Innlent

Bein útsending: Nýtt kort sem sýnir áformaðar virkjanir í íslenskri náttúru

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Þverárdalur er gróðursæll dalur norðaustan við Hengil, milli Nesjavalla og Hrómundartinds og er svæðið vinsælt til útivistar. Orkuveita Reykjavíkur áformar að reisa 90 MW jarðvarmavirkjun í Þverárdal.
Þverárdalur er gróðursæll dalur norðaustan við Hengil, milli Nesjavalla og Hrómundartinds og er svæðið vinsælt til útivistar. Orkuveita Reykjavíkur áformar að reisa 90 MW jarðvarmavirkjun í Þverárdal. Landvernd

Nýr og uppfærður vefur Náttúrukorts Landverndar verður formlega opnaður í dag klukkan 12:30. Sýnt verður beint frá viðburðinum í streymi hér að neðan.

Í tilkynningu frá Landvernd segir að ásókn innlendra og erlendra orkufyrirtækja í orkuauðlindir landsins hafi aldrei verið meiri en um þessar mundir. Að auki sé verið að reyna að þrýsta í gegn gríðarlegum áformum um byggingu vindorkuvera víða um land. Þau séu ný ógn við íslenskt dýralíf, náttúru og umhverfi, sem mikilvægt er að almenningur sé meðvitaður um.

Náttúrukortið er lifandi vefsjá sem sýnir einstök svæði á Íslandi sem eru í hættu vegna virkjanahugmynda. Á kortinu eru tilgreind áform um vatnsaflsvirkjanir, jarðvarmavirkjanir og vindorkuver. Náttúrukortið byggir á rammaáætlun og opinberum gögnum um þegar virkjuð svæði, sem og önnur virkjanaáform. Á kortinu má m.a. sjá svæði sem eru í nýtingarflokki, biðflokki og verndarflokki samkvæmt rammaáætlun.

Auk þess sýnir Náttúrukortið allar stærri virkjanir sem eru nú þegar til staðar um allt land. Á Náttúrukortinu eru ljósmyndir, myndbönd og texti þar sem fjallað er ítarlega um hvert svæði, náttúrufar þess, skipulagsmál og fleira svo landsmenn geti betur glöggvað sig á því hvað er í húfi.

Í vefsjá Landverndar er auk þess hægt að leggja ýmis önnur kort yfir svæðin, t.d. vistgerðir, friðlýst svæði, skipulagsmál, aðalskipulag o.fl.

„Náttúrukortið verður áfram í stöðugri uppfærslu enda spretta upp nýjar áskoranir nær daglega. Það er von Landverndar að landsmenn leggi kortinu lið með því að senda inn efni sem bætir eða dýpkar upplýsingarnar, til dæmis myndefni eða ábendingar varðandi einstaka staði sem fjallað er um. Landvernd tekur fagnandi á móti slíku efni á [email protected],“ segir í tilkynningu Landverndar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×