Lífið

Euro­vision­vaktin: Meira að segja Daði Freyr er sófa­kar­tafla í kvöld

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Spennan er rafmögnuð fyrir kvöldinu. Komast Daði Freyr og Gagnamagnið áfram?
Spennan er rafmögnuð fyrir kvöldinu. Komast Daði Freyr og Gagnamagnið áfram? Vísir/HjaltiFreyr

Síðara undankvöld Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva 2021 verður haldið í Ahoy-höllinni í Rotterdam í kvöld og nú er komið að Íslandi. Daði og Gagnamagnið eru áttunda atriðið í kvöld sem reyndar verður spilað af upptöku, sem þó á að vera geggjuð.

Smit í herbúðum íslenska teymisins gerir það að verkum að Daði og Gagnamagnið verða á hóteli sínu í kvöld og fylgjast með, í sófa og kannski með nasl eins og flestir landsmenn. Aðstöðu hefur þó verið komið fyrir á þaki hótelsins svo vonandi bregður okkar fólki fyrir í „Græna herberginu“ með einum eða öðrum hætti.

Hér í Eurovisionvaktinni, sem finna má neðst í fréttinni, fylgist sérlegur Eurovision-sérfræðingur Vísis með atriðum kvöldsins; rýnir þau, dæmir og setur jafnvel í sögulegt samhengi. Ekkert er henni óviðkomandi - og engum verður hlíft. Ekki frekar en á fyrra undanúrslitakvöldinu.

En þá að praktískum atriðum. Útsendingin hefst klukkan 19 að íslenskum tíma og á svið stíga fulltrúar sautján landa í eftirfarandi röð: San Marínó, Eistland, Tékkland, Grikkland, Austurríki, Pólland, Moldóva, Ísland, Serbía, Georgía, Albanía, Portúgal, Búlgaría, Finnland, Lettland, Sviss og Danmörk.

Þau tíu lönd sem hljóta náð fyrir augum Evrópubúa og dómnefndar komast áfram á úrslitakvöld keppninnar, sem fram fer á laugardag. Þar keppa 26 þjóðir um sigurinn.

Í vaktinni hér fyrir neðan svo má nálgast beina textalýsingu Vísis frá keppni kvöldsins, auk viðbótarfróðleiks og Eurovision-meinfýsni af Graham Norton-kalíberi. 

Lokið Twitter, rífið ykkur í gang og tjúnið inn á Eurovisionvaktina í kvöld. Ábendingar og vangaveltur sem átt gætu í vaktina sendist á [email protected].


Tengdar fréttir

Euro­vision­vaktin: Engum hlíft á fyrra undan­k­völdinu

Fyrra undankvöld Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva 2021 verður haldið í Ahoy-höllinni í Rotterdam í kvöld. Hér í Eurovisionvaktinni, sem finna má neðst í fréttinni, fylgist sérlegur Eurovision-sérfræðingur Vísis með atriðum kvöldsins; rýnir þau, dæmir og setur jafnvel í sögulegt samhengi. Ekkert er henni óviðkomandi - og engum verður hlíft.




Fleiri fréttir

Sjá meira
×