Albumm

Tónlistarmínútur með Steinari Fjeldsted – djúsí stöff þessa vikuna

Ritstjórn Albumm skrifar
Steinar Fjeldsted fer yfir allt það helsta sem er að gerast í Íslenskri tónlist í Tónlistarmínútum á FM 957
Steinar Fjeldsted fer yfir allt það helsta sem er að gerast í Íslenskri tónlist í Tónlistarmínútum á FM 957

Steinar Fjeldsted hjá Albumm.is fer alla fimmtudaga yfir það helsta sem er að gerast í Íslenskri tónlist í Tónlistarmínútum hjá Ósk Gunnars á FM957.

Að þessu sinni eru það Ólafur Arnalds en hann hefur tónleikaferðalag sitt um heiminn með stórtónleikum í Háskólabíói, 23. maí næstkomandi, Þríeykið Vök var að gefa út nýtt lag, Lose Control, ásamt tónlistarmyndbandi. Lagið er lostafullt og hressandi og fylgir í kjölfar laginu Stadium, sem gefið var út í ársbyrjun. Út var að koma nýtt lag með Elízu Newman og heitir það Maybe someday og er önnur smáskífan af komandi fimmtu breiðskífu hennar sem kemur út á vormánuðum 2022.

Lestu frétt um Ólaf Arnalds HÉR

Lestu frétt um Vök HÉR

Lestu frétt um Elízu Newman HÉR

Þessi grein birtist fyrst á Albumm.is. Albumm var stofnaður árið 2014 og fjallar um íslenska tónlist og menningu frá öllum hliðum. Hægt er að hafa samband í [email protected].








×