Albumm

kef LAVÍK gefur út lagið VICE CITY BABY

Ritstjórn Albúmm.is skrifar
Hornfirðingarnir Einar Birkir Bjarnason og Ármann Örn Friðriksson hafa gefið út fimm plötur í fullri lengd undir merkjum kef LAVÍK.
Hornfirðingarnir Einar Birkir Bjarnason og Ármann Örn Friðriksson hafa gefið út fimm plötur í fullri lengd undir merkjum kef LAVÍK.

Kef LAVÍK gaf út nýtt lag í vikunni, lagið nefnist VICE CITY BABY.

Þetta er þriðja smáskífan af væntanlegri plötu sem kemur út í ágúst. Síðast kom út lagið Strobe þar sem JóiPé kemur fram í febrúar.

Í maí á síðasta ári gaf kef LAVÍK út fjögurra laga EP plötuna Heim eftir 3 mánuði í burtu. Platan var fyrsta útgáfa þeirra sem gefin er út á vegum Öldu Music. Kef LAVÍK eru þeir Einar Birkir Bjarnason og Ármann Örn Friðriksson og hafa þeir gefið út fimm plötur í fullri lengd.


Þessi grein birtist fyrst á Albumm.is. Albumm var stofnaður árið 2014 og fjallar um íslenska tónlist og menningu frá öllum hliðum. Hægt er að hafa samband í [email protected].








×