Albumm

Framúrskarandi teknó með miklu flæði

Ritstjórn Albúmm.is skrifar

Tónlistarmaðurinn Daníel Þorsteinsson en TRPTYCH er nafnið sem hann notar yfir tónlistarsköpun sína.  

Tónlistarmaðurinn Daníel Þorsteinsson en TRPTYCH er nafnið sem hann notar yfir tónlistarsköpun sína. 

Danni hefur verið lengi og afar áberandi í Íslensku tónlistarlífi en margir þekkja hann sem trommuleikarann góða! Hann er líklega þekktastur fyrir að hafa lamið húðir með hljómsveitinni Maus en hann hefur heldur betur breytt um stefnu. 

Það er teknóið sem heillar hann þessa dagana, hann hefur reyndar alltaf verið mikill Raf, Teknó, danstónlistar unnandi. Kappinn var að senda frá sér plötuna Spawn Apart sem má lýsa sem drungalegri teknó plötu með miklu flæði og framúrskarandi smáatriðum. 

Albumm mælir klárlega með þessari frábæru plötu og við mælum einnig með að fólk hlusti á hana í heyrnatólum!

Fylgstu með TRPTYCH á Trptych.com, Facebook og Instagram

Þessi grein birtist fyrst á Albumm.is. Albumm var stofnaður árið 2014 og fjallar um íslenska tónlist og menningu frá öllum hliðum. Hægt er að hafa samband í [email protected].








×