Albumm

Júníus Meyvant heldur tónleika eftir tveggja ára hlé

Ritstjórn Albúmm.is skrifar

Júníus Meyvant kemur fram ásamt hljómsveit sinni í Bæjarbíói í Hafnarfirði föstudaginn 24. September.

Það eru að verða komin tvö ár síðan Júníus Meyvant hélt síðast tónleika hér á landi og spenningur Júníusar og hljómsveitar því gífurlega mikill að koma fram. Um er að ræða 200 manna viðburð og verður því engin krafa um hraðpróf.

Ljósmynd: Spessi.

Undanfarna mánuði hefur Júníus Meyvant haldið sér uppteknum við að semja og taka upp nýtt efni en hann er nú tilbúinn með nýja plötu sem mun koma út á næsta ári og má búast við að nýtt efni verði frumflutt á þessum tónleikum.

Ekki missa af Júníusi Meyvant ásamt hljómsveit í hinum einstaka tónleikasal Bæjarbíós í Hafnarfirði föstudaginn 24. september. Hægt er að nálgast miða á Tix.is.

Þessi grein birtist fyrst á Albumm.is. Albumm var stofnaður árið 2014 og fjallar um íslenska tónlist og menningu frá öllum hliðum. Hægt er að hafa samband í [email protected].








×