnar í þágu borgarbúa og þjóðarinnar á vettvangi stjórnmálanna sé þakkarvert. Guðrún var borgarfulltrúi í áratug og alþingismaður til 16 ára. en hún gegndi meðal annars embætti forseta þingsins. „Blessuð sé minning þessarar góðu konu sem lagði heldur betur sitt af mörkum til lands og þjóðar.“
Andlát Alþingi Bókmenntir Samfélagsmiðlar Bókaútgáfa Mest lesið Skyndileg krafa upp á milljónir króna eins og lélegt grín Innlent Hér eru „þessar elskur“ Innlent Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Brenna líkin á nóttunni Innlent Svona var fundur ráðherra og ríkislögreglustjóra um landamærin Innlent Húsfélag sektaði íbúa um 10 þúsund vegna of lélegra sameignarþrifa Innlent Allar landamærastöðvar efldar og þeim mögulega fækkað Innlent Rjúfa tólf vikna múrinn við rannsókn í Neskaupstað Innlent Óvissustig á Hellisheiði, í Þrengslum og á Mosfellsheiði Innlent Töluðu saman í fyrsta sinn í tvö ár Erlent Fleiri fréttir Hófu frumkvæðisathugun á aðkomu Jóns í ráðuneytinu Rýnt í kannanir og tendrun jólatrés í Hafnarfirði Alma verði heilbrigðisráðherra í stjórn Kristrúnar Rjúfa tólf vikna múrinn við rannsókn í Neskaupstað Skorar á fólk að dvelja heilan dag á kaffistofu Samhjálpar Húsfélag sektaði íbúa um 10 þúsund vegna of lélegra sameignarþrifa Hér eru „þessar elskur“ Hærra kolefnisgjald og minna til nýja Landspítalans vegna frestunar kílómetragjalds Fjárlögin áfram rædd í dag og styttist í þinglok Bein útsending: Frambjóðendur tala við nemendur Allar landamærastöðvar efldar og þeim mögulega fækkað Færa til fjármuni til þess að bæta aðstöðu á bráðamóttöku Brenna líkin á nóttunni Starfsmenn Arion himinlifandi með daggæsluna Svona var fundur ráðherra og ríkislögreglustjóra um landamærin Óvissustig á Hellisheiði, í Þrengslum og á Mosfellsheiði Skyndileg krafa upp á milljónir króna eins og lélegt grín Rannsaka hópárás á tvo einstaklinga Fólk velji frekar Sósíalista því VG hafi stungið kjósendur í bakið Fjárlaganefnd gefur grænt ljós á útboð á Vestfjörðum Sýkna í málinu sem setti svip sinn á forsetakosningarnar Sextán flugferðum aflýst Konan er fundin Þórður Snær afboðaði komu sína Hitamet féll Keppast við að tjá sig um skrif Þórðar: Kristrún taki stóra áhættu með að halda honum á lista Viðbrögð Sósíalista og VG við nýrri könnun og daggæsla hjá Arion Málaferlin auki gildi verksins og hann sé hvergi af baki dottinn Bein útsending: Utanríkisstefna á umbrotatímum Refsing milduð í stóra skútumálinu Sjá meira