Albumm

Dr. Gunni boðar yður mikinn fögnuð!

Ritstjórn Albúmm.is skrifar
Dr. gunni

Fyrir stuttu komu út stutt skífurnar Aumingi með bónuspoka og Ég er í vinnunni sem eru af væntanlegri LP plötu Dr. Gunna sem kemur út á Spotify þann 15. október og heitir Nei, ókei. 

 Hægt er að nálgast stutt skífurnar á Spotify og Youtube. Platan kemur einnig út á vínyl síðar á árinu. 

Útgáfutónleikar Dr. Gunna í tilefni af útkomu Nei, ókei verða haldnir á rokkbúllunni Húrra þann 21. október nk. kl. 20 og er miðasala hafin á tix.is. Auk Dr. Gunna koma fram góðir gestir sem verða kynntir til leiks þegar nær dregur.

Hafin er  forsala á vínyl sem áætlað er að komi úr framleiðslu í nóvember. Forsalan fer einnig fram á tix.is. Þar er hægt að gera kostakaup á vínyl og miðum á útgáfutónleikana. Nei, ókei er 12 laga LP-plata, sú fyrsta með hljómsveitinni Dr. Gunni síðan prjál-útgáfan „Í sjoppu“ kom út 2015, og fyrsta alvöru platan síðan „Stóri hvellur“ kom út 2003. Platan kemur út í takmörkuðu magni á vínyl og er því mikilvægt að hafa hraðar hendur og forpanta til að ná í eintak! 

Auk Gunnars Hjálmarssonar skipa Guðmundur Birgir Halldórsson, Grímur Atlason og Kristján Freyr Halldórsson sveitina. Þegar vínyllinn kemur úr framleiðslu verður hann keyrður heim að dyrum (á rafmagnsbíl) kaupenda á höfuðborgarsvæðinu. Aðrir fá gripinn sendan á kostnað viðtakenda.

Þessi grein birtist fyrst á Albumm.is. Albumm var stofnaður árið 2014 og fjallar um íslenska tónlist og menningu frá öllum hliðum. Hægt er að hafa samband í [email protected].








×