Innlent

Sex þúsund einstaklingar fullbólusettir með bóluefninu frá Janssen

Hólmfríður Gísladóttir skrifar
Bólusett í Laugardalshöll.
Bólusett í Laugardalshöll. Vísir/Vilhelm

Framundan er önnur stór vika í bólusetningum gegn Covid-19 og verður bólusett með þremur bóluefnum; frá Pfizer, Janssen og Moderna.

„Það verður líflegt í Höllinni,“ segir Sigríður Dóra Magnúsdóttir, framkvæmdastjóri lækninga hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. „Við erum undirbúin; allir búnir að stilla saman strengi.“

Á morgun fá tíu þúsund manns bóluefnið frá Pfizer. Í mörgum tilvikum verður um að ræða seinni skammt af bóluefninu. Þá verða sex þúsund einstaklingar fullbólusettir með bóluefninu frá Janssen á miðvikudag, þar sem það er gefið í einum skammti en ekki tveimur.

Á fimmtudag verða svo gefnir um 2.400 skammtar af bóluefninu frá Moderna. 

Boð í bólusetningar vikunnar munu berast í dag og næstu daga og allir verða að mæta með grímu og skilríki. Þá er mælt með því að fólk sé í stuttermabol, þar sem sprautað er í upphandleggsvöðva.

Heilsugæslan býður nú upp á þann valmöguleika að afþakka með öllu bólusetningu, óháð bóluefni. Það er hægt að gera með því að senda nafn og kennitölu á póstfangið [email protected].




Fleiri fréttir

Sjá meira


×