Að vinna of mikið er í orðsins fyllstu merkingu að drepa okkur Rakel Sveinsdóttir skrifar 28. júní 2021 07:01 Flesta foreldra dreymir um að vera til staðar fyrir börnin sín og síðar barnabörn. En það að vinna 55 stundir eða meira á viku eykur líkurnar á því að um öðru hvoru megin við fimmtugsaldurinn fari heilsan að bresta. Birtingarmyndirnar eru ólíkar en afleiðingarnar oft þær að viðkomandi deyr of ungur og frá sínum nánustu. Vísir/Getty Í nýlegri grein BBC er sagt frá niðurstöðum alþjóðlegrar rannsóknar sem sýna að sífellt fjölgar í þeim hópi fólks sem deyr of ungt í kjölfar of mikillar vinnu. Greinin ber yfirskriftina „How overwork is literally killing us.“ Ótímabært dauðsfall sem afleiðing af of mikilli vinnu, er algengara hjá körlum en konum.
Ef þú ert í hópi þeirra sem vinnur 55 klukkustundir eða meira á viku, er tilefni til að staldra við. Því samkvæmt niðurstöðum þessarar rannsóknar má búast við því að öðru hvoru megin við fimmtugsaldurinn skili þessi mikla vinna sér í því að eitthvað í heilsunni brestur. Þessir heilsubrestir geta verið af ýmsum toga. Og oft eru þeir þannig að fólk tengir dauðsfallið ekki við það að hafa unnið of mikið. Samkvæmt niðurstöðum rannsóknarinnar deyja fleiri í heiminum í dag af of mikilli vinnu, en af Malaríu. Hollt mataræði og hreyfing ekki nóg Í grein BBC er tekið dæmi um 53 ára gamla konu, sem vegnar vel í starfi og taldi sig lifa heilbrigðu og góðu lífi. Stundaði hreyfingu og lagði áherslu á hollt mataræði. Þessi kona var hins vegar vön því að vinna á kvöldin og um helgar. Svona þegar þess þurfti. Þegar hún fór fyrst að finna fyrir einhverjum óvenjulegum verkjum, var hennar fyrsta hugsun: „Nei, ég má nú ekkert vera að því núna að verða veik. Það er hreinlega alltof mikið að gera!“ Konan endaði með að fá hjartaáfall. En lifði það sem betur fer af. Ekki eru þó allir hins svo heppnir. Því árlega deyja 750 þúsund manns langt fyrir aldur fram, sem rakið er til of mikillar vinnu. Það er ekki nóg að stunda hreyfingu og hollt matarræði því í heiminum fjölgar í þeim hópi fólks sem deyr í kjölfar of mikillar vinnu. Niðurstöður nýrrar alþjóðlegrar rannsóknar á þetta sérstaklega við um fólk sem vinnur 55 stundir eða meira á viku. Er vinnan þess virði?Vísir/Getty Of seint að draga úr vinnunni um fimmtugt Rannsóknin stóð yfir frá árinu 2000 til ársins 2016. Þátttakendur í rannsókninni voru um allan heim. Niðurstöðurnar sýna meðal annars að staðan fer versnandi með hverju árinu. Þannig mælast um 9% fólks vinna of mikið í dag, sem er hærra hlutfall en var um aldamótin þegar rannsóknin hófst. Verst mælist staðan í Suðaustur Asíu. Það er meðal annars er rakið til þess að þar eru laun mjög lág og erfitt fyrir fólk að framfleyta sér nema með of mikilli vinnu. Í sumum löndum mælast jafnvel börn í áhættuhópi. Evrópa virðist koma ágætlega út við fyrstu sýn. Og þó. Því niðurstöður rannsóknarinnar sýna að meðaltal vinnustunda í Evrópu mælist lægra yfir árið því þar fær fólk að jafnaði lengra sumarfrí og meira frí í kringum hátíðar. En vinnur mikið á milli fría. Þá sýna niðurstöðurnar að oft fer of mikil vinna ekki að bitna á heilsunni, fyrr en öðru hvoru megin við fimmtugt. Nú kann sumum að finnast það hljóma langsótt að fólk hreinlega deyi af völdum of mikillar vinnu. En rýnum aðeins betur í málin. Kulnun og umræða um kulnun er eitt dæmi um það hvernig of mikil vinna og álag er að hafa slæm áhrif á heilsuna. Þá hefur lífstílssjúkdómum farið fjölgandi. Fjölmargar rannsóknir hafa einnig sýnt að þegar að fólk vinnur of mikið, er meiri hætta á að hollt matarræði eða hreyfing sitji á hakanum. Og nú hefur þessi rannsókn sýnt fram á að fólk sem vinnur 55 stundir eða meira á viku, er líklegra til að deyja langt fyrir aldur fram. Í umfjöllun BBC er mælt með því að vinnustaðir fari í auknum mæli að skoða fleiri leiðir til að auka sveigjanleika í starfi. Þá er því haldið fram að stjórnvöld þurfi að skoða aðgerðir af sinni hálfu. Einstaklingar þurfa líka að líta í eiginn barm. Því það að ætla að gera það um fimmtugt gæti hreinlega verið of seint. Nánar má lesa um rannsóknina á vefsíðu BBC Worklife.
Góðu ráðin Vinnumarkaður Heilsa Tengdar fréttir Vinnualkar og helstu einkenni þeirra Við tölum oft um fólk sem við teljum vera algjöra vinnualka. Eða viðurkennum okkur sjálf sem vinnualka. Stundum tölum við um að það sé jákvætt að vera vinnualki. Svona eins og það sé tilvísun í að vera mjög duglegur í vinnu. 1. júní 2021 07:01 „Verum óhrædd og þorin og prófum okkur áfram“ „Mitt ráð til þeirra sem eru að stíga þau skref að stytta vinnuvikuna er að horfa á verkefnið sem umbótatækifæri og nota þau verkfæri sem hönnunarhugsun færir okkur,“ segir Sara Lind Guðbergsdóttir sérfræðingur hjá Ríkiskaupum og þýðandi bókarinnar „Styttri“ eftir dr. Alex S. Pang framtíðarfræðings í Kísildal í Bandaríkjunum. 16. apríl 2021 07:02 Það vilja allir vera „Svalir“ Líney Árnadóttir, sérfræðingur hjá VIRK segir stjórnendur þurfa að þekkja einkenni streitu og vita hvernig streita þróast. Eitt verkfærið sem vinnustaðir geta notað er hinn svo kallaði Streitustigi. Á þessum stiga getur fólk mátað sína líðan miðað við eftirfarandi stig: Svalur – Volgur – Logandi – Bráðnaður – Brunninn. 17. mars 2021 07:01 Spáir því að vinnuvikan styttist fljótlega í 35 stundir og síðan 30 Ásberg Jónsson framkvæmdastjóri Nordic Visitor spáir því að mörg fyrirtæki muni á þessum áratug stytta vinnuvikuna enn meir en nú er oft rætt um. „Ég trúi því að við förum almennt að verðmeta tíma okkar á annan hátt og þar muni frístundir vega hærra. Ég er nokkuð sannfærður um að eftir ekki svo mörg ár verði flestir vinnustaðir landsins búnir að stytta vinnuvikuna niður í 35 tíma og fyrir lok þessar áratugar verði fjöldi fyrirtækja kominn niður í 30 tíma vinnuviku,“ segir Ásberg. 21. janúar 2021 07:01 Líðan starfsfólks snýst ekki um það sem er í tísku hverju sinni Fagleg heilsa, félagsleg heilsa, líkamleg heilsa, andleg heilsa og fleira. Allt eru þetta flokkar sem skipta máli þegar hugað er að líðan starfsfólks á vinnustöðum. 23. september 2020 15:31 Mest lesið Greiðsluáskorun Samstarf Ætla að binda enda á skattaívilnun fyrir rafmagnsbíla Viðskipti erlent „En við getum aldrei talað um að hann sé að gera þetta fyrir vin sinn“ Viðskipti innlent Eini sjö sæta rafbíllinn í sínum verðflokki Samstarf Mega ekki lengur skreyta sig með konunglegum fjöðrum Viðskipti erlent „Pólitíkin er dugleg í þessu en einkageirinn kann þetta ekki nógu vel“ Atvinnulíf Húsið sem keypt var á þrjár milljónir til sölu á 83 milljónir Viðskipti innlent Hélt tryggingunni vegna geymslu á innbúi í Grindavík Neytendur Níu varðhundar neytenda sameinast á einum vef Neytendur Falskir afslættir og þrýstingur við sölu á Temu Neytendur Fleiri fréttir „Pólitíkin er dugleg í þessu en einkageirinn kann þetta ekki nógu vel“ Að byggja upp vinnustað sem hræðist ekki breytingar Stærðin skiptir ekki máli Ólafur Ingi: „Ég er kostuð eiginkona“ Einróma niðurstaða að Hörður sé eins og Kristján í Frozen „Reglugerðin tekur gildi hvort sem menn hafa þetta hugrekki eða ekki“ Allt í steik: Samtalið við yfirmanninn „Okkur langar til að búa til nýja tegund af bjórmenningu“ „Eitthvað við kvöldin og nóttina sem ég heillast af“ Dýrara að gera ekkert: „Erum öll að pissa í sömu laugina“ Úrelt kerfi: „Síðan kom bara einhver bíll og tæmdi allt“ Sorp: Fólk að hoppa niður plastið í tunnunum til að þjappa því „Ekkert ósvipaður leikur og menn léku í bönkunum fyrir bankahrun“ „Fyrsta verk er án gríns að fá mér lýsi og tékka á Vísi“ Kosningaspenna á vinnustöðum og rifrildi um pólitík Sif Jakobs: „Ekta demantar eru nú einfaldlega ræktaðir“ „Hörðustu samningaviðræðurnar voru við yngsta fólkið Eitraður starfsmaður og góð ráð „Enginn kvartað yfir því þegar ég hef skúrað“ Ekki trompast við fólk í vinnu eða á fundum „Síðan kemur í ljós að við erum í gjörólíkum störfum“ „Opinberi geirinn er að breytast og þar þarf mikinn fjölda verkefnastjóra“ B-týpa sem vill verða A en þarf tíma til að „morgna sig“ Fólki á helst að líða betur eftir vinnudaginn en þegar það mætti Slökkt á asanum: „Hljómar kannski auðveldlega en er það ekki“ Konurnar ofþreyttar en karlmenn vilja meiri frið til að vinna „Allir alltaf að segja að hann sé svo mjúkur“ „Frekar kvöldsvæfur heldur en morgunfúll“ Atvinnumissir: „Það var rosa skrýtið að lenda í þessu“ „En það hefur líka margt fallegt komið út úr þessu“ Sjá meira
Vinnualkar og helstu einkenni þeirra Við tölum oft um fólk sem við teljum vera algjöra vinnualka. Eða viðurkennum okkur sjálf sem vinnualka. Stundum tölum við um að það sé jákvætt að vera vinnualki. Svona eins og það sé tilvísun í að vera mjög duglegur í vinnu. 1. júní 2021 07:01
„Verum óhrædd og þorin og prófum okkur áfram“ „Mitt ráð til þeirra sem eru að stíga þau skref að stytta vinnuvikuna er að horfa á verkefnið sem umbótatækifæri og nota þau verkfæri sem hönnunarhugsun færir okkur,“ segir Sara Lind Guðbergsdóttir sérfræðingur hjá Ríkiskaupum og þýðandi bókarinnar „Styttri“ eftir dr. Alex S. Pang framtíðarfræðings í Kísildal í Bandaríkjunum. 16. apríl 2021 07:02
Það vilja allir vera „Svalir“ Líney Árnadóttir, sérfræðingur hjá VIRK segir stjórnendur þurfa að þekkja einkenni streitu og vita hvernig streita þróast. Eitt verkfærið sem vinnustaðir geta notað er hinn svo kallaði Streitustigi. Á þessum stiga getur fólk mátað sína líðan miðað við eftirfarandi stig: Svalur – Volgur – Logandi – Bráðnaður – Brunninn. 17. mars 2021 07:01
Spáir því að vinnuvikan styttist fljótlega í 35 stundir og síðan 30 Ásberg Jónsson framkvæmdastjóri Nordic Visitor spáir því að mörg fyrirtæki muni á þessum áratug stytta vinnuvikuna enn meir en nú er oft rætt um. „Ég trúi því að við förum almennt að verðmeta tíma okkar á annan hátt og þar muni frístundir vega hærra. Ég er nokkuð sannfærður um að eftir ekki svo mörg ár verði flestir vinnustaðir landsins búnir að stytta vinnuvikuna niður í 35 tíma og fyrir lok þessar áratugar verði fjöldi fyrirtækja kominn niður í 30 tíma vinnuviku,“ segir Ásberg. 21. janúar 2021 07:01
Líðan starfsfólks snýst ekki um það sem er í tísku hverju sinni Fagleg heilsa, félagsleg heilsa, líkamleg heilsa, andleg heilsa og fleira. Allt eru þetta flokkar sem skipta máli þegar hugað er að líðan starfsfólks á vinnustöðum. 23. september 2020 15:31