Viðskipti innlent

Ein hópuppsögn í nóvember

Eiður Þór Árnason skrifar
Dregið hefur úr atvinnuleysi á þessu ári. 
Dregið hefur úr atvinnuleysi á þessu ári.  Vísir/Vilhelm

Vinnumálastofnun barst ein tilkynning um hópuppsögn í nóvember þar sem fjórtán starfsmönnum var sagt upp störfum í sérfræði- tækni- og vísindalegri starfsemi. Uppsagnirnar taka flestar gildi á tímabilinu janúar til apríl 2022.

Þetta kemur fram á vef Vinnumálastofnunar. Skráð atvinnuleysi var 4,9% í október og lækkaði úr 5,0% í september. Ekki var tilkynnt um neinar hópuppsagnir í september og október. 

Tvær tilkynningar bárust í ágúst þar sem 65 starfsmönnum var sagt upp störfum. 52 í sjávarútvegi þar sem gert var ráð fyrir endurráðningu og þrettán í sérfræði- tækni- og vísindalegri starfsemi.

Með hópuppsögn er átt við uppsagnir atvinnurekanda á fastráðnum starfsmönnum þar sem fjöldi starfsmanna sem sagt er upp á þrjátíu daga tímabili er að minnsta kosti 10 starfsmenn í fyrirtækjum sem venjulega hafa 21-99 í vinnu, minnst 10% starfsmanna í fyrirtækjum með 100-299 í vinnu eða minnst 30 starfsmenn þar sem venjulega eru 300 eða fleiri.

Veistu meira um málið? Vísir tekur við ábendingum á [email protected]. Fullum trúnaði heitið.


Tengdar fréttir

Atvinnuleysi 5,8 prósent í október

Árstíðaleiðrétt atvinnuleysi var 5,8 prósent í október, samkvæmt vinnumarkaðsrannsókn Hagstofu Íslands. Atvinnuþátttaka var 79,2 prósent hlutfall starfandi var 75,5 prósent.

Tvær hóp­upp­sagnir í ágúst

Vinnumálastofnun bárust tvær tilkynningar um hópuppsagnir í ágúst þar sem 65 starfsmönnum var sagt upp störfum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×