Innlent

Stór vöruflutningabíll í vegkantinum á Suðurlandi

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Bíllinn liggur úti í vegkantinum á Hringveginum austan Þjórsár.
Bíllinn liggur úti í vegkantinum á Hringveginum austan Þjórsár. Vísir/Vésteinn

Stór vöruflutningabíll liggur á hliðinni úti í vegkantinum á Hringveginum austan Þjórsár. Þetta sýna ljósmyndir sem blaðamaður Vísis náði á svæðinu í dag.

Oddur Árnason, yfirlögregluþjónn á Suðurlandi, vísaði á lögregluna á Hvolsvelli vegna málsins fyrr í dag. Hann hafði sjálfur ekki heyrt af málinu sem hann sagði gefa til kynna að engin slys hefðu orðið á fólki.

Ekki hefur náðst í fulltrúa Lögreglunnar á Hvolsvelli vegna málsins.

Veistu meira um málið? Vísir tekur við öllum ábendingum á [email protected]. Fullum trúnaði er heitið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×