Innlent

„Þetta er mjög öflug lægð“

Viktor Örn Ásgeirsson skrifar
Leiðindaveður í miðborg Reykjavíkur.
Leiðindaveður í miðborg Reykjavíkur. Vísir/Vilhelm

Veðurfræðingur á Veðurstofunni segir að lægðin fari af stað eins og við var að búast. Lægðin er þó ekki búin enn og veður mun líklega koma til með að ná hámarki á miðnætti. Appelsínugular og gular viðvaranir eru í gildi á Suðvesturhorninu í dag, og flestar í gildi til klukkan fimm eða sex í fyrramálið.

Teitur Arason, veðurfræðingur á Veðurstofunni, segir að veðrið fari ört versnandi. Það muni líklega vera nokkuð hvasst þangað til í fyrramálið, en eins og fyrr segir nær lægðin hámarki á miðnætti.  Teitur segir að lægðin komi sér ekki á óvart og veðurspár virðast ætla að ganga eftir. Lægðir sem þessar séu algengar á þessum árstíma: Víðtækur stormur og rok og sums staðar enn hvassara.

„Þetta er nú svona þrýstingur sem að maður sér nú á Grænlandshafi flesta vetur, 930 hPa, þannig að hún er kannski ekki mjög óvenjuleg. En jú, þetta er mjög öflug lægð og appelsínugul viðvörun en þetta sést svona flesta vetur, þessi þrýstingur. Og það eru nokkrar appelsínugular viðvaranir á hverju ári, þannig að þetta er ekkert óvenjulegt,“ segir hann.

Teitur tekur ekki undir nöldur blaðamanns, sem kallaði veðrið haustveður, og væri helst til í snjó og „skíðaveður.“

„Það er yfirleitt mest af óveðrum í janúar og febrúar, byrjar oft seint í desember og verst í janúar og febrúar. Þannig að þetta er akkúrat mesti óróleikatíminn í veðrinu. Svona gerist alltaf með lægðum á veturna, það kemur hlýtt loft með þeim og það sem veldur þessari lægð eru átök milli heimskautalofts og hlýs lofts úr suðri,“ segir Teitur Arason veðurfræðingur.

Þrátt fyrir að lægðin slái veðurfræðinginn ekki út af laginu segir Teitur að rokið geti valdið tjóni í nótt. Það eigi enn eftir að koma í ljós en björgunarsveitir eru í viðbragðsstöðu.

Náðir þú myndum eða myndböndum af óveðrinu? Endilega sendu okkur myndir eða myndbönd á tölvupóstfangið [email protected].


Tengdar fréttir

Björgunar­sveitirnar farnar að finna fyrir ó­veðrinu

Kvöldið er svo sannarlega hafið hjá björgunarsveitum víðsvegar á landinu. Útköllum í tengslum við óveður sem nú gengur yfir Suðvesturland og Vesturland fer fjölgandi. Appelsínugular veðurviðvaranir eru í gildi á nær öllu Vesturlandi og Suðvesturhorni landsins.

Sögu­lega djúp lægð í kortunum

Lægðin sem nú stefnir á landið úr vestri stefnir í að verða fádæma djúp. Ef frá eru taldir fellibyljir er ekki vitað um margar lægðir hér á landi sem eru dýpri.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×