Albumm

Indí smellur um ástina og óttann

Steinar Fjeldsted skrifar

Tónlistarmaðurinn Elvar gaf í dag út lagið Heartbeat Away From Heartbreak. Lagið er kraftmikið indí popplag en textinn fjallar um óttann við að missa ástina og hamingjuna.

Lagið er fyrsta smáskífan sem Elvar gefur út eftir að fyrsta plata hans, Daydreaming, kom út árið 2019 en Elvar og Magnús eru að vinna að meira efni sem kemur út síðar á þessu ári.

Finna má áhrif frá the Strokes, Phoebe Bridgers, Beach Boys og Brit Poppi en Magnús Árni Öder Kristinsson útsetti og sá um hljóðfæraleik ásamt Elvari.

Þessi grein birtist fyrst á Albumm.is. Albumm var stofnaður árið 2014 og fjallar um íslenska tónlist og menningu frá öllum hliðum. Hægt er að hafa samband í [email protected].








×